Hlutabréf í Icelandair ruku upp í verði eftir hádegið

Hlutabréf í Icelandair hækkuðu um 7,5 prósent. Helsti samkeppnisaðili Icelandair, WOW air, reynir til þrautar að fá fjárfestingu frá bandaríska félaginu Indigo Partners.

Icelandair vél feb 2008
Auglýsing

Hluta­bréf í Icelandair rukku upp í verði eftir hádegið í dag, en heild­ar­við­skipti með bréf félags­ins námu 347 millj­ón­um. Mark­aðsvirði félags­ins hækk­aði um 7,52 pró­sent, mest allra félaga í kaup­höll­inni. Nemur mark­aðsvirði félags­ins nú um 40 millj­örðum króna. 

Rekstur Icelandair hefur verið þungur að und­an­förnu, og nam tap félags­ins 57 millj­ónum Banda­ríkja­dala á fjórða fjórð­ungi síð­asta árs, eða sem nemur um 6,8 millj­örðum króna. Miklar sveiflur hafa verið á mark­aðsvirði félags­ins á mark­aði frá degi til dags, und­an­farna mán­uði.

WOW air enn í við­ræðrum

Helsti sam­keppn­is­að­ili Icelandair á Íslandi, WOW air, er enn í við­ræðum við banda­ríska fjár­fest­inga­fé­lagið Indigo Partners, en búast má við því að það dragi til tíð­inda í þeim við­ræðum í dag, en frestur sem skulda­bréfa­eig­endur félags­ins gáfu til að ljúka við­ræðum rennur út um mán­að­ar­mót­in. 

Auglýsing

Vef­síðan Túristi greindi frá því í gær, að greint verði frá lokum við­ræðna og nið­ur­stöðu úr þeim, með til­kynn­ingu til kaup­hall­ar, sem síðan verður birt á vef­síðu WOW air. 

Fundað hefur verið um stöðu mála í dag, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans, en engin tíð­indi hafa borist enn. 

WOW a­ir tap­aði 33,6 millj­­ónum dala, sem jafn­­­gildir um 4,2 millj­­arði króna, á fyrstu níu mán­uðum árs­ins í fyrra. Á sama tíma­bili árið á undan nam tap félags­­ins 13,5 millj­­ónum dala, jafn­­virði tæp­­lega 1,7 millj­­arða króna miðað við núver­andi gengi.

Mark­að­ur­inn greindi frá því í gær, að for­svars­menn WOW air hafi gengið undir lok síð­ustu viku frá heild­stæðu sam­komu­lagi við leigu­sala lággjalda­flug­fé­lags­ins. Með sam­komu­lag­inu var síð­asta skil­yrð­inu sem stendur í vegi fyrir fjár­fest­ingu Indigo Partners, upp á um 9 millj­arða, í flug­fé­lag­inu full­nægt, að því er fram kom í Mark­aðn­um.

Í des­em­ber síð­ast­liðnum var um 350 starfs­mönnum WOW air sagt upp störf­um, en það var liður í hag­ræð­ingu félags­ins og end­ur­skipu­lagn­ingu, í ljósi þröngrar fjár­hags­stöðu og við­ræðna við Indigo Partners.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent