Meirihlutinn í Reykjanesbæ hvetur Arion banka og Thorsil til að falla frá áformum

Deildar meiningar eru í bæjarstjórn Reykjanesbæjar.

Kísilver united silicon helguvík mynd: Skjáskot/Youtube
Auglýsing

Arion banki og Thorsil eru í yfir­lýs­ingu frá meiri­hluta bæj­ar­full­trúa í Reykja­nesbæ hvött til að falla frá öllum áformum um upp­bygg­ingu og rekstur kís­il­málm­verk­smiðja í Helgu­vík.

Frá þessu er greint á vef Vík­ur­frétta.

Bæj­ar­full­trú­arnir hvetja þessa aðila til að taka frekar þátt í  annarri atvinnu­upp­bygg­ingu í sátt við fólkið í sveit­ar­fé­lag­inu og umhverf­ið. Yfir­lýs­ingin var sam­þykkt á bæj­ar­stjórn­ar­fundi í Reykja­nesbæ í dag.

Auglýsing

Félagið Stakks­berg ehf., sem er í eigu Arion banka, vinnur að því að koma verk­smiðju af stað á nýjan leik, sem áður var í eigu United Sil­icon, sem fór í gjald­þrot skömmu eftir að hún hóf starf­sem­i. 

Í yfir­lýs­ingu seg­ir, sam­kvæmt frétt Vík­ur­frétta: „Kís­il­veri United Sil­icon, sem hóf starf­semi sína þann 13. nóv­em­ber 2016 var lokað 1. sept­em­ber 2017 og tekið til gjald­þrota­skipta 22. jan­úar 2018.  Þann tíma sem verk­smiðjan var í rekstri olli hún íbúum sveit­ar­fé­lags­ins veru­legum óþæg­indum og jafn­vel veik­ind­um, vegna meng­unar sem af henni staf­aði. Þá urðu margir fyrir veru­legum fjár­hags­legum skakka­föllum í kjöl­far gjald­þrots verk­smiðj­unn­ar, s.s. starfs­menn, verk­takar, hlut­hafar og sveit­ar­fé­lagið Reykja­nes­bær. Nú hafa verið kynntar áætl­anir um að hefja rekstur verk­smiðj­unnar að nýju og ætlar nýr eig­andi, Arion Banki, að eyða veru­legum fjár­munum í lag­fær­ingar á verk­smiðj­unni. Þá áformar hluta­fé­lagið Thorsil einnig að hefja rekstur sams­konar verk­smiðju á sama stað í Helgu­vík, um 2 km frá þéttri byggð, stein­snar frá leik­skóla og grunn­skóla í bæn­um.

Ljóst er að íbúar Reykja­nes­bæjar hafa af þessu veru­legar áhyggjur í ljósi fyrri reynslu af slíkum rekstri. United Sil­icon hafði ein­ungis komið einum ofni í gang þann tíma sem fyr­ir­tækið starf­aði en áætl­anir gera ráð fyrir að ofn­arnir geti alls orðið sjö með til­heyr­andi meng­un. 

Und­ir­rit­aðir bæj­ar­full­trúar taka fylli­lega undir áhyggjur ann­arra íbúa og telja að nú sé orðið ljóst að starf­semi af þessu tagi henti alls ekki í nálægð við þétta íbúa­byggð.  Sökum þess viljum við skora á hlut­að­eig­andi aðila, bæði Arion banka og Thorsil að falla frá öllum áformum um upp­bygg­ingu og rekstur kís­il­málm­verk­smiðja í Helgu­vík og hvetja þá til að taka frekar þátt í  annarri atvinnu­upp­bygg­ingu í sátt við fólkið í sveit­ar­fé­lag­inu og umhverf­ið.“ Undir yfir­lýs­ing­una rita allir bæj­ar­full­trúar meiri­hlut­ans, auk bæj­ar­full­trúa Mið­flokks­ins.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem er í minni­hluta í bæj­ar­stjórn, tekur ekki undir yfir­lýs­ingu meiri­hlut­ans. 

Í bókun hans segir að fjöl­breyttar stoðir verði að vera undir atvinnu­líf­inu í Reykja­nes­bæ. Hann segir þó að eng­ann afslátt eigi að gefa á umhverf­is­þáttum þegar komi að upp­bygg­ing­unni í Helgu­vík­. „­Saga kís­il­vers United Sil­icon frá því það hóf starf­semi sína 2016 og þá tíu mán­uði sem það starf­aði er okkur öllum kunn og ljóst er að þau mis­tök sem gerð voru í und­ir­bún­ingi og rekstri versk­miðj­unnar mega ekki end­ur­taka sig. Íbúar í Reykja­nesbæ þekkja mik­il­vægi þess að hafa fjöl­breytt atvinnu­líf. Rúm­lega þús­und manns misstu atvinn­una við brott­hvarf Varn­ar­liðs­ins fyrir tólf árum. Í banka­hruni tveimur árum síðar misstu enn fleiri atvinn­una og nú síð­ast fyrir tveimur mán­uðum var á þriðja hund­rað manns sagt upp störfum á Kefla­vík­ur­flug­velli vegna óvissu í flug­rekstri. Bæj­ar­full­trúar D-list­ans geta því ekki tekið undir áskorun meiri­hluta bæj­ar­stjórnar um að Stakks­berg og Thorsil falli frá áformum sínum um upp­bygg­ingu kís­il­málm­verk­smiðja í Helgu­vík.

D-list­inn legg­ur, eftir sem áður, áherslu á að það verði eng­inn afsláttur gef­inn af umhverfis­kröfum og eft­ir­liti með upp­bygg­ingu og atvinnu­starf­semi í Helgu­vík. Bæj­ar­full­trúar D-list­ans skora á þessi sömu fyr­ir­tæki að eiga rík­ara sam­ráð við íbúa um fram­vindu mála og tryggja að unnið verði að upp­bygg­ingu í Helgu­vík sem er í sátt við íbúa og umhverfi Reykja­nes­bæj­ar,“ segir í bókun full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins í bæj­ar­stjórn­a. 

Í bókun full­trúa frá Frjálsu afli er tek­ið, fram að ef upp­bygg­ingin eigi að fara fram, þurfi að tryggja að íbúar finni ekki fyrir óþæg­indum eða meng­un. Besta fáan­lega búnað þurfi að nota, til að koma í veg fyrir meng­un. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent