Hyggjast friðlýsa svæði í Þjórsárdal og Reykjatorfuna í Ölfusi

Umhverfisstofnun hefur kynnt áform um friðlýsingu tveggja svæða; í Þjórsárdal og Reykjatorfu í Ölfusi. Um er að ræða fyrstu friðlýsingar sem falla undir viðkvæm svæði undir álagi ferðamanna í sérstöku átaki í friðlýsingum.

Auglýsing
Háifoss
Háifoss

Umhverf­is­stofnun hefur kynnt áform um frið­lýs­ingu tveggja svæða. Annað er í Þjórs­ár­dal og hitt er Reykja­torfan í Ölf­usi. Áformin eru ann­ars vegar kynnt í sam­starfi við Skeiða- og Gnúp­verja­hrepp og for­sæt­is­ráðu­neytið og hins vegar í sam­starfi við sveit­ar­fé­lagið Ölf­us, Hvera­gerð­isbæ og umráð­endur rík­is­jarða. Um er að ræða fyrstu frið­lýs­ingar sem falla undir við­kvæm svæði undir álagi ferða­manna í sér­stöku átaki í frið­lýs­ing­um.

Þetta kemur fram í frétt umhverf­is- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins. 

Frið­lýs­ing­unni er ætlað að varð­veita sér­kenni og ein­kenni lands­lags­ins, fag­ur­fræði­legt og menn­ing­ar­legt gildi þess. Tekið er fram að ef um sé að ræða svæði þar sem hefð­bundnar nytjar eru for­senda fyrir því að varð­veita ein­kenni lands­lags­ins skuli frið­lýs­ingin jafn­framt miða að því að tryggja að þeim verði haldið við.

Auglýsing

Svæðið í Þjórs­ár­dal nær til meðal ann­ars Gjár­inn­ar, Háa­foss og nágrenn­is. „Gjáin hefur verið vin­sæll ferða­manna­staður og er helsta aðdrátt­ar­aflið óröskuð nátt­úra og frið­sæld. Hái­foss, Glanni og Stöng eru einnig fjöl­sóttir ferða­manna­staðir í Þjórs­ár­dal,“ segir í frétt ráðu­neyt­is­ins. 

Reykja­torfan liggur upp af Hvera­gerði innan marka sveit­ar­fé­lags­ins Ölf­us. Lands­lag svæð­is­ins ein­kenn­ist af jarð­hita og er þar fjöldi hvera og lauga, berg­ganga, brota og fram­hlaupa. Innan marka svæð­is­ins eru tveir dal­ir, Reykja­dalur og Græns­dal­ur. 

Enn fremur kemur fram í frétt­inni að mik­ill fjöldi ferða­manna heim­sæki Reykja­dal á hverju ári en svæðið er meðal vin­sæl­ustu úti­vist­ar­svæða í Ölf­usi og er undir miklu álagi. „Græns­dalur liggur sam­síða Reykja­dal. Hann er vel gró­inn og þar er að finna grósku­mikið vot­lendi og jarð­hita­svæði. Er þar meðal ann­ars að finna mýr­ar­hvera­vist, móa­hvera­vist og hvera­leir­svist auk jarð­hita­lækja. Svæðið er að mestu óraskað og ekk­ert stíga­kerfi er til staðar til að stýra umferð gesta frá við­kvæmum svæðum og þeim sem bein­línis er hættu­legt að fara um vegna jarð­hita.“

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra, segir að með vax­andi fjölda ferða­manna hér á landi hafi ákveðnir staðir óhjá­kvæmi­lega orðið fyrir meira álagi en aðr­ir. Upp­bygg­ing inn­viða og stýr­ing ferða­manna sé afar brýn á slíkum svæðum og um leið að stutt sé við svæðin með land­vörslu. Frið­lýs­ing sé þar lyk­il­at­riði því þannig sé hægt að takast á við þessi krefj­andi verk­efni með heild­stæðum hætti. „Það er því ánægju­legt að sjá fram­sýni Skeiða- og Gnúp­verja­hrepps, Sveit­ar­fé­lags­ins Ölf­uss, Hvera­gerð­is­bæjar og heima­fólks í mál­efnum þess­ara mik­il­vægu nátt­úruperla í Þjórs­árs­dal og í Reykja­dal,“ segir hann. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent