Rúmlega helmingur landsmanna andvígur veggjöldum

Rúmur helmingur landsmanna eða 52 prósent, sagðist andvígur innheimtu veggjalda en um þriðjungur sagðist hlynntur. Stuðningsfólk Miðflokksins, Flokks fólksins og Pírata var líklegast til að vera andvígt innheimtu veggjalda.

rangarvallasysla_14357160377_o.original (2).jpg
Auglýsing

Rúm­lega helm­ingur lands­manna kveðst and­vígur inn­heimtu veggjalda til að standa straum af rekstri þjóð­vega á Íslandi en um þriðj­ungur er hlynnt­ur, sam­kvæmt nýrri könnun MMR. Jákvæðni gagn­vart veggjöldum jókst með auknum aldri og konur reynd­ust jákvæð­ari en karlar gagn­vart veggjöld­um. ­Stuðn­ings­fólk Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Vinstri grænna og Við­reisnar reynd­ust lík­leg­ust til að segj­ast fylgj­andi veggjöldum en stuðn­ings­fólk Mið­flokks­ins ólík­leg­ust. Þá voru stuðn­ings­fólk Mið­flokks­ins, Flokks fólks­ins og Pírata lík­leg­ust til að segj­ast and­víg inn­heimtu veggjalda

Sjálf­stæð­is­menn skipt um skoðun

Mynd: MMRKönn­unin var fram­kvæmd dag­ana 18. til 28. jan­úar 2019 en ekki má sjá miklar breyt­ingar á afstöðu lands­manna frá síð­ustu könnun MMR í maí 2018. Nú kváð­ust 34 pró­sent svar­enda mjög and­víg slíkum veggjöld­um, 18 pró­sent frekar and­víg, 21 pró­sent frekar fylgj­andi og 11 pró­sent mjög fylgj­andi. Þá kváð­ust 17 pró­sent hvorki fylgj­andi né and­víg inn­heimtu veggjalda. 

Í grein­ingu MMR segir að þegar litið sé til breyt­inga nið­ur­staðna frá fyrri könn­unum má sjá hvernig afstaða fólks til veggjalda hefur breyst eftir flokkslínum eftir því sem liðið hefur á umræð­una. Má í því sam­bandi nefna að í jan­úar 2011, þegar Vinstri græn og Sam­fylk­ing sátu í rík­is­stjórn, mæld­ist mest and­staða meðal Sjálf­stæð­is­manna þegar spurt var hvort að nýta ætti veggjöld til að standa undir nýfram­kvæmdum í sam­göngu­málum og sögð­ust ekki nema 11 pró­sent Sjálf­stæð­is­fólks fylgj­andi veggjöld­um. Í maí 2017 sögð­ust hins vegar 32 pró­sent Sjálf­stæð­is­manna vera hlynnt því að veggjöld stæðu undir rekstri þjóð­vega á Íslandi, í apríl 2018 var hlut­fallið komið upp í 45 pró­sent og í dag mælist það 49 pró­sent

Auglýsing

Stuðn­ings­fólk Mið­flokks­ins, Flokks fólks­ins og Pírata lík­leg­ust til að vera and­víg veggjöldum

Stuðn­ings­fólk Sjálf­stæð­is­flokks­ins, 49 pró­sent, Vinstri grænna, 44 pró­sent og Við­reisna, 44 pró­sent reynd­ust lík­leg­ust til að segj­ast fylgj­andi veggjöldum en stuðn­ings­fólk Mið­flokks­ins ólík­leg­ust 14 pró­sent. Þá voru stuðn­ings­fólk Mið­flokks­ins 73 pró­sent, Flokks fólks­ins 61 pró­sent og Pírata 59 pró­sent lík­leg­ust til að segj­ast and­víg inn­heimtu veggjalda en 65 pró­sent stuðn­ings­fólks Mið­flokks og 61 pró­sent stuðn­ings­fólks Flokks fólks­ins kváð­ust mjög and­víg.

Mynd:MMR

Jákvæðni gagn­vart veggjöldum jókst með auknum aldri

Konur reynd­ust jákvæð­ari gagn­vart veggjöldum en karlar en 33 pró­sent kvenna kváð­ust fylgj­andi inn­heimtu veggjalda til að standa straum af rekstri þjóð­vega á Íslandi, sam­an­borið við 29 pró­sent karla. Karlar voru hins vegar lík­legri til að segj­ast and­vígir inn­heimtu slíkra gjalda, 54 pró­sent heldur en konur 49 pró­sent. Jákvæðni gagn­vart veggjöldum jókst með auknum aldri en 42 pró­sent svar­enda í elsta ald­urs­hópi kváð­ust fylgj­andi inn­heimtu veggjalda, sam­an­borið við 36 pró­sent þeirra á aldr­inum 50 til 67 ára og 27 pró­sent þeirra undir fimm­tugu. Lít­ill munur var á afstöðu svar­enda eftir búsetu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent