Svar Seðlabanka Íslands ekki í samræmi við lög

Umboðsmaður Alþingis telur afgreiðslu máls sem snéri að Þorsteini Má Baldvinssyni, forstjóra Samherja, hafa verið gagnrýniverða.

Þorsteinn Már Baldvinsson
Auglýsing

Svar Seðla­banka Íslands til Þor­steins Más Bald­vins­son­ar, for­stjóra Sam­herja, vegna beiðni hans um að stjórn­vald­sekt bank­ans yrði aft­ur­köll­uð, var ekki í sam­ræmi við lög og vinnu­brögðin voru gagn­rýni­verð. 

Þetta kemur fram í áliti Umboðs­manns Alþingis, Tryggva Gunn­ars­son­ar, sem birt var á vef emb­ætt­is­ins í dag. 

„Það er álit mitt að með svari Seðla­banka Íslands frá 9. maí 2018 við erindi A um aft­ur­köllun ákvörð­unar um stjórn­valds­sekt sem bank­inn lagði á hann [...] 2016 hafi ekki verið leyst með full­nægj­andi hætti úr erindi hans. Ekki verður séð að bank­inn hafi við með­ferð máls­ins tekið afstöðu til þeirra rök­semda sem A vís­aði til beiðni sinni til stuðn­ings, m.a. um afstöðu rík­is­sak­sókn­ara til gildis laga og reglna um gjald­eyr­is­mál sem full­nægj­andi refsi­heim­ilda. Með vísan til þess er það álit mitt að svar seðla­bank­ans hafi ekki verið í sam­ræmi við lög.

Auglýsing

Ég beini því til Seðla­banka Íslands að taka erindi A til nýrrar með­ferð­ar, komi fram ósk þess efnis frá hon­um, og haga þá með­ferð máls­ins í sam­ræmi við þau sjón­ar­mið sem gerð er grein fyrir í álit­inu. Ég beini jafn­framt þeim til­mælum til Seðla­banka Íslands að taka fram­vegis og við úrlausn sam­bæri­legra mála mið af þeim sjón­ar­miðum sem koma fram í álit­inu. Í ljósi eft­ir­lits­hlut­verks banka­ráðs Seðla­banka Íslands hef ég jafn­framt ákveðið að senda því afrit af þessu áliti til upp­lýs­inga,“ segir í loka­orðum bréf Umboðs­manns Alþing­is.

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.

Í bréfi sínu gagn­rýnir Umboðs­maður Alþing­is, að for­svars­menn seðla­bank­ans, og aðrir þeir sem voru með á fundi sem hann átti með þeim í októ­ber 2015, hafi ekki upp­lýst hann um afstöðu rík­is­sak­sókn­ara til álita­efnis sem fjallað var um. Segir hann að það sé gagn­rýni­vert í ljósi þess eft­ir­lits­hlut­verks sem emb­ættið fer með sam­kvæmt lög­um.

Gylfi Magn­ús­son, for­maður banka­ráðs Seðla­bank­ans, segir í við­tali við RÚV að banka­ráðið hafi tekið álitið til umfjöll­unar á fundi sínum í morg­un. 

Hann segir að það komi fram hörð gagn­rýni í áliti umboðs­manns á stjórn­sýslu bank­ans í mál­inu. Banka­ráð hafi á fundi sínum ályktað að bank­inn ætti að bregð­ast við þessu og taka málið upp í sam­ræmi við ábend­ingar umboðs­manns. Kanna ætti hvort taka þyrfti upp önnur sam­bæri­leg mál. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent