Mikilvægt að finna fyrir breiðri samstöðu um mikilvægi kennarastarfsins

Kvika banki hyggst styrkja kennaranema um 15 milljónir á ári næstu þrjú ár.

armannþorvalds.jpg
Auglýsing

Kvika banki og mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið hafa und­ir­ritað sam­starfs­samn­ing vegna stofn­unar hvatn­ing­ar­sjóðs, en hann mun styrkja kenn­ara­nema um 15 millj­ónir á ári næstu þrjú árin. 

Lilja D. Alfreðs­dótt­ir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, fagnar stofnun sjóðs­ins og segir að það sé ánægju­legt að finna fyrir þeirri breiðu sam­stöðu sem sé að mynd­ast í atvinnu­líf­inu um mik­il­vægi kenn­ara­náms.

Mark­mið með nýjum hvatn­ing­ar­sjóði kenn­ara­nema er að efla umræðu og vit­und um mik­il­vægi kenn­ara­náms. Kvika banki hefur frum­kvæði að stofnun sjóðs­ins og vill með því stuðla að jákvæðum lang­tíma­á­hrifum á sam­fé­lag­ið. Lilja Alfreðs­dóttir og Ármann Þor­valds­son for­stjóri Kviku banka skrif­uðu í dag undir sam­starfs­samn­ing vegna hvatn­ing­ar­sjóðs­ins, en hann mun veita sam­tals 15 millj­ónum króna í styrki til kenn­ara­nema á næstu þremur árum.

Auglýsing

„Öflugt mennta­kerfi er for­senda fram­fara. Það er ánægju­legt að finna þá breiðu sam­stöðu sem er að skap­ast í atvinnu­líf­inu um mik­il­vægi kenn­ara­starfs­ins og aukna við­ur­kenn­ingu á því. Ég fagna fram­taki Kviku, hvatar sem þessi skipta miklu máli. Það er sam­fé­lags­legt verk­efni að efla mennta­kerfið okkar og við þurfum að nálg­ast það úr ólíkum átt­um. Nú vinnum við ötul­lega að því að fjölga kenn­ara­nemum og auka nýliðun í kenn­ara­stétt­inni og til­koma þessa nýja sjóðs styður sann­ar­lega við þær aðgerð­ir,“ sagði Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. 

„Það er yfir­lýst stefna Kviku að hafa jákvæð lang­tíma­á­hrif á sam­fé­lagið með sér­staka áherslu á mennta­mál. Í sam­ræmi við það setti bank­inn í fyrra á lagg­irnar hvatn­ing­ar­sjóð fyrir iðn­nema sem hlotið hefur mjög jákvæðar und­ir­tekt­ir. Mik­il­vægi kenn­ara­náms fyrir sam­fé­lagið er ótví­rætt og mark­miðið með Hvatn­ing­ar­sjóði kenn­ara­nema er að hvetja öfl­uga ein­stak­linga til þess að velja nám í mennta­vís­indum og efla vit­und um mik­il­vægi kenn­ara­náms. Við erum mjög ánægð að hafa fengið mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið í sam­starf við okk­ur, enda fellur sjóð­ur­inn vel að nýkynntum áherslum ráðu­neyt­is­ins,“ sagði Ármann Þor­valds­son for­stjóri Kviku.

Allir sem hyggj­ast hefja kenn­ara­nám á kom­andi vetri geta sótt um styrk. 

Kvika aug­lýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á tíma­bil­inu mars til maí ár hvert vegna kom­andi skóla­árs. Sjóð­ur­inn mun veita styrki að fjár­hæð 5 millj­ónum kr. árlega næstu þrjú árin. Heild­ar­styrkir munu því nema 15 millj­ónum kr. á tíma­bil­inu 2019-2022. 

Ráð­gert er að styrkupp­hæðir nemi 500.000 til 1.000.000 kr. og að sjö umsækj­endur hljóti styrk ár hvert. Úthlut­un­ar­nefnd skipuð full­trúum til­nefndum af Kviku og mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu fer yfir umsóknir og tekur ákvörðun um styrk­veit­ing­ar. Ávallt verður litið til kynja­hlut­falla og leit­ast við að hafa þau jöfn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent