Eru skráð félög of dýr, of ódýr eða rétt verðlögð? - Virði eigin fjár 1,4 fyrir Ísland

Algengt er að fjárfestar á alþjóðamörkuðum horfi til þess hvernig markaðsvirði félaga sé miðað við eigið fé. Þetta er einungis einn mælikvarði af mörgum, en hann gefur vísbendingu um hvort verðþróun er eðlileg hjá skráðum félögum.

Kauphöll 25.09.2017 eftir birgi ísleif
Auglýsing

Virði þeirra átján félaga sem skráð eru á aðal­l­ista Nas­daq kaup­hallar Íslands um þessar mundir er nú 955,3 millj­arðar króna en bók­fært eigið fé, miðað við nýj­ustu upp­lýs­ing­ar, er 659,7 millj­arðar króna. Þetta þýðir að verð­mið­inn á bók­færðu eigin fé (mis­munur eigna og skulda) íslenskra fyr­ir­tækja, sam­an­lagt, er 1,4 sinnum eigið féð þessi miss­er­in. 

Félögin á íslenska markaðnum, og eigin fjár staða þeirra og núverandi markaðsvirði.Algengur mæli­kvarði á mark­aðsvirði fyr­ir­tækja er að meta mark­aðsvirði þeirra út frá eig­in­fjár­stöðu þeirra. Þessi verð­miði, 1,4, telst frekar hóf­samur í alþjóð­legum sam­an­burði, en þó þarf að taka til­lit til þess fyr­ir­vara, að þetta er ein­ungis einn mæli­kvarði af mörgum sem hægt er að nota til að leggja mat á virði fyr­ir­tækja. 

Þegar kemur að íslenska mark­aðnum á almenn­ingur mikið und­ir, enda eiga íslenskir líf­eyr­is­sjóðir stóran hlutaf af hlutafé skráðra félaga, eða á bil­inu 40 til 50 pró­sent. Það er upp­hæð sem nemur 381,9 til 477,4 millj­örðum króna, miðað við mark­aðsvirðið um þessar mund­ir. 

Auglýsing

Heild­ar­eignir íslenskra líf­eyr­is­sjóða námu 4.230 millj­örðum króna í lok des­em­ber og þar af voru íslenskar eign­ir, einkum í verð­bréf­um, 3.155 millj­örðum króna. Sam­tals voru inn­lend útlán og mark­aðs­verð­bréf - þar á meðal skráð hluta­bréf - 2.885 millj­arðar króna. 

Hvað sem öðru líð­ur, þá eru tölu­verðir hags­munir undir fyrir almenn­ing í land­inu, þegar kemur að hinum skráða mark­aði þar sem líf­eyr­is­sparn­aður lands­manna er að nokkuð stórum hluta í þessum eign­um, og þær mynda stofn­inn, ásamt öðrum eign­um, að baki útgreiðslum á líf­eyri lands­manna. 

Ódýrasta félagið á íslenska mark­aðn­um, sé horft til fyrr­nefnds mæli­kvarða, er Icelandair en mark­aðsvirði þess nemur 0,72 sinnum eigin fé félags­ins. Mark­aðsvirði þess er um 41 millj­arður þessi miss­er­in, en bók­fært eigið fé þess er 56,5 millj­arð­ar. Þar á eftir kemur fast­eigna­fé­lagið Heima­vell­ir, en mark­aðsvirði þess félag nemur 0,74 sinnum eigið fé. Það er að eigið fé félags­ins er 18,8 millj­arðar króna en mark­aðsvirðið 13,9 millj­arð­ar. 

Arion banki kemur svo þar á eftir með tæp­lega 0,75 sinnum eigið féð, en það er 200,9 millj­arðar um þessar mundir og mark­aðsvirðið 149,9 millj­arð­ar.

Lang­sam­lega verð­mætasta félagið á mark­aðnum er Marel en virði þess er nú 313,6 millj­arðar króna. Það er upp­hæð sem nemur 5,4 sinnum bók­fært eigið fé félags­ins sem er 57,7 millj­arðar króna. 

Mis­mun­andi er hvernig þessi aðferð við að verð­meta félög hentar eftir því í hvaða teg­und rekstrar félögin eru. Sé til dæmis horft til trygg­ing­ar­fé­lag­anna þriggja á mark­aði, Sjó­vá, TM og VÍS, þá eru þau öll með líkan mæli­kvarða. Sjóvar er með verð­miða upp á  1,5 sinnum eigið fé félags­ins en TM og VÍS á bil­inu 1,4 til 1,45 sinnum eigið féð. 



Félög í smá­sölu er að með­al­tali með verð­miða á þennan mæli­kvarða sem er um 1,8 sinnum eigið féð. Verð­mið­inn á Hög­um, stærsta smá­sölu­fyr­ir­tækis lands­ins, er 2,2 sinnum eigið féð um þessar mund­ir, en mark­aðsvirðið er 52,7 millj­arðar á meðan eigið féð er 23,7 millj­arð­ar. 

Festi er með verð­miða upp á 1,46 sinnum eigið féð. Mark­aðsvirðið er 37,5 millj­arðar en eigið féð 25,6 millj­arð­ar. Skelj­ungur er síðan með verð­miða upp á 1,75 sinnum eigið féð. Mark­aðsvirðið er 15,6 millj­arðar en eigið féð 8,9 millj­arð­ar. 

Upp­lýs­ingar sem miðað er við, þegar kemur að eig­in­fjár­stöðu, eru þær nýj­ustu sem hafa verið birt­ar, og miðað stöð­una eins og hún var í lok árs 2018 eða í lok þriðja árs­fjórð­ungs 2018.

Á und­an­förnum fimm árum, sem blaða­maður hefur skrá­sett þessar upp­lýs­ingar á sama tíma á hverju ári, hefur mark­aðsvirði skráðra félaga á aðal­l­ista Nas­daq kaup­hall­ar­inn­ar, verið á bil­inu 1,3 til 1,6 sinnum eigið fé þeirra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent