Hreiðar Már og Magnús sekir í Marple-málinu

Hreiðar Már Sigurðsson og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi stjórnendur Kaupþings banka, voru í gær sakfelldir fyrir fjárdrátt í Landsrétti í Marple-málinu svokallaða. Hins vegar var refsing yfir þeim í málinu felld niður.

Kaupþing ný mynd
Auglýsing

Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, voru í Lands­rétti í gær sak­felldir fyrir hluta þeirra brota sem þeim var gefið að hafa framið í Marp­le-­mál­inu svo­kall­aða. Hreiðar Már var sak­felldur fyrir fjár­drátt og Magnús fyrir hlut­deild í fjár­drætti.

Hvor­ugum var gerð refs­ing vegna brota sinna þar sem þeir hafa náð sex ára refsi­há­marki auðg­un­ar­brota með fyrri dóm­um. Fjár­festir­inn Skúli Þor­valds­son, meintur eig­andi félags­ins Marple Hold­ing, og Guðný Arna Sveins­dótt­ir, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri Kaup­þings, voru aftur á móti sýknuð af ákær­um. Hægt er að lesa dóm­inn í heild sinni hér.

Milli­færsla á þremur millj­örðum króna

Ákært var í þremur liðum en sýknað í tveimur þeirra. Sak­fellt var í lið sem sneri að milli­færslu á þremur millj­örðum króna frá Kaup­þingi hf. til Kaup­þings í Lúx­em­borg en þaðan end­uðu pen­ing­arnir á reikn­ingi félags­ins Marple. Lands­réttur telur í dómi sínum að þótt brot Hreið­ars núna varði háa fjár­hæð sé málið fjarri því eins yfir­grips­mikið og þau brot sem hann hafi þegar verið fund­inn sekur um og ­sætt refs­ingu fyr­ir­. Lands­réttur vísar í sömu rök varð­andi nið­ur­fell­ingu á refs­ingu Magn­ús­ar, en hann var fund­inn sekur um hlut­deild í brotum Hreið­ars Más. 

Auglýsing
Magnús hafði áður hlotið fjög­urra ára og sex mán­aða dóm og bætt­ist 18 mán­aða dómur hér­aðs­dóms þar ofan á. ­Með fyrri dómum hafði Hreiðar hlotið sex ára fang­elsi fyrir fjár­mála­brot, en það er refsi­há­mark slíkra brota. Til við­bótar var honum dæmdur hegn­ing­ar­auki í dómi hér­aðs­dóms í Marp­le-­mál­in­u. 

Skúli og Guðný sýknuð af öllum ákæru­lið­um 

Fjár­festir­inn Skúli Þor­valds­son var hins vegar sýkn­aður af öll­u­m ­kröfum ákæru­valds­ins, en hann hafði verið dæmdur í sex mán­aða fang­elsi í hér­aðs­dómi. Guðný Arna ­Sveins­dótt­ir, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri bank­ans, var einnig sýknuð af ákærum um fjár­drátt og umboðs­svik, líkt og í hér­aðs­dómi. 

Lands­réttur við­ur­kennir í dóm­inum skaða­bóta­skyldu bæð­i ­Magn­úsar og Hreið­ars Más gagn­vart ­Kaup­þingi ehf. vegna tjóns sem ­gat hlot­ist af hátt­semi þeirra. Hreiðar Már og Magn­ús þurfa að greiða þriðj­ung málsvarn­ar­launa verj­enda sinna í hér­aði og fyrir Lands­rétti. Annar kostn­aður fellur á rík­is­sjóð. Skaða­bóta­skyldu gegn Skúla og Guð­nýju er hins vegar vísað frá dómi þar sem þau eru sýkn­uð. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent