Munu vaxtahækkanirnar í Bandaríkjunum stöðvast?

Yfir 60 prósent af gjaldeyrisvaraforða heimsins er í Bandaríkjadal, og því hafa vaxtabreytingar Seðlabanka Bandaríkjanna víðtæk áhrif um allan heim. Fjárfestar virðast veðja á að nú fari að hægja vaxtahækkanaferli bankans.

powell.jpg
Auglýsing

Stýri­vextir í Banda­ríkj­unum eru nú 2,5 pró­sent en Seðla­banki Banda­ríkj­anna hækk­aði vext­ina í fjór­gang á árinu 2018, sem reitti Banda­ríkja­for­seta, Don­ald Trump, til mik­illar reiði. Hann ræddi meðal ann­ars opin­ber­lega að Seðla­banka­stjór­inn, Jer­ome Powell, væri orð­inn „gal­inn“ (cr­azy).

Sam­kvæmt umfjöllun Wall Street Journal í dag, víð­lesn­asta dag­blaðs Banda­ríkj­anna, eru margir fjár­fest­ar, þar á meðal fag­fjár­festa­sjóð­ir, farnir að veðja á að Seðla­bank­inn muni fara sér hægar í vaxta­hækk­unum á þessu ári og þá hægar en efna­hags­spár bank­ans hafa gert ráð fyr­ir. 

Það gæti haft jákvæð áhrif á þróun eigna­verðs, en árið í fyrra var það versta á hluta­bréfa­mark­aði í Banda­ríkj­unum í ára­tug. 

Auglýsing

Sam­kvæmt þeim var horft til þess að vextir gætu hækkað upp fyrir 3 pró­sent á árinu 2020, en fjár­festa telja nú að vext­irnir gætu orðið þeir sömu í lok þessa árs og þeir eru nú í upp­hafi, eða 2,5 pró­sent. 



Ástæðan fyrir því að allra augu eru nú á vöxt­unum er ekki síst sú, að þessi tölu­verða vaxta­hækkun sem var á árinu 2018 hefur haft tölu­verð áhrif í banda­rísku efna­hags­lífi, og meðal ann­ars leitt til kæl­ingar á fast­eigna­mörk­uðum vítt og breitt. Fast­eigna­verð er víða tekið að lækka, enda hækkar vaxta­stigið fjár­magns­kostnað og getur þannig dregið úr eft­ir­spurn eftir fast­eign­um. 

Að öðru leyti eru hag­tölur í Banda­ríkj­unum taldar jákvæðar þessi miss­er­in. Atvinnu­leysi mælist um 4 pró­sent,  og hag­vöxtur verður á bil­inu 2 til 3 pró­sent á þessu ári ef spár ganga eft­ir. 

Áhrif af tolla­stríði Banda­ríkj­anna og Kína hafa þó frekar reynst nei­kvæð fyrir Banda­rík­in, en margar spár gera ráð fyrir að það fari að draga til tíð­inda í við­ræðum milli Banda­ríkj­anna og Kína, sem muni leiða til breyt­inga í við­skiptum land­anna. Óvíst er þó hvernig sú breyt­ingar verður og hvað hún mun þýða fyrir efna­hags­lífið í hvoru landi fyrir sig. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent