Gunnar Bragi: Fór í algjört minnisleysi og týndi fötunum mínum

Gunnar Bragi Sveinsson og Bergþór Ólason eru gestir 21 á Hringbraut í kvöld. Þar ræða þeir Klaustursmálið og endurkomu sína á Alþingi.

GBS og BO.png
Auglýsing

„Það sem situr einna verst í mér eftir þetta kvöld er í fyrsta lagi það að muna ekki neitt frá því að ég kem inn á bar­inn og einum og hálfum sól­ar­hring eft­ir. Það er algjört „blackout“. Algjört minnis­leysi. Ég hvorki veit hvað ég gerði, ég þurfti að hlusta á upp­tök­urn­ar, ég týndi föt­unum mínum þessa nótt. Það er algjört „blackout“. Það hefur ekki komið fyrir mig áður. Þannig að ég velti því fyrir mér hvað í fjand­anum gengur á þarna.“

Þetta segir Gunnar Bragi Sveins­son, þing­maður og vara­for­maður Mið­flokks­ins, í við­tali við Lindu Blön­dal í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem verður frum­sýndur klukkan 21 um kvöldið alræmda sem hann eyddi á Klaust­ur­bar í nóv­em­ber. Hann seg­ist hafa týnt frakk­anum sínum og lyklunum þetta kvöld.

Ásamt Gunn­ari Braga er Berg­þór Óla­son, þing­maður Mið­flokks­ins, gestur þátt­ar­ins þar sem þeir ræða Klaust­urs­málið og end­ur­koma sína á þing í dag. Hægt er að sjá stiklu úr þætti kvölds­ins hér að neð­an.



Gunnar Bragi segir að reiðin í rödd­inni á þeim manni sem hafi talað á upp­tök­unum af Klaust­ur­bar sé honum áhyggju­efn­i. 

Þess vegna hafi hann verið að leita sér aðstoðar og þess vegna hafi hann ekki smakkað áfengi frá 20. nóv­em­ber. „Vegna þess að ég vil kom­ast að því hvað þarna gerð­ist áður en ein­hver önnur skref eru tek­in.“

Auglýsing
Bergþór seg­ist hafa átt við­töl við áfeng­is­ráð­gjafa og nið­ur­staða þess var að hann setti sig í ótíma­bundið áfeng­is­leyfi þótt nið­ur­staða þeirra sam­tala hafi verið að hann sé ekki alkohólisti. „Ég taldi það bara ekki rétt­læt­an­legt, og við erum búin að ræða það mikið inni á þingi und­an­farna mán­uði, að á meðan að 600 manns eru á biðlista hjá SÁÁ þá ætla ég ekki að fara í með­ferð til að haka við ein­hver box.“

Í þætt­inum ræða þeir einnig ítar­lega um af hverju þeir ákváðu að snúa aftur á þing, hvort þeir hafi ein­hvern tím­ann hug­leitt af alvöru að stíga end­an­lega til hliðar og við­brögð þeirra sem urðu fyrir orðum þeirra á Klaust­ur­bar þann 20. nóv­em­ber sem nú þurfa að vinna með þeim á Alþingi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent