Hækkun á bifreiðarhlunnindum forstjóra Landsvirkjunar útskýrir aukinn launakostnað

Laun Harðar Arnarsonar, forstjóra Landsvirkjunar, hafa haldist óbreytt 3,2 milljónir króna á mánuði frá miðju ári 2017. Bifreiðahlunnindi hans hækkuðu hins vegar umtalsvert í fyrra. Landsvirkjun vill ekki birta sundurliðun á stjórnarlaunum.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, á ársfundi fyrirtækisins í síðustu viku.
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, á ársfundi fyrirtækisins í síðustu viku.
Auglýsing

Laun Harðar Arn­ar­son­ar, for­stjóra Lands­virkj­un­ar, hækk­uðu um 24 pró­sent milli ára sam­kvæmt þeim upp­lýs­ingum sem fram koma í árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins, úr 304 þús­und dölum í 379 þús­und dali. Ástæðan fyrir því að launa­kjörin eru gefin upp í þeim gjald­miðli er að Lands­virkjun gerir upp rekstur sinn í Banda­ríkja­döl­um, helstu við­skipta­mynt fyr­ir­tæk­is­ins.

Kjarn­inn óskaði eftir upp­lýs­ingum frá Lands­virkjun um hvað útskýrði þessa hækkun og hver mán­að­ar­launin væru umreiknuð í íslenskar krón­ur.

Í svari fyr­ir­tæk­is­ins segir að mun­ur­inn á upp­gefnum árs­launum og hlunn­indum for­stjóra milli áranna 2017 og 2018 eins og þau eru gefin upp í árs­reikn­ingnum  sé til kom­inn ann­ars vegar vegna þeirra breyt­inga sem gerðar voru á launum Harðar um mitt ár 2017, þegar ákvörðun um þau laun var færð frá kjara­ráði til stjórnar Lands­virkj­un­ar, og hins vegar vegna „breyt­inga á hlunn­inda­mati vegna bif­reið­ar“. Þá hafi verið ein­hver geng­is­munur milli ára sem hafi áhrif á launin eins og þau eru fram­sett í árs­reikn­ingn­um.

Auglýsing

Mán­að­ar­laun Harðar án hlunn­inda eru 3.207.294 krónur á mán­uði og hafa verið þannig frá miðju ári 2017, þegar þau voru hækkuð úr um tveimur millj­ónum króna á mán­uði, eða um 58 pró­sent. „Bif­reiða­hlunn­indi hafa verið hluti af starfs­kjörum for­stjóra Lands­virkj­un­ar. Bif­reiða­hlunn­indi eru metin sam­kvæmt reglum rík­is­skatt­stjóra um mat á hlunn­indum og voru árið 2018 kr. 219.668 á mán­uði. Árið 2017 voru þau metin á kr. 87.383 á mán­uði og kom breyt­ingin milli ára til vegna bif­reiða­skipta en eldri bif­reið var 13 ára göm­ul,“ segir í svari Lands­virkj­un­ar. Bif­reið­ar­hlunn­indin juk­ust því um 151 pró­sent milli ára, eða um 132.285 krónur á mán­uði. Alls námu bif­reiða­hlunn­indi Harðar 2.636.016 krónum á árinu 2018.

Laun og hlunn­indi Harðar voru því 3.426.962 krónur á mán­uði í fyrra og hækk­uðu úr 3.294.677 krónum árið áður, eða um fjögur pró­sent.

Voru að efna ráðn­ing­ar­samn­ing

Í svari Lands­virkj­unar segir að sú breyt­ing sem gerð var á launum for­stjóra Lands­virkj­unar um mitt ár 2017 hafi verið rök­studd á sínum tíma í yfir­lýs­ingu og bréfi stjórn­ar­for­manns fyrir hönd stjórnar til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. „Með breyt­ing­unni var stjórn Lands­virkj­unar að efna ráðn­ing­ar­samn­ing við for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins frá árinu 2009 eftir að laun hans voru lækkuð veru­lega með úrskurði kjara­ráðs á árinu 2010. Þáver­andi stjórn Lands­virkj­unar mót­mælti þeirri ráð­stöf­un, enda þýddi hún að fyr­ir­tæk­inu var ómögu­legt að efna ráðn­ing­ar­samn­ing við for­stjór­ann. Í bréfi þáver­andi stjórn­ar­for­manns frá 24. ágúst 2012, fyrir hönd stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins, til for­stjóra, lýsti stjórnin því yfir að hún myndi eftir því sem kostur væri leið­rétta laun- og starfs­kjör for­stjóra í sam­ræmi við upp­haf­legt efni ráðn­ing­ar­samn­ings. Til þess að efna ráðn­ing­ar­samn­ing­inn og í sam­ræmi við sam­þykkt fyrri stjórnar ákvað stjórn Lands­virkj­unar á árinu 2017 að upp­færa laun for­stjóra með hlið­sjón af launa­þróun og tók breyt­ingin gildi 1. júlí það ár.“

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sendi í síð­asta mán­uði bréf til stjórna allra rík­is­fyr­ir­tækja og óskaði eftir skýr­ingum á launa­þróun for­stjóra þeirra og hvernig sú launa­þróun rím­aði við til­mæli um að sýna hóf­semd í launa­hækk­un­um. Svar­bréf stjórn­anna hafa ekki verið birt og Kjarn­inn hefur ekki fengið þau afhent hjá ráðu­neyt­inu þrátt fyrir ítrek­aðar óskir um slíkt.

Birta ekki sund­ur­liðun á launum stjórn­ar­manna

Kjarn­inn óskaði einnig eftir því að fá upp­lýs­ingar um sund­ur­liðun á launum stjórn­ar­manna í Lands­virkjun og launum stjórna tveggja dótt­ur­fé­laga. Í árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins kom fram að laun stjórnar móð­ur­fé­lags hafi í heild verð 195 þús­und dalir í fyrra en hækkað úr 189 þús­und dölum árið áður, eða um þrjú pró­sent, og að laun stjórna tveggja dótt­ur­fé­laga hafi auk­ist úr 158 þús­und dölum í 174 þús­und dali á síð­asta ári, eða um tíu pró­sent.

Lands­virkjun varð ekki við beiðni Kjarn­ans um að birta sund­ur­liðun á launum stjórn­ar­manna. Í svari fyr­ir­tæk­is­ins við fyr­ir­spurn hans seg­ir: „Sund­ur­liðuð laun stjórn­ar­manna hafa ekki verið birt.“

Í stjórn Lands­virkj­unar sitja Jónas Þór Guð­munds­son, sem er for­maður stjórn­ar, Álf­heiður Inga­dótt­ir, Guð­finna Jóhanna Guð­munds­dótt­ir, Gunnar Tryggva­son og Jón Björn Hákon­ar­son.

Í starfs­kjara­nefnd sitja þrír stjórn­ar­menn, Jónas Þór Guð­munds­son,  Álf­heiður Inga­dóttir og Jón Björn Hákon­ar­son.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent