Páll Magnússon gagnrýnir dómsmálaráðherra fyrir „óboðlega stjórnsýslu“

Staða sýslumanns í Vestmannaeyjum verður aflögð, tímabundið, og verður sýslumaðurinn á Suðurlandi sýslumaður eyjanna.

7DM_5602_raw_170912.jpg Alþingi 12. september 2017. Páll Magnússon
Auglýsing

„Það vildi þannig til að fyrsti þing­maður Suð­ur­kjör­dæm­is, sem er frá Vest­manna­eyj­um, var staddur á flug­velli þar í bæ í gær­morg­un. Þá var nýlent í bænum sendi­nefnd frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu. Við nán­ari eft­ir­grennslan kom í ljós að hún var þangað komin til að til­kynna heima­mönnum að frá og með föstu­deg­inum næsta, ekki á morgun heldur hinn, yrði eng­inn sýslu­maður í Vest­manna­eyj­um! Hvorki þing­menn kjör­dæm­is­ins né bæj­ar­yf­ir­völd í Vest­manna­eyj­um, höfðu hug­mynd um þetta.“

Þetta sagði Páll Magn­ús­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í ræðu á Alþingi í dag, þar sem hann gagn­rýndi Sig­ríði Á. And­er­sen dóms­mála­ráð­herra harð­lega, fyrir „óboð­lega stjórn­sýslu“. 

Sam­kvæmt til­kynn­ingu sem birt­ist á vef dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins í gær, segir að breyt­ingar verði á yfir­stjórn emb­ættis sýslu­manns í Vest­manna­eyjum frá 1. febr­úar næst­kom­andi þegar Lára Huld Guð­jóns­dótt­ir, sýslu­mað­ur, hverfi tíma­bundið til ann­arra starfa hjá sýslu­manna­ráði. „Sýslu­mað­ur­inn á Suð­ur­landi, Kristín Þórð­ar­dótt­ir, verður tíma­bundið settur sýslu­maður í Vest­manna­eyjum frá  1. febr­úar til 31. des­em­ber. Í sam­starfi við dóms­mála­ráðu­neytið mun Lára Huld m.a. hafa með höndum að greina rekstur sýslu­manns­emb­ætt­anna með til­liti til auk­innar skil­virkni og hag­ræð­ingar ásamt því að greina tæki­færi fyrir raf­ræna þjón­ust­u,“ segir í til­kynn­ing­unn­i. 

Auglýsing

Páll sagði í ræðu sinni, að í „ill­skilj­an­legri“ til­kynn­ingu hefði komið fram, að sýslu­mað­ur­inn myndi hverfa til starfa hjá sýslu­manna­ráði. „Seinna í sömu til­kynn­ingu er sagt að þessar breyt­ingar séu í sam­ræmi áform dóms­mála­ráð­herra um stefnu­mörkun í stjórn­sýslu rík­is­ins. Og við frum­varp sem seinna yrði lagt fram á yfir­stand­andi þingi sem fæli meðal ann­ars í sér að ráð­herra yrði á hverjum tíma heim­ilt að skipa sýslu­mann yfir fleiri emb­ætti en eitt til allt að fimm ára. Sam­kvæmt orð­anna hljóðan væri þá ráð­herra vænt­an­lega heim­ilt að skipa bara einn sýslu­mann yfir Íslandi. Til fimm ára og sá yrði örugg­lega í Reykja­vík. Þett er algjör­lega óboð­leg stjórn­sýsla.“

Í til­kynn­ingu frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu, segir að þessar breyt­ingar séu í sam­ræmi við áform dóms­mála­ráð­herra, sem „hún hefur kynnt bæði rík­is­stjórn og sýslu­mönn­um, um stefnu­mörkun í stjórn­sýslu rík­is­ins í hér­aði sem sýslu­mönnum hefur verið fal­in.“

Þá segir enn fremur að dóms­mála­ráð­herra muni einnig leggja til við Alþingi á yfir­stand­andi þingi að gerðar verði breyt­ingar á lögum um fram­kvæmd­ar­vald og stjórn­sýslu rík­is­ins í hér­aði þannig að „ráð­herra verði á hverjum tíma heim­ilt að skipa sama sýslu­mann yfir fleiri emb­ætti til allt að fimm ára í senn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent