Tveir stjórnendur hjá Sýn látnir fara

Sýn lækkaði mest allra félaga í kauphöllinn í fyrra, eða um rúmlega 38 prósent. Fjölmiðlarekstur félagsins hefur ekki skilað þeirri afkomu sem að var stefnt. Hluti miðla 365 var keyptur, en það hefur gengið erfiðlega að ná ásættanlegri framlegð.

Sýn - Suðurlandsbraut
Auglýsing

Skipu­lags­breyt­ing­ar hafa verið gerðar hjá Sýn hf., áður Voda­fo­ne, sem ætlað er að efla sölu og þjón­­ustu og styrkja rekst­ur fé­lags­ins til fram­tíðar lit­ið. Björn Víglunds­son, sem leitt hefur miðla Sýn­ar, og Ragn­heiður Hauks­dótt­ir, sem hefur leitt ein­stak­lings­svið Sýn­ar, hafa hætt störfum og heyra nú sviðin undir Stefán Sig­urðs­son, for­stjóra félags­ins.

Breyt­ing­­arn­ar eru sagðar liður í að ein­falda rekst­­ur­inn og stytta boð­leiðir inn­­an fyr­ir­tæk­is­ins. Tveir stjórn­­end­ur láta af störf­um í kjöl­far breyt­ing­anna.

Sam­kvæmt til­kynn­ingu félags­ins til kaup­hallar þá fel­ast skipu­lags­breyt­ing­­arn­ar í því að ein­stak­l­ings­­svið og fyr­ir­tækja­­svið verða rek­in sem tvö sjálf­­stæð svið und­ir sölu og þjón­ustu, sem heyra mun beint und­ir for­­stjóra. Ein­ing­ar Miðla munu einnig heyra beint und­ir for­­stjóra eft­ir þess­ar breyt­ing­­ar, en munu að öðru leyti ekki breyt­ast, sam­­kvæmt frétta­til­kynn­ingu.

Auglýsing

Þor­varður Sveins­son sem leitt hefur fyr­ir­tækja­svið tekur við nýju hlut­verki rekstr­ar­stjóra. „Hann mun bera ábyrgð á rekstr­ar­málum þvert á fyr­ir­tækið með það mark­mið að ná fram ­auk­inni skil­virkni og hag­kvæmni í rekstri. Þessi breyt­ing end­ur­speglar rekstr­ar­á­hersl­ur ­fé­lags­ins og við­brögð við áskor­unum á fjar­skipta- og fjöl­miðla­mark­að­i,“ segir í til­kynn­ingu félags­ins. 

Elmar Hall­gríms Hall­gríms­son hefur verið ráð­inn stjórn­andi ein­stak­lings­sviðs, en þar fell­ur undir sala og þjón­usta til ein­stak­linga sem og mark­aðs­mál. 

„El­mar hefur und­an­farið sinnt ­sér­verk­efnum fyrir Hag­vang en var áður fram­kvæmda­stjóri sölu- og þjón­ustu­sviðs hjá 365 miðlum ehf. Elmar var um ára­bil lektor við Við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands og ann­ast nú m.a. kennslu við MBA nám og laga­deild skól­ans. Hann er einnig þjálf­ari hjá Dale Carneg­ie. El­mar er með LL.M gráðu frá Uni­versity of Penn­syl­vania og emb­ætt­is­próf í lög­fræði frá­ Há­skóla Íslands. Hann hefur lokið meist­ara­námi í fjár­málum fyr­ir­tækja og í við­skiptasið­fræð­i frá Háskóla Íslands, auk þess að hafa lokið prófi í verð­bréfa­svið­skiptum og hafa leyfi til að ­starfa sem hér­aðs­dóms­lög­mað­ur­. El­mar hefur víð­tæka reynslu af stjórn­ar­setu og var m.a. stjórn­ar­for­maður MBA náms og við­skipta­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands,“ segir í til­kynn­ingu félags­ins. 

Óhætt er að segja að Sýn hafi gengið í gegnum öldu­dali að und­an­förnu. Í fyrra lækk­aði mark­aðsvirði félags­ins mest allra félaga í kaup­höll­inni, eða um rúm­lega 38 pró­sent. Þá hefur félagið sent frá sér afkomu­við­var­anir á und­an­förnum mán­uð­um, meðal ann­ars vegna minni tekna af aug­lýs­inga- og áskrift­ar­sölu fjöl­miðla­hluta félags­ins.

Gert er ráð fyr­ir að rekstr­­ar­hagn­aður þessa árs verði 3,9 til 4,4 millj­­arðar í stað 4,6 til 5 millj­­arðar sam­­kvæmt fyrri áætl­­un. Þá er frest­un á kostn­að­ar­sam­­legð upp á 200 millj­­ón­ir sem gert var ráð fyr­ir á næsta ári, en ljóst er að mun ekki koma til fyrr en árið 2020. Þá er veik­ing krón­unn­ar tal­in hafa 350 millj­­óna króna nei­­kvæð áhrif á kostnað fé­lags­ins á næsta ári, að því er sagði í til­kynn­ingu til kaup­hall­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent