Samruni Kviku banka og GAMMA samþykktur

Samkeppniseftirlitið hefur lokið við skoðun og telur ekki tilefni til íhlutunar.

armann-orvaldsson_10054475105_o.jpg
Auglýsing

Nið­ur­staða Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins er sú að ekki sé til­efni til íhlut­unar vegna sam­runa Kviku banka og GAMMA og mun því sam­runn­inn eiga sér stað, þar sem öllum fyr­ir­vörum verður aflétt. 

Kvika banki keypti allt hlutafé í GAMMA Capi­­tal Mana­­gement á tæp­­lega 2,9 millj­­arða króna, og var til­kynnt um við­skiptin til kaup­hall­ar, en fyr­ir­var­inn var sá að Sam­keppn­is­eft­ir­litið myndi veita sam­þykki fyrir sam­run­an­um.

Miðað við bók­­fært virði árang­­urstengdra þókn­ana hjá GAMMA í lok júní 2018 nemur kaup­verðið þó 2,4 millj­­örðum króna. Kaup­verðið er greitt með 839 millj­­ónum króna í reið­u­­fé, með hlut­­deild­­ar­­skír­teinum í sjóðum GAMMA upp á 535 millj­­ónir króna auk þess sem árang­­urstengdar greiðslur sem metnar eru á 1.032 millj­­ónir króna verða greiddar þegar lang­­tíma­­kröfur á sjóði GAMMA inn­­heimt­ast, að því er fram kom í til­kynn­ingu vegna við­skipt­anna.

Auglýsing

„Kvika hefur starfs­leyfi sem við­skipta­banki en meg­in­á­hersla bank­ans er á eigna­stýr­ingu og fjár­fest­ing­ar­banka­starf­semi (þ.e. mark­aðsvið­skipti, fyr­ir­tækja­ráð­gjöf og lána­starf­sem­i). Gamma er rekstr­ar­fé­lag verð­bréfa­sjóða í skiln­ingi laga nr. 161/2002 um fjár­mála­fyr­ir­tæki. Starf­semi Gamma ein­skorð­ast að mestu við eigna­stýr­ingu en einnig sinnir félagið fyr­ir­tækja­ráð­gjöf. Með hlið­sjón af rekstr­ar­starf­semi sam­runa­að­ila tekur sam­runi þessi nær ein­göngu til eigna­stýr­ingar þar sem umsvif Gamma á öðrum sviðum fjár­mála­þjón­ustu sem Kvika býður einnig upp á, eru afar lít­il.

Að und­an­geng­inni rann­sókn er nið­ur­staða Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins sú að ekki séu fyrir hendi vís­bend­ingar um að sam­run­inn leiði til mynd­unar eða styrk­ingar mark­aðs­ráð­andi stöðu sam­runa­að­ila á neinum mark­aði. Jafn­framt verð­ur ekki séð að sam­keppni á mörk­uðum rask­ist að öðru leyti með umtals­verðum hætt­i. 

Að því er varðar markað fyrir stýr­ingu verð­bréfa- og fjár­fest­ing­ar­sjóða (sem standa almenn­ingi til boða) hefur m.a. verið litið til þess að um er að ræða sam­runa tveggja til­tölu­lega smárra aðila á mark­aðnum og sam­þjöpp­un mark­aðs­hlut­deildar eykst til­tölu­lega lít­ið. Hvað varðar markað fyrir stýr­ingu sjóða fyrir fag­fjár­festa, þá búa sam­runa­að­ilar m.a. við öfl­uga sam­keppni frá stóru við­skipta­bönk­unum þrem­ur, kaup­enda­að­hald almennra líf­eyr­is­sjóða og ann­arra fjár­sterkra aðila, auk þess sem all­nokkur fjöldi smærri fyr­ir­tækja býður upp á stýr­ingu fyrir fag­fjár­festa. Þá hefur það þýð­ingu í þessu sam­bandi að stóru við­skipta­bank­arnir þrír eru hver um sig miklum mun stærri en sam­einað félag sam­runa­að­ila og njóta því mun meiri fjár­hags­legs styrk­leika heldur en hið sam­ein­aða félag,“ segir í til­kynn­ingu frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­in­u. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent