Stjórnvöld fylgjast náið með framvindunni hjá WOW air

Málefni WOW air komu til umræðu hjá ráðamönnum á ríkisstjórnarfundi í gær. Reynt verður til þrautar að ljúka fjármögnun félagsins.

wow air
Auglýsing

Flestir skulda­bréfa­eig­endur WOW air, sem lögðu félag­inu til fjár­muni í skulda­bréfa­út­boði í haust þegar staða félags­ins var orðin alvar­leg, töldu það skyn­sam­leg­ast - og í rauna það eina raun­hæfa - að veita frek­ari frest til við­ræðna við banda­ríska Indigo Partners í þeirri von að sam­komu­lag náist um fjár­fest­ingu félags­ins til WOW air fyrir 29. mars.

Stjörn­völd fylgj­ast með hverju skrefi

Stjórn­völd fylgj­ast nú náið með stöð­unni, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans, og það við um rík­is­stjórn, yfir­menn Sam­göngu­stofu, ISA­VIA og eft­ir­lits­stofn­anna í fjár­mála­kerf­inu, Seðla­bank­ans og FME. Rík­is­stjórnin átti fund seinni part­inn í gær, þar sem mál­efni er tengd­ust WOW air voru meðal ann­ars rædd, þó fund­ur­inn hafi verið boð­aður af öðru til­efn­i. 

Í ljósi þess að staða WOW air er metin fall­völt, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans, ef ekki tekst að útvega félag­inu fjár­magn á næstu miss­erum, þá hafa yfir­völd sett sig í þær stell­ingar að illa geti farið en vonir standa þó alltaf til þess að það tak­ist að tryggja fjár­mögnun félags­ins. Arion banki á tölu­verða hags­muni undir sem lán­veit­andi, en bank­inn hefur nú þegar farið illa út úr falli flug­fé­lags þegar Pri­mera Air fór í gjald­þrot í lok síð­asta árs.

Auglýsing

Ljóst er að fall WOW air gæti haft víð­tækar nei­kvæðar afleið­ingar á hag­kerfi lands­ins, eins og fram hefur komið áður, og var meðal ann­ars ein sviðs­mynd stjórn­valda, sem greind var í fyrra, á þá leið að hag­vöxtur gæti farið niður um 3 pró­sent við fall félags­ins. 

Und­an­farna mán­uði hefur þó tek­ist að vinna mik­il­vægan tíma til að end­ur­skipu­leggja stöð­una, bæði hjá Icelandair og WOW air, en félagið greip meðal ann­ars til sárs­auka­fullra aðgerða í des­em­ber þegar 350 starfs­menn misstu vinn­una hjá félag­inu í hag­ræð­ing­ar­að­gerð­um. Skúli Mog­en­sen, for­stjóri og eig­andi WOW air, sagði við það til­efni að aðgerð­irnar hefðu verið nauð­syn­legar til að styrkja fjár­hag­inn og end­ur­skipu­leggja fram­tíð­ar­stefn­una, í takt við vænt­ingar og mat Indigo Partners.

Betra að veita and­rými

Í sam­tölum Kjarn­ans við hluta af þeim sem tóku þátt í skulda­bréfút­boð­inu í sept­em­ber, hefur komið fram að það sé mat þeirra að best sé að veita eins mikið and­rými og þarf til að ljúka við­ræðum WOW air og Indigo Partners, þar sem fyrir liggi að miklir fjár­munir geti tap­ast ef allt fer á versta veg og félagið fer í þrot. 

Það er helst að óánægja hafi verið uppi hjá banda­ríska sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki Eaton Vance en það keypti skulda­bréf í útboði WOW air síð­ast­liðið haust fyrir um 10 millj­ónir evra, eða sem nemur tæp­lega 1,4 millj­arða króna. Fjallað var ítar­lega um við­skipti Eaton Vance á Íslandi og hvernig félagið hefur verið að selja eignir und­an­farin miss­eri, í umfjöllun í Mark­aðnum 16. jan­úar síð­ast­lið­inn.

Aftur við­ræður við Icelanda­ir?

Vef­síðan Túristi greindi frá því í dag að Skúli hefði sett sig í sam­band við Icelandair í vik­unni til að kanna hvort mögu­leiki væri á því að taka upp þráð­inn á nýjan leik, en ekki reynd­ist áhugi á því. Greint var frá því á mbl.is að Skúli hefði haft beint sam­band við Boga Nils Boga­son, for­stjóra Icelandair Group, en hann hefði lokað á þær. Icelandair hefur sjálft verið að glíma við þungan rekstur og tap­aði 6,8 millj­örðum króna á fjórða árs­fjórð­ungi síð­asta árs. 

Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW air.

Við­ræður WOW air og Indigo hafa staðið yfir síðan í nóv­em­ber þegar ljóst var að Icelandair ætl­aði sér ekki að kaupa WOW air. Hinn 81 árs gamli Bill Franke, stýrir félag­inu sem er með höf­uð­stöðvar í Arizona. Horft hefur verið til þess að WOW geti fengið um 9 millj­arða fjár­fest­ingu frá Indigo, að upp­fylltum skil­yrð­um.

WOW a­ir tap­aði 33,6 millj­­­­ónum dala, sem jafn­­­­­­­gildir um 4,2 millj­­­­arði króna, á fyrstu níu mán­uðum árs­ins í fyrra. Á sama tíma­bili árið á undan nam tap félags­­­­ins 13,5 millj­­­­ónum dala, jafn­­­­virði tæp­­­­lega 1,7 millj­­­­arða króna miðað við núver­andi gengi.

Mikið er í húfi fyrir íslenskt efna­hags­líf, eins og áður seg­ir, enda hefur WOW air verið í lyk­il­hlut­verki við upp­­­gang í ferða­­þjón­­ustu og efna­hags­­lífi lands­ins, á und­an­­förnum árum, og flutt til lands­ins 600 til 700 þús­und ferða­­menn á ári, með til­­heyr­andi marg­­feld­is­á­hrifum á efna­hag lands­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent