Ásthildur: Markmiðið að styðja við áframhaldandi vöxt og virðisaukningu

Stjórnarformaður Marels segir fyrirtækið hafa náð miklum árangri fyrra.

Marel Mynd: Marel
Auglýsing

Ást­hildur Othars­dótt­ir, stjórn­ar­for­maður Mar­els, segir að hlut­falls­leg stærð fyr­ir­tæk­is­ins á íslenska hluta­bréfa­mark­aðnum sé „um­hugs­un­ar­efn­i“, en eins og greint var frá á vef Kjarn­ans í dag, þá hefur verið ákveðið að stefna að skrán­ingu hluta­bréfa félags­ins á Euro­next mark­aðnum í Amster­dam. Að lokum stóð valið milli kaup­halla Amster­dam og Kaup­manna­höfn.

Mark­aðsvirði Mar­els hefur hækkað mikið á und­an­förnu ári og er það nú 335 millj­arðar króna, eftir um 35 pró­sent hækkun frá ára­mót­um. Starfs­menn eru um sex þús­und á heims­vísu.

Aðal­fundur félags­ins fór fram í dag í höf­uð­stöðvum félags­ins í Garða­bæ.

Auglýsing

„Eftir ítar­lega grein­ingu á mögu­legum skrán­ing­ar­kostum fyrir félagið hefur stjórn Marel ákveðið að stefna að skrán­ingu hluta­bréfa Marel á Euro­next í Amster­dam sam­hliða skrán­ingu á Íslandi. Mark­miðið með tví­hliða skrán­ingu er að auka selj­an­leika hluta­bréf­anna og styðja við frek­ari vöxt og virð­is­aukn­ingu fyrir alla hlut­hafa félags­ins,“ segir Ást­hildur í til­kyn­inngu.

Ásthildur Margrét Otharsdóttir.Eins og til­kynnt var á aðal­fundi í mars 2018, voru óháðir alþjóð­legir ráð­gjaf­ar, STJ Advis­ors, fengnir til að greina mögu­lega skrán­ing­ar­kosti fyrir félagið til að styðja við stefnu þess og áform um virð­is­sköpun fyrir hlut­hafa. „Skrán­ing hluta­bréfa Marel í Kaup­höll­inni 1992 var gæfu­spor til frek­ari fram­þró­unar og vaxtar félags­ins, en ljóst er að hlut­falls­leg stærð Marel á íslenskum verð­bréfa­mark­aði er umhugs­un­ar­efni. Í því ferli að velja kaup­höll hefur Marel lagt áherslu á hags­muni núver­andi og verð­andi hlut­hafa Marel og að við­skipta- og upp­gjörs­ferli sé hnökra­laust á milli íslenska mark­að­ar­ins og þeirra tveggja kaup­halla sem valið stóð á milli. Litið var til fjölda við­miða við val á kaup­höll, þar á meðal við­miða sem lúta að rekstri Marel sér­stak­lega, svo sem umfangs starf­semi í við­kom­andi landi, upp­gjörs- og við­skipta­gjald­mið­ils, auk þátt­töku alþjóð­legra fjár­festa á við­kom­andi mark­aði. Það er mat stjórnar og stjórn­enda Marel að Euro­next kaup­höllin í Amster­dam hafi komið sterkast út í þeim sam­an­burði og mun Marel halda áram að vinna náið með Euro­next í Amster­dam eftir því sem félagið fær­ist nær skrán­ing­u,“ segir Ást­hild­ur. 

Hún segir stjórn og stjórn­endur vera stolt af árangri félags­ins á árinu 2018. „Við erum afar stolt af árangri félags­ins á árinu 2018. Skil­virkni í rekstri og öguð fjár­fest­ing í innviðum eru for­senda þess að geta þjón­u­stað við­skipta­vini og aðra hag­að­ila með skil­virkum hætti og skilað verð­mætum til hlut­hafa. Á árinu 2018 voru greiddar um 29 milljón evrur (3,6 millj­arðar kr.) í arð til hlut­hafa vegna rekstr­ar­árs­ins 2017. Í sam­ræmi við mark­mið félags­ins um fjár­hags­skipan og arð­greiðslu­stefnu  hefur stjórn Marel lagt til við aðal­fund 2019 að hlut­hafar fái greiddan arð fyrir rekstr­ar­árið 2018 sem nemur 5,57 evru sentum á hlut. Miðað við áætl­aða útistand­andi hluti á aðal­fund­ar­degi nemur arð­ur­inn um 37 milljón evrum (5,0 millj­arðar króna) eða um 30% af hagn­aði rekstr­ar­árs­ins 2018, sam­an­borið við arð­greiðslu upp á um 29 millj­ónir evra á síð­asta ári,“ segir Ást­hildur í til­kynn­ingu.

Í stjórn Mar­els voru end­ur­kjör­in, auk Ást­hild­ar, Dr. Ólafur Steinn Guð­munds­son, Ást­valdur Jóhanns­son, Mar­grét Jóns­dótt­ir, Arnar Þór Más­son, og Ann Eliza­beth Savage. 

Helgi Magn­ús­son gaf ekki kost á sér til áfram­hald­andi stjórn­ar­setu. Hann hefur setið í stjórn Marel í 14 ár og var honum þakkað fyrir vel unnin störf í þágu Mar­el.  

Ton van der Laan kemur nýr inn í stjórn Mar­el. Ton er fæddur árið 1953 og er búsettur í Hollandi. Hann situr í stjórn Vion Foods, Royal de Heus, Dümmen Orange og Rain­for­est Alli­ance. Áður var hann for­stjóri Nidera Capi­tal í Hollandi og Argent­ínu, fram­kvæmda­stjóri fyrir dýra­af­urðir hjá Car­g­ill í Banda­ríkj­unum og for­stjóri Provimi í Hollandi. Fyrir það var hann í ýmsum stjórn­un­ar­stöðum hjá Uni­lever í um 22 ár. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent