Hlutfall tæknimenntaðra á Íslandi verulega lágt í samanburði við Evrópuþjóðir

Mikilvægt er að fjölga þeim sem eru menntaðir á sviði raunvísinda til að takast á við miklar samfélagslegar breytingar.

stemmenntun.jpg
Auglýsing

Hlut­fall þeirra sem eru STEM-­mennt­aðir (Sci­ence, Technology, Engineer­ing, Mathemat­ics), það er á sviði vís­inda, tækni, verk­fræði og stærð­fræði, á Íslandi er óvenju­lega lágt í sam­an­burði við aðrar Evr­ópu­þjóðir og mik­il­vægt er að fjölga þeim veru­lega til að und­ir­búa Ísland betur undir kom­andi sam­fé­lags­breyt­ingar vegna tækni­breyt­inga.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu starfs­hóps stjórn­valda um Ísland og fjórðu iðn­bylt­ing­una. Hlut­fall er 16 pró­sent á Íslandi en 21 til 30 pró­sent hjá hinum Norð­ur­lönd­un­um.

Í skýrsl­unni er meðal ann­ars fjallað um hvernig mannauð­ur­inn íslenski er und­ir­bú­inn fyrir breyt­ingar sem fylgja auk­inni sjálf­virkni og inn­leið­ingu á gervi­greind. Á íslenskum vinnu­mark­aði eru um 200 þús­und ein­stak­ling­ar, en mik­ill vöxtur und­an­far­inna ára í hag­kerf­inu ekki síst verið bor­inn uppi af upp­gangi í lág­launa­starf­semi, í sam­an­burði við margar aðrar sér­fræði­grein­ar, eins og ferða­þjón­ustu og bygg­ing­ar­iðn­aði.

Auglýsing

„Segja má að mennta­kerfið sé að vissu leyti límið sem bindur þetta allt sam­an. Þar er að mörgu að huga þegar horft er fram á á veg­inn. Í dag eru STEM-­mennt­aðir (Sci­ence, Technology, Engineer­ing, Mathemat­ics) sem hlut­fall af háskóla­mennt­uðum hér á landi aðeins 16%, sem er mjög lágt hlut­fall í sam­an­burði við önnur Evr­ópu­ríki. Mik­il­vægt er því að auka fjölda þeirra sem eru með menntun á sviði raun­greina svo Ísland verði betur í stakk búið til að mæta þeim tækni­breyt­ingum sem spáð er að verði  á næstu 15–20 árum,“ segir í skýrsl­unn­i. 

Mikil þörf á því að skoða mennta­kerfið sér­stak­lega og hvernig það getur hjálpað til við að takast á við breyt­ing­arnar sem framundan eru. 

„Þá þarf að líta til fleiri þátta þegar kemur að menntun eins og t.d. hvernig er kennt, upp­bygg­ingar þver­fag­legs náms, auk­ins vægis verk­legra faga og list­greina, sem og bættrar líð­anar barna og ungs fólks í námi.  Í þessu sam­hengi er rétt að benda á að World Economic Forum spurði þús­undir for­stjóra árið 2015 hvaða færni þeir teldu að starfs­fólk þyrfti að búa yfir árið 2020. Nið­ur­stöð­urn­ar voru um margt for­vitni­leg­ar. Hástökkvari könn­un­ar­innar var sköpun (e. creati­vity), sam­an­borið við sam­bæri­lega könnun sem gerð var 5 árum áður, og til­finn­inga­greind kom ný inn á þennan lista. 23 Vægi gagn­rýn­innar hugs­unar eykst enda sú hæfni sífellt mik­il­væg­ari í heimi þar sem magn upp­lýs­inga og áreiti eykst með sam­fé­lags­miðlum og öðrum upp­lýs­inga­veit­um. Færni fólks til að að leysa flókin verk­efni trónir á toppnum og er dæmi um færni sem mun skipta miklu máli í fjórðu iðn­bylt­ing­unn­i,“ segir í skýrsl­unn­i. 

Í starfs­hópnum sem tók skýrsl­una saman voru Dr. Hug­inn Freyr Þor­­steins­­son, for­­mað­­ur, Lilja Dögg Jóns­dótt­ir, Guð­­mundur Jóns­­son, Ragn­heiður H. Magn­ús­dóttir og Krist­inn R. Þór­is­­son.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent