Misboðið fyrir hönd þeirra borgara sem hlut eiga að máli

Umboðsmaður Alþingis sat fyrir svörum á opnum fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í morgun. Hann fjallaði m.a. um bréf hans til forsætisráðherra vegna viðbragða Seðlabanka Íslands.

Tryggvi Gunnarsson
Tryggvi Gunnarsson
Auglýsing

Tryggvi Gunn­ars­son, umboðs­maður Alþing­is, seg­ist mis­boðið fyrir hönd þeirra borg­ara sem hlut eiga að máli vegna Sam­herj­a­máls­ins svo­kall­aðs en hann kom fyrir stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis í morg­un. Umfjöll­un­ar­efni fund­ar­ins var lög um gjald­eyr­is­mál og stjórn­sýslu Seðla­banka Íslands.

Umboðs­maður sendi Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra bréf þann 4. mars síð­ast­lið­inn ­sem birt­ist á vef­síðu hans í dag.

Í bréfi sínu til ráð­herra beinir hann sjónum sínum að bréfi Más Guð­munds­sonar seðla­banka­stjóra til Katrínar sem hann sendi þann 29. jan­úar síð­ast­lið­inn. Í frétt um bréfið á vef­síðu ráðu­neyt­is­ins segir að þar sé fjallað um þá lær­dóma sem að hans mati beri að draga af reynsl­unni við fram­kvæmd gjald­eyr­is­eft­ir­lits á vegum Seðla­banka Íslands í tengslum við áform­aða sam­ein­ingu seðla­bank­ans og Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Fram kemur að í bréf­inu sé varpað ljósi á sum þeirra atriða sem hafi verið í umræðu í fram­haldi af áliti hans sem birt var þann 25. jan­úar síð­ast­lið­inn og grein­ar­gerð banka­ráðs seðla­bank­ans sem birt var 26. febr­úar síð­ast­lið­inn.

Auglýsing

Tryggvi telur að til­tekin ummæli í bréfi seðla­banka­stjóra og upp­lýs­ingar sem honum hafi borist eftir opin­bera birt­ingu bréfs­ins séu honum til­efni til þess að rita bréfið til Katrín­ar. 

Hann vekur athygli á orðum seðla­banka­stjóra í bréfi hans til for­sæt­is­ráð­herr­ans um mark­mið með fram­kvæmd fjár­magns­haft­anna: „Má í því sam­bandi ekki gleyma því að aðgerðir Seðla­bank­ans höfðu tölu­verð fæl­ing­ar­á­hrif. Þetta mátti t.d. glögg­lega sjá eftir hús­leit­ina hjá Sam­herja þó svo ekki hafi verið hugsað út í það fyr­ir­fram, enda ekki lög­mætt sjón­ar­mið í þessu sam­heng­i,“ sagði Már í bréfi sín­u. 

Veltir til­gangi upp­lýs­inga­gjafar fyrir sér

­Tryggvi seg­ist hafa fengið nán­ari upp­lýs­ingar um sam­skipti starfs­manna Seðla­banka Íslands og Rík­is­út­varps­ins í aðdrag­anda hús­leit­ar­innar eftir að greint hafi verið frá bréfi seðla­banka­stjóra á vef bank­ans. „Þessar upp­lýs­ingar gefa að mínu áliti til­efni til að kallað verði eftir hver var í raun hlutur starfs­manna gjald­eyr­is­eft­ir­lits Seðla­bank­ans í að upp­lýsa starfs­mann Rík­is­út­varps­ins um hina fyr­ir­hug­uðu hús­leit. Þá tel ég þörf á að ganga eftir því við Seðla­banka Íslands hver hafi tekið ákvörðun um að veita upp­lýs­ingar og hver hafi verið aðkoma og vit­neskja yfir­stjórnar bank­ans um þessi sam­skipti við Rík­is­út­varp­ið,“ segir hann í bréf­in­u. 

Hann veltir því einnig fyrir sér hvort að baki þess­ari upp­lýs­inga­gjöf hafi legið sjón­ar­mið af því tagi sem seðla­banka­stjóri lýsir í bréfi sínu til Katrínar og vitnað var til hér að fram­an.

Tryggvi segir að orða­lag Más veki upp álita­mál hvaða til­gangur hafi í raun búið að baki því að upp­lýs­ingar um hús­leit­ina og birta og dreifa frétt um hana með þeim hætti sem gert var í þessu máli.

Í bréf­inu til Katrínar óskar hann eftir upp­lýs­ingum frá ráðu­neyti for­sæt­is­ráð­herra um hvort fyr­ir­hugað sé að þau atriði sem fjallað er um í bréf­inu komi til athug­unar við boð­aða athugun ráðu­neyt­is­ins. „Þetta geri ég m.a. til að geta að fengnu svari ráðu­neyt­is­ins tekið afstöðu til þess hvernig ég bregst við í til­efni af þeim upp­lýs­ingum sem mér hafa verið látnar í té undir þeirri vernd sem 18. gr. laga nr. 85/1997 hljóða um,“ segir hann. 

Hann óskar eftir svari við bréf­inu sem allra fyrst eða eigi síður en 20. mars næst­kom­andi.

Hægt er að lesa bréfið í heild sinni hér. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent