Efling leggur fram gagntilboð

Horfa til skattkerfisbreytinga í anda þeirra sem Stefán Ólafsson og Indriði H. Þorláksson hafa lagt fram.

Sólveig Anna Jónsdóttir
Auglýsing

Í gær gerðu Sam­tök atvinnu­lífs­ins stétt­ar­fé­lögum til­boð um þriggja ára kjara­samn­inga að gefnum vissum for­send­um, en nú hefur samn­inga­nefnd Efl­ingar sam­þykkt að leggja fram gagntil­boð á morg­un. „Þar er komið til móts við kaup­hækk­un­ar­boð Sam­taka atvinnu­lífs­ins, með því skil­yrði að yfir­völd setji fram og standi við skatt­kerf­is­breyt­ing­ar,“ segir í frétt á vef Efl­ing­ar.

Stjórn Efl­ingar og samn­inga­nefnd sam­þykktu svo ályktun um skatta­stefnu, þar sem fyrsta skrefið fælist í þeim skatta­til­lögum sem Stefán Ólafs­son og Ind­riði H. Þor­láks­son hafa mótað í nýút­gef­inni skatta­skýrslu sinni, að því er segir í frétt Efl­ing­ar. 

Þar er lagt til að tekju­skattar á 90% almenn­ings myndu lækka, en að tekju­hæstu fimm pró­sentin myndu borga meira. Stjórnin og samn­inga­nefndin krefj­ast þess að aðgerð­irnar sem skýrslan leggur til verði inn­leiddar „strax á næstu fjár­lög­um, og að skatt­byrði tekju­lægstu hópa verði með öllu aflétt eigi síðar en árið 2021.“

Auglýsing

Ályktun stjórnar og samn­inga­nefndar er svohljóð­and­i: 

„Stjórn og samn­inga­nefnd Efl­ingar – stétt­ar­fé­lags þakka Stef­áni Ólafs­syni og Ind­riða Þor­láks­syni fyrir afar vand­aða vinnu við smíði skýrsl­unnar „Sann­gjörn dreif­ing skatt­byrð­ar“ sem út kom í febr­úar 2019.

Ljóst er að til­lögur skýrsl­unnar víkja frá ítr­ustu kröfum í kröfu­gerð Efl­ingar á hendur rík­inu og fara í sumum atriðum aðrar leiðir en þar er lagt til. Engu að síður myndu til­lög­urn­ar, kæmu þær til fram­kvæmda, létta skatt­byrði lægstu launa um 40-60% pró­sent og færa skatt­kerfið veru­lega í rétt­læt­isátt. Til­lög­urnar eru fram­kvæm­an­legar á einu ári og í skýrsl­unni er að auki bent á fjölda leiða til að fjár­magna enn frek­ari lækkun skatt­byrði lægstu hópa.

Stjórn Efl­ingar – stétt­ar­fé­lags styður til­lögur skýrsl­unnar en með þeim fyr­ir­vara að þær séu ein­ungis fyrsta skref í átt­ina að því mark­miði að gera lægstu laun með öllu skatt­frjáls. Þess er kraf­ist að þær aðgerðir sem skýrslan leggur til verði inn­leiddar strax á næstu fjár­lög­um, og að skatt­byrði tekju­lægstu hópa verði með öllu aflétt eigi síðar en árið 2021.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent