Kvenréttindafélagið fær 10 milljónir fyrir jafnréttisfræðslu

Forsætisráðuneytið hefur samið við Kvenréttindafélagið um að félagið sinni fræðslu, námskeiðahaldi og upplýsingagjöf um jafnrétti kynjanna á innlendum og erlendum vettvangi næsta árið.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Fríða Rós Valdimarsdóttir, formaður stjórnar Kvenréttindafélgasins, undirrita samstarfssamning
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Fríða Rós Valdimarsdóttir, formaður stjórnar Kvenréttindafélgasins, undirrita samstarfssamning
Auglýsing

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­sæt­is­ráð­herra, og Fríða Rós Valdi­mars­dótt­ir, for­maður stjórnar Kven­rétt­inda­fé­lags­ins, hafa und­ir­ritað samn­ing þess efnis að Kven­rétt­inda­fé­lag­ið sinni fræðslu, ­nám­skeiða­hald­i og upp­lýs­inga­gjöf um jafn­rétti kynj­anna á inn­lendum sem og erlendum vett­vangi. Samn­ing­ur­inn gildir frá 15. febr­úar 2019 til 15. febr­úar 2020 og greiðir for­sæt­is­ráðu­neytið félag­inu 10 millj­ónir króna til að sinna þeim verk­efn­um. Í til­kynn­ingu frá stjórn­ar­ráð­inu segir að meg­in­mark­miðið samn­ings­ins sé að efla fræðslu fyrir almenn­ing um kynja­jafn­rétt­is­mál í sam­ræmi við mark­mið laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. 

Þekk­ing er mik­il­væg­asta tækið til að takast á við kynja­kerfið

Kven­rétt­inda­fé­lag­ið á sam­kvæmt samn­ingnum að sinna hinum ýmsu verk­efn­um. Auk almennrar fræðslu skal félagið meðal ann­ars halda nám­skeið fyrir kon­ur, þar á með­al­ ­kon­ur af erlendum upp­runa, um efna­hags­leg, félags­leg og ­menn­ing­ar­leg rétt­indi og einnig borg­ara­leg og stjórn­mála­leg rétt­indi, með það að mark­miði að auka þátt­töku allra kvenna í umræðu og starfi á opin­berum vett­vangi.

„Kven­rétt­inda­fé­lagið hefur gegnt afar mik­il­vægu hlut­verki í íslensku sam­fé­lagi í rúma öld. Við vitum að þekk­ing er mik­il­væg­asta tækið til að takast á við kynja­kerfið og þess vegna skiptir miklu að rót­gróið félag eins og Kven­rétt­inda­fé­lagið hafi tök á að sinna fræðslu- og upp­lýs­inga­mál­u­m,“ segir Katrín Jak­obs­dótt­ir.

Auglýsing

Sjá um útgáfu náms­efnis um jafn­rétt­is­mál

Enn frem­ur á Kven­rétt­inda­fé­lag­ið að standa að árlegu kynja­þingi frjálsra félaga­sam­taka á sviði jafn­rétt­is­mála. Að auki skal félagið halda árlega sam­ráðs­fundi með konum á Alþingi og í sveit­ar­stjórnum um leiðir til að auka þátt­töku kvenna og styrkja stöðu þeirra á vett­vangi stjórn­mál­anna. Jafn­framt á félagið að halda árlegan sam­ráðs­fund með kenn­urum sem kenna kynja- og jafn­rétt­is­fræði á öllum skóla­stigum í því augna­miði að auka þekk­ingu og færni kenn­ara á sviði jafn­rétt­is­mála. 

Auk þess á félagið að halda opna fundi, sjá um útgáfu náms­efnis um jafn­rétt­is­mál á raf­rænu formi eða prenti og með gerð upp­lýs­inga­efnis á íslensku og ensku til birt­ingar á vef­svæði félags­ins. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent