„Allir aðilar“ sammála um skattskerfisbreytingar til að mæta lægri tekjuhópum

Forsætisráðherra segir ríkisstjórnina ætla að leggja sitt að mörkum til að tryggja kjarabætur. Nauðsynlegt sé til dæmis að ráðast í stórátak í húsnæðismálum.

Katrín Jakobsdóttir áramótaávarp
Auglýsing

Rík­is­stjórnin ætlar að leggja sitt af mörkum til þess að tryggja kjara­bætur fyrir almenn­ing í tengslum við kom­andi kjara­samn­inga. Nauð­syn­legt sé til að mynda að ráð­ast í stór­á­tak í hús­næð­is­málum til að tryggja nægj­an­legt fram­boð af góðu hús­næði á við­un­andi verði. Þá séu „allir aðilar sam­mála um að breyta þurfi tekju­skatts­kerf­inu til að koma sér­stak­lega til móts við lægri og milli­tekju­hópa.“

Þetta er meðal þess sem fram kom í ára­móta­ávarpi Katrínar Jak­obs­dótt­ur, for­sæt­is­ráð­herra Íslands í gær­kvöldi. Þar ræddi hún meðal ann­ars loft­lags­mál, sögu íslensks full­veld­is, mann­rétt­inda­mál, stöðu bók­ar­innar og hlut­verk hennar við að við­halda íslensk­unni og mik­il­vægi þess að horfa til hug­vits og nýsköp­unar til lengri tíma.

For­sæt­is­ráð­herra fjall­aði einnig umtals­vert um þær kjara­deilur sem framundan eru en fjöl­margir samn­ingar á vinnu­mark­aði urðu lausir um ára­mót og enn fleiri verða það snemma á árinu 2019. Nú þegar hafa þrjú stétt­ar­fé­lög, þar á meðal tvö stærstu stétt­ar­fé­lög lands­ins, VR og Efl­ing, vísað deilum sínum til rík­is­sátta­semj­ara þar sem for­svars­mönnum þeirra fannst liggja fyrir að ekki væri að nást saman án hans aðkomu. Vísun til rík­is­sátta­semj­ara er for­senda þess að geta gripið til aðgerða á borð við verk­föll.

Auglýsing

Katrín sagði í ávarpi sínu að á árinu 2018 hafi hún átt frum­kvæði að því að halda reglu­lega sam­ráðs­fundi aðila vinnu­mark­að­ar­ins. „Ég er sann­færð um að það hafi skipt miklu máli fyrir okkur öll að koma saman á slíkum fund­um, fundum sem eru ekki samn­inga­fundir heldur vett­vangur til að viðra ólíkar skoð­anir og leita sam­eig­in­legra leiða. Við verðum öll að nálg­ast við­fangs­efnið af virð­ingu fyrir þeirri ábyrgð sem við berum en í kom­andi kjara­samn­ingum felst tæki­færi til að stíga nauð­syn­leg skref að því sam­eig­in­lega mark­miði að halda áfram að bæta lífs­kjör alls almenn­ings í sam­fé­lagi okk­ar.“

Nú blasi við það vanda­sama verk við aðilum vinnu­mark­að­ar­ins að ná samn­ingum sem stuðli að bættum kjörum, tryggi hag­sæld og vel­ferð. „Verka­lýðs­hreyf­ingin hefur talað fyrir ýmsum félags­legum umbótum eins og hún hefur ávallt gert en hún hefur haft mikil áhrif á íslenskt sam­fé­lag alla full­veld­is­sög­una. Rétt­indi hafa batnað stór­kost­lega, vel­ferð­ar­kerfi hefur verið byggt upp, heil­brigð­is­kerfið tekið stakka­skiptum og almenn menntun tekið stór­stígum fram­för­um. Um leið eru risa­stór við­fangs­efni framund­an; að draga úr kostn­aði sjúk­linga, byggja upp nýtt félags­legt hús­næð­is­kerfi, lengja fæð­ing­ar­or­lof og end­ur­skoða skatt- og bóta­kerfi til að tryggja tekju­lægri hópum bætt lífs­kjör.“

Katrín sagði að þótt samn­ingar á almennum vinnu­mark­aði séu milli sam­taka launa­fólks ann­ars vegar og atvinnu­rek­enda hins vegar muni stjórn­völd gera sitt til að greiða fyrir þeim. Þar hafi þegar verið ráð­ist í ýmsar umbætur með upp­bygg­ingu sam­fé­lags­legra inn­viða.„­Nauð­syn­legt er að ráð­ast í stór­á­tak í hús­næð­is­málum til að tryggja nægj­an­legt fram­boð af góðu hús­næði á við­un­andi verði. Þá eru allir aðilar sam­mála um að breyta þurfi tekju­skatts­kerf­inu til að koma sér­stak­lega til móts við lægri og milli­tekju­hópa,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra.

Hægt er að lesa ára­móta­ávarp for­sæt­is­ráð­herra í heild sinni hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent