Sögulegur vitnisburður lögmanns Trumps - Kallaði hann lygara og svindlara

Michael Cohen, fyrrverandi lögmaður Donalds Trumps, mætti í vitnastúku frammi fyrir þingnefnd í Bandaríkjunum og tjáði sig um Bandaríkjaforseta.

cohen12
Auglýsing

Mich­ael Cohen, fyrr­ver­andi lög­maður Don­alds Trumps Banda­ríkja­for­seta, sagði eið­svar­inn frammi fyrir þing­nefnd Banda­ríkja­þings að Don­ald Trump væri lyg­ari, kyn­þátta­hat­ari og svindl­ari. 

Hann sagð­ist sjá eftir því að hafa starfað fyrir Trump og fram­kvæmt margt ólög­legt, og baðst afsök­unar á því að hafa logið frammi fyrir þing­nefnd­inni áður, en hann hefur hlotið dóm fyrir það og mun að öllum lík­indum hefja afplánun þriggja ára dóms í vor. 

Cohen lagði fram skjöl með yfir­lýs­ingu sem hann las upp áður en hann svar­aði spurn­ingum þing­manna, og sagð­ist geta stutt ásak­anir um að Trump hefði vitað að hann hefði verið að brjóta gegn lög­um, meðal ann­ars með því að greiða tveimur konum um 250 þús­und Banda­ríkja­dali sam­an­lagt fyrir að þegja og segja ekki frá kyn­ferð­is­legu sam­bandi þeirra við hann.

Auglýsing



Þá sagði Cohen að Trump hefði verið inn í öllum málum Trump-­sam­steypunnar þegar Cohen hefði verið þar einn yfir­manna (EVP) og að ekk­ert hefði gerst nema að hann hefði átt loka­orð­ið. Hann sagði Trump hafa lagt fram ranga papp­íra til að reyna að fá fjár­magn frá Deutsche Bank og að yfir­lit hans um skuldir og eignir væri ekki í takt við veru­leik­ann. Lagði hann fram skjöl um þetta. 



Óhætt er að segja að þing­menn Repúblik­ana hafi sótt fast að Cohen. Þeir spurði í fyrstu hvernig væri hægt að treysta orðum hans nú, í ljósi þess að hann hefði verið dæmdur fyrir að ljúga að Banda­ríkja­þingi. Cohen sagð­ist skilja það, en að hann gæti stað­fest það sem hann hefði sagt með gögn­um, og það væri ekki hann sem ætti að vera ein­blína á heldur Banda­ríkja­for­seti. Hann væri ekki maður sem hægt væri að treysta.

Þá sagði Cohen að Trump myndi svífast einskis til að ná sínu fram, og að hann hefði metið það sem sem svo að hann gæti ekki annað en varið sig og fjöl­skyldu sína, með því að segja sann­leik­ann um for­set­ann. 

Jim Jor­dan, Repúblikani í nefnd­inni sem Cohen kom fyr­ir, sagði Cohen aug­ljós­lega vera að koma fram núna til að „hefna sín á for­set­an­um“ eftir að hafa hlotið dóm. 

Þessu neit­aði Cohen, og sagð­ist ein­ungis vilja segja banda­rísku þjóð­inni frá því að for­set­inn væri óheið­ar­legur mað­ur.



Don­ald Trump, sem fundar nú með leið­toga Norð­ur­-Kóreu, Kim Jong-Un, í Víetnam, tjáði sig um vitn­is­burð Cohen á Twitter og gerði lítið úr orðum hans. Sagði hann ein­ungis hafa verið einn af mörgum lög­mönnum hans, og að hann hefði aug­ljós­lega ekki verið góð­ur. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent