Guðbjörg í Ísfélaginu komin í hóp stærstu hluthafa TM

Félag í eigu Guðbjargar Matthíasdóttur og fjölskyldu, eigenda Ísfélagsins í Vestmannaeyjum, hefur að undanförnu verið að auka eignarhlut sinn í TM. Hlutur félagsins nemur nú nokkrum prósentum sem þýðir að Guðbjörg er komin í hóp stærstu hluthafa TM.

tm_9953427524_o.jpg
Auglýsing

Félag í eigu Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur og fjöl­skyldu, eig­enda Ísfé­lags­ins í Vest­manna­eyj­um, hefur að und­an­förnu verið að auka umtals­vert eign­ar­hlut sinn í Trygg­inga­mið­stöð­inni með kaupum á bréfum sem fjár­mögnuð eru hjá Íslands­banka. Hlutur félags­ins nemur nú nokkrum pró­sentum sem þýðir að Guð­björg er komin í hóps stærstu hlut­hafa TM. Frá þessu er greint í Mark­að­inum í dag. 

Byrj­aði að fjár­festa í T­M árið 2016

Guð­björg var einn aðal­eig­and­i T­M og sat í stjórn félags­ins á árunum fyrir hrun. Hún seldi hins vegar eign­ar­hlut sinn í T­M að stærstum hluta til Glitn­is haustið 2007. ­Fé­lagið Krist­inn ehf, sem er í eigu Guð­bjargar og fjöl­skyldu, byrj­aði síðan að fjár­festa í´T­M árið 2016 en í árs­lok 2017 nam eign­ar­hlutur félags­ins 0,7 pró­sent­um. Sam­kvæmt heim­ild­ar­mönn­um ­Mark­að­ar­ins hefur félagið aftur á móti verið að auka umtals­vert við eign­ar­hlut sinn og byggja hratt upp stöðu sína í trygg­ing­ar­fé­lag­inu með kaupum á bréfum í gegnum fram­virka samn­inga hjá Íslands­banka. 

Í umfjöll­un ­Mark­að­ar­ins segir að ekki hafi ­feng­ist stað­festar upp­lýs­ingar um nákvæm­lega hversu stóran hlut félag Guð­bjargar á orðið í TM, en ljóst er að eign­ar­hlut­ur­inn er ekki stærri en sam­tals fimm pró­sent enda væri félag­inu þá að öðrum kosti skylt að til­kynna um það til Kaup­hall­ar­inn­ar.

Auglýsing

Guð­björg greiddi sér 3,25 millj­arða í arð 

Guð­­björg Matt­h­í­a­s­dótt­ir, og afkom­endur henn­­ar, eru á meðal efn­uð­­ustu fjöl­­skyldna á Íslandi og reka þau umsvifa­­mikla fyr­ir­tækja­­starf­­semi. Fjöl­­skyldan á meðal ann­­ars nær allt hlutafé í Ísfé­lagi Vest­­manna­eyja, hluti í skráðum félög­um, allt hlutafé í Í­sam, einu stærstu inn­­­flutn­ings- og fram­­leiðslu­­fyr­ir­tækis lands­ins, og stærstan hluta bréfa í Odda. Guð­­björg og börn hennar greiddu sér 3,25 millj­­arða króna í arð árið 2017 í gegnum félag­ið Í­V fjár­­­fest­inga­­fé­lag ehf., sem heldur meðal ann­­ars á hlut hennar í Ísfé­lag­inu.

Fjöl­­skyldan eru líka stærstu eig­endur Árvak­­urs, útgáfu­­fé­lags Morg­un­­blaðs­ins. Ísfé­lagið á sjálft 13,43 pró­­­­sent hlut og áður­­­­­nefnt félag, Hlyn­ur A, í eigu Guð­­­­bjargar Matt­h­í­a­s­dótt­­­­ur, á 16,45 pró­­­­sent hlut.  

Stærstu hlut­haf­ar T­M eru líf­eyr­is­sjóðir

Stærstu hlut­haf­ar T­M eru Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna, LSR, Gildi og Birta líf­eyr­is­sjóð­ur. Aðrir umsvifa­miklir fjár­festar í eig­enda­hópi félags­ins eru erlendir sjóðir í stýr­ing­u L­ans­dow­ne og Miton og þá er eign­ar­halds­fé­lagið Helga­fell með rúm­lega 6,6 pró­senta hlut, sam­kvæmt umfjöll­un ­Mark­að­ar­ins

Eign­ar­hlutur Íslands­banka í TM, sem skipt­ist á veltu­bók og hluti vegna fram­virkra samn­inga við við­skipta­vini bank­ans, nemur í dag rúm­lega 7,8 pró­sent­um. Þá hefur hlutur bank­ans auk­ist um þrjú pró­sent frá því í júlí á síð­asta ári þegar Íslands­banki var skráður fyrir um fimm pró­senta hlut í trygg­inga­fé­lag­in­u. 

Mark­aðsvirð­i T­M er í dag tæp­lega 18 millj­arðar króna. Hluta­bréfa­verð T­M hefur lækkað um fjórð­ung á síð­ustu tólf mán­uðum og miðað við núver­andi gengi bréfa félags­ins, sem er um 26 krónur á hlut. Í umfjöll­un ­Mark­að­ar­ins ­segir að því er  til dæmis fimm pró­senta hlutur í félag­inu í dag met­inn á um 880 millj­ónir króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent