Umtalsverð áhætta fyrir Sýn að missa enska boltann

Í nýrri greiningu Arion banka á rekstri Sýnar, er fjárfestum ráðlagt að halda bréfunum, en bent er á að framundan geti verið krefjandi tími.

Sýn - Suðurlandsbraut
Auglýsing

Grein­ing­ar­deild Arion banka telur að umtals­verð áhætta sé í því fólgin fyrir Sýn, að missa enska bolt­ann úr dag­skrár­efni sínu. Þetta kemur fram í nýrri grein­ingu á rekstri Sýn­ar.

Enski bolt­inn mun fara úr dag­skrár­fram­boði Sýnar í haust, en eins og áður hefur verið greint frá, þá átti Sím­inn hæsta boð í enska bolt­ann í útboði og verður með hann á dag­skrá hjá sér, frá og með haustinu, næstu þrjú keppn­is­tíma­bil.

Úr efni greiningardeildarinnar.„Vit­an­lega verður margt annað íþrótta­efni til staðar hjá Sýn en enski bolt­inn er að okkar mati það efni sem hefur hingað til helst laðað við­skipta­vini að íþrótta­stöð félags­ins. Lík­lega mun verð­lagn­ing Sím­ans á efn­inu ráða tölu­verðu um það hve marga við­skipta­vini Sýn miss­ir. Ef heild­ar­kostn­aður heim­ila við efn­is­kaup á íþróttum verður áfram um það bil óbreytt gæti þessi breyt­ing haft minni áhrif á Sýn. En ef kostn­að­ur­inn hækkar þykir okkur lík­legra að íþrótta­efni Sýnar verði fyrir nið­ur­skurð­ar­hníf heim­ila en enski bolt­inn. Erfitt er að leggja með ein­hverjum hald­bærum hætti mat á hve marga við­skipta­vini félagið kann að tapa, en við gefum okkur þó í þessu virð­is­mati þá for­sendu að um 5 þús­und við­skipta­vinir hætti að kaupa aðgang að Sport­stöðvum félags­ins, sem er megin ástæða fyrir spá um tekju­sam­drátt 2020. Missir enska bolt­ans hefur áhrif á kostnað líkt og tekj­ur. Ekki hefur verið upp­gefið hver afkoma Sýnar hefur verið af enska bolt­anum og ekki ein­falt að áætla heild­ar­á­hrif­in,“ segir í umfjöllun grein­ing­ar­deild­ar­inn­ar.

Auglýsing

Mark­aðsvirði Sýn­ar, sem skráð er í kaup­höll Íslands, er nú 11,9 millj­arð­ar, en sam­kvæmt verð­mati grein­ing­ar­deildar Arion banka er það á svip­uðum slóð­um, eða rúm­lega 12 millj­arð­ar.

Und­an­farið ár hefur verið erfitt fyrir hlut­hafa Sýn­ar, enda hefur mark­aðsvirðið hrunið um rúm­lega 40 pró­sent á einu ári. Félagið sendi frá sér tvær afkomu­við­var­anir í lok árs, bæði í nóv­em­ber og des­em­ber.

Eigið fé félags­ins var 10,4 millj­arðar í lok þriðja árs­fjórð­ungs í fyrra og heild­ar­eignir 26,5 millj­arðar króna.

Í umfjöllun grein­ing­ar­deild­ar­innar seg­ir, meðal ann­ars:

„Miðað við hversu döpur afkoma 2018 verður og í ljósi þess hvernig árið ­þró­að­ist teljum við ástæðu til horfa á áætlun félags­ins með þessum hætti. Við spáum að EBITDA þessa árs verði neðst í afkomu­bil­inu sem ­fé­lagið hefur gefið upp og verði svo um 200 m.kr. lægri á næsta ári en félagið horfir til. Þá förum við jafn­framt ekki neðar en í 9% af tekjum með­ fjár­fest­ingar félags­ins, en það hefur sagst stefna að 8% hlut­falli. Virð­is­matið er byggt á núver­andi sam­stæðu líkt og afkomu­á­ætlun félags­ins, þ.e. ­með Hey í Fær­eyj­um, enda á eftir að aflétta ýmsum fyr­ir­vörum áður en sú sala verður frá­geng­in.“

Ráð­gjöf til fjár­festa er sú að halda bréfum í félag­inu. Í umfjöllun grein­ing­ar­deild­ar­innar segir meðal ann­ars, að þró­unin á virði bréfa félags­ins að und­an­förnu hafi að ein­hverju leyti end­ur­spegl­ast í breyttu rekstr­ar­um­hverfi. „Stjórn­endur félags­ins þurfa að sanna það fyrir mark­aðnum að það verði hægt að ná fram upp­gefnum sam­legð­ar­á­hrif­um. ­Fé­lagið virð­ist eiga undir högg að sækja í tveimur af stærstu tekju­straumun­um, þ.e. í far­síma og fjöl­miðl­un, og þá ótt­umst við einnig að það muni reyn­ast félag­inu erfitt að bregð­ast við kjara­samn­ingum meðan það stendur í miðri sam­legð­ará líkt og raunin varð á síð­asta ári. Að okkar mati hefur lækkun á verði bréfa Sýnar á síð­ustu mán­uðum end­ur­speglað breyttar rekstr­ar­horfur þess,“ segir í umfjöllun grein­ing­ar­deild­ar­inn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent