Breytingar á barnalögum og lögum er varða skipta búsetu og meðlag kynntar

Breytingarnar eru fyrst og fremst tvíþættar. Annars vegar er um að ræða breytingar sem snúa að skiptri búsetu barns og réttaráhrifum þess og hins vegar á ákvæðum er varða framfærslu barna og meðlag.

Börn að leik.
Börn að leik.
Auglýsing

Dóms­mála­ráðu­neytið hefur kynnt til sam­ráðs drög að frum­varpi til breyt­inga á barna­lögum og fleiri lögum sem varða skipta búsetu og með­lag en þau má finna inn á sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Umsagn­ar­frestur er til 4. mars næst­kom­andi.

Þær breyt­ingar sem lagðar eru til á barna­lögum snúa að því að lög­festa ákvæði um heim­ild for­eldra til þess að semja um skipta búsetu barns og umfangs­miklar breyt­ingar á ákvæðum lag­anna um fram­færslu barns og með­lag.

Auk þess eru lagðar til breyt­ingar á öðrum lög­um, sem heyra undir mis­mun­andi ráðu­neyti, og snúa að því að ná fram til­teknum rétt­ar­á­hrifum sem tengj­ast breyt­ingum á barna­lögum um skipta búsetu barns auk breyt­inga á ákvæðum um með­lag.

Auglýsing

Aðstöðu­munur for­eldra þó nokkur

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu kemur fram að miklar breyt­ingar hafi orðið á við­horf­um, stöðu for­eldra og ábyrgð á umönnun og upp­eldi barna á und­an­förnum ára­tug­um. Því hafi verið haldið fram að aðstöðu­munur for­eldra, sem kjósa að ala upp börn sín saman án þess þó að búa sam­an, sé þó nokk­ur. Þá hafi verið bent á að núver­andi með­lags­kerfi hafi ekki tekið nægi­lega mikið mið af breyt­ingum í sam­fé­lag­inu eða þróun í barna­rétti, en víða hafa verið gerðar breyt­ingar á lög­gjöf sem snýr að með­lagi og sé þá sér­stak­lega horft til hinna Norð­ur­land­anna.

„Þær breyt­ingar sem lagðar eru til í frum­varpi þessu er snúa að barna­lögum eru fyrst og fremst tví­þætt­ar. Ann­ars vegar er um að ræða breyt­ingar sem snúa að skiptri búsetu barns og rétt­ar­á­hrifum þess og hins vegar á ákvæðum er varða fram­færslu barna og með­lag. Auk þess eru lagðar til breyt­ingar á ýmsum öðrum lögum sem heyra undir mis­mun­andi ráðu­neyti til að ná fram til­teknum rétt­ar­á­hrifum sem tengj­ast breyt­ingum á barna­lögum um skipta búsetu barns auk breyt­inga er varða með­lag,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Mark­miðið að stuðla að sátt

Í frum­varp­inu er meðal ann­ars nýtt ákvæði um heim­ild til að semja um skipta búsetu barns, lög­bundnar for­sendur samn­inga for­eldra um for­sjá, búsetu og umgengni í við­eig­andi laga­á­kvæð­um, nýtt ákvæði um sam­tal að frum­kvæði barns, skýr­ari ákvæði um rétt barns til að tjá sig og gagn­gerar breyt­ingar á ákvæðum um fram­færslu og með­lag þar sem lögð er áhersla á aukið samn­ings­frelsi, lág­marks­fram­færslu­kostnað barns, til­lit til tekna beggja for­eldra og til­lit til umgengni.

Mark­mið með þessum nýjum ákvæðum sem heim­ila skipta búsetu barns er að stuðla að sátt og jafn­ari stöðu þeirra for­eldra sem fara sam­eig­in­lega með for­sjá barns og ákveða að ala það upp saman á tveimur heim­il­um, sam­kvæmt drög­un­um. 

Samn­ing­ur­inn gerir ríkar kröfur til for­eldra um sam­starf

Þetta nýja fyr­ir­komu­lag gerir ráð fyrir að for­eldrar geti alfarið unnið saman í öllum málum er varða barn­ið. Samn­ingur um skipta búsetu barns gerir því ríkar kröfur til for­eldra um sam­starf, virð­ingu, til­lit­semi og sveigj­an­leika. 

Ekki er gert ráð fyrir að búseta barns verði að vera nákvæm­lega jöfn á báðum heim­ilum í drögum að frum­varp­inu. Almennt skuli gera ráð fyrir því að barn búi álíka jafnt til skiptis hjá for­eldrum, en að öðru leyti sé það í höndum for­eldra að finna það fyr­ir­komu­lag sem hentar best þörfum barns­ins. For­eldrar skulu kom­ast að sam­komu­lagi um hjá hvoru þeirra barn eigi lög­heim­ili og hjá hvoru þeirra barn eigi búsetu­heim­il­i. 

Í frum­varp­inu er gert ráð fyrir að samn­ingur um skipta búsetu sé háður stað­fest­ingu sýslu­manns. Með hlið­sjón af ríkum kröfum um sam­starf for­eldra og sam­eig­in­lega ákvarð­ana­töku er ekki gert ráð fyrir að dóm­stóll geti dæmt skipta búsetu barns þegar for­eldra greinir á.

Miðað er við að eft­ir­far­andi for­sendur þurfi að vera til staðar svo sýslu­maður geti stað­fest samn­ing um skipta búsetu barns:

  • Sam­eig­in­leg for­sjá.

  • Virkt sam­starf for­eldra.

  • Sam­eig­in­leg ákvarð­ana­taka.

  • Nálægð heim­ila.

  • Sam­komu­lag um lög­heim­ili barns og búsetu­heim­ili barns.

Breyt­ingar á ákvæðum um fram­færslu barns og með­lag

Í frum­varp­inu eru lagðar til gagn­gerar breyt­ingar á ákvæðum barna­laga um fram­færslu barns og með­lag. Mark­mið með nýju með­lags­kerfi er að koma til móts við sjón­ar­mið um sam­eig­in­lega ábyrgð beggja for­eldra á fram­færslu barns, sam­stöðu for­eldra og virk­ari þátt í sam­skiptum og sam­veru með barni. Lagt er til að hverfa frá því að miða með­lag við barna­líf­eyri sem ákveð­inn er á grund­velli laga um almanna­trygg­ing­ar. 

Í frum­varp­inu er lagt til að í með­lags­úr­skurði verði lagður til grund­vallar fast­mót­aður lág­marks­fram­færslu­kostn­aður barns sem byggir á neyslu­við­mið­um. Ef með­lags­greið­andi hefur umtals­verðar tekjur er að auki gert ráð fyrir að unnt verði að úrskurða eða dæma með­lags­skylt for­eldri til að greiða aukið með­lag.

Nýtt með­lags­kerfi byggir fyrst og fremst á eft­ir­far­andi sjón­ar­mið­um:

  • Sam­eig­in­legri ábyrgð beggja for­eldra á fram­færslu barns.

  • Auknu frelsi for­eldra til að semja um með­lag.

  • Til­liti til kostn­aðar af fram­færslu barns.

  • Til­liti til tekna beggja for­eldra.

  • Til­liti til umgengni for­eldris sem barnið býr ekki hjá.

  • Til­lit tekið til barna­bóta til lög­heim­il­is­for­eldris við útreikn­ing á tekjum þess.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent