Rúmlega 1.800 milljarða skuldir skráðra félaga

Skuldir skráðra félaga í íslensku kauphöllinni hafa farið hækkandi að undanförnu, með aukinni tíðni á yfirtökum og sameiningum.

Peningar
Auglýsing

Skuldir skráðra félaga á aðal­l­ista kaup­hallar Íslands nema nú 1.806 millj­örðum króna, sem er upp­hæð sem nemur 2,4 sinnum eigið fé þeirra. Það er skuld­setn­ing sem telst frekar í lægri kant­in­um, sé horft til skráðra félaga erlend­is, en algengt er að hlut­fallið sé jafn­vel á bil­inu 4 til 5 sinnum eigið fé, þegar horft er til með­al­tala skráðra félaga í stærri kaup­höll­u­m. 

Skuldahlutfall, miðað við eigið fé, hjá félögunum á markaði.Það félag sem er með mestar skuldir á aðal­l­ist­anum er Arion banki, enda sker hann sig algjör­lega frá öðrum fyr­ir­tækjum sem eini skráði bank­inn á mark­aði, þar sem stór hluti af efna­hagnum er tengdur skuld­bind­ingum við fólk vegna inn­lána. 

Með til­komu Arion banka á mark­að­inn juk­ust skuld­irnar mik­ið, þegar horft er til þessa mæli­kvarða, þar sem skuld­setn­ing er metin sem hlut­fall af eigin fé. Að sama skapi er ekk­ert félag á íslenska mark­aðnum með meira eigið fé, en það var 200,9 millj­arðar króna í lok árs í fyrra.

Auglýsing

Eins og greint var frá á vef Kjarn­ans á dög­unum, þá nemur mark­aðsvirði skráðra íslenskra félaga, miðað við stöð­una eins og hún var um miðjan mán­uð­inn, um 1,4 sinnum eigið þeirra. Það telst fremur lágt verð í alþjóð­legum sam­an­burði, en á síð­ustu fimm árum hefur þetta hlut­fall sveifl­ast frá 1,3 til 1,6 sinnum eigið fé. 

Blaða­maður hefur safnað gögnum um þennan mæli­kvarða á rekstur skráðu félag­anna fyrir und­an­farin fimm ár og upp­fært í byrjun árs ár hver, en algengt er að alþjóð­legir fjár­festar meti hluta­bréfa­mark­aði ein­stakra ríkja meðal ann­ars eftir því hvernig mark­aðsvirðið er, miðað við eigið fé fyr­ir­tækj­anna í heild, og síðan hvernig skuld­setn­ing fyr­ir­tækj­anna þró­ast í hlut­falli við eigið fé. 

Mis­jafnt er hvaða mæli­kvarðar eru skoð­aðir við mat á þróun mála, ekki síst þar sem mis­mun­andi rekstr­ar­við­mið geta verið fyrir fyr­ir­tæki, eftir því í hvaða geirum atvinnu­lífs­ins þau starfa. 

Lang­verð­mætasta félagið í kaup­höll­inni er Mar­el, en mark­aðsvirði þess er nú komið í 322,2 millj­arða króna. Það félag er með næst mestu skuld­irnar af félög­unum í kaup­höll­inni, eða rúm­lega 135 millj­arða króna. 

Íslenskur almenn­ingur á mikið undir því að rekstur skráðra félaga gangi vel, en íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eiga á bil­inu 40 til 50 pró­sent af hlutfé félag­anna í íslensku kaup­höll­inni.

Heild­­ar­­eign­ir íslenskra líf­eyr­is­­sjóða námu 4.230 millj­­örðum króna í lok des­em­ber og þar af námu íslenskar eign­ir, einkum í verð­bréf­um, 3.155 millj­­örðum króna. Sam­tals voru inn­­­lend útlán og mark­aðs­verð­bréf - þar á meðal skráð hluta­bréf - 2.885 millj­­arðar króna. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent