Drög að frumvörpum um sameiningu Seðlabankans og FME komin fram

Varaseðlabankastjórar munu hafa faglega umsjón með vinnu bankans á sínum sérsviðum.

Bjarni Benediktsson Katrín Jakobsdóttir Sigurður Ingi Jóhannsson ríkisstjórn
Auglýsing

For­sæt­is­ráðu­neyti Katrínar Jak­obs­dóttur og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti Bjarna Bendikts­sonar hafa birt drög að frum­varpi for­sæt­is­ráð­herra til laga um Seðla­banka Íslands og drög að frum­varpi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra til laga um breyt­ingar á ýmsum lögum vegna sam­ein­ingar Seðla­banka Íslands og Fjár­mála­eft­ir­lits­ins í sam­ráðs­gátt til umsagnar.

Umsagn­ar­frestur er til 18. mars.

Með frum­vörp­unum er lagt til að Seðla­banki Íslands og Fjár­mála­eft­ir­litið verði sam­einuð í eina stofn­un. 

Auglýsing

„Ekki eru lagðar til breyt­ingar á þeim verk­efnum sem eru á ábyrgð þess­ara tveggja stofn­ana sam­eig­in­lega sam­kvæmt núgild­andi lög­um. Lúta breyt­ing­arnar fremur að sam­ein­ingu verk­efna hjá einni stofnun og breyt­ingum á stjórn­skipan og fyr­ir­komu­lagi ákvarð­ana­töku, einkum í ljósi auk­ins vægis fjár­mála­stöð­ug­leika,“ segir í til­kynn­ingu stjórn­valda.

Mark­mið Seðla­bank­ans, sam­kvæmt frum­varp­inu, er að stuðla að stöð­ugu verð­lagi, fjár­mála­stöð­ug­leika og traustri og öruggri fjár­mála­starf­sem­i. 

Einn seðla­banka­stjóri og þrír vara­seðla­banka­stjórar

For­sæt­is­ráð­herra skipar seðla­banka­stjóra til fimm ára í senn, að hámarki þó tvisvar sinn­um. Þá skipar for­sæt­is­ráð­herra þrjá vara­seðla­banka­stjóra einnig til fimm ára í senn og að hámarki tvisvar sinn­um. Einn leiðir mál­efni er varða pen­inga­stefnu, einn leiðir mál­efni er varða fjár­mála­stöð­ug­leika og einn leiðir mál­efni er varða fjár­mála­eft­ir­lit. Vara­seðla­banka­stjórar fjár­mála­stöð­ug­leika og fjár­mála­eft­ir­lits eru skip­aðir eftir til­nefn­ingu fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. 

Rekstur og stjórnun Seðla­bank­ans er í höndum seðla­banka­stjóra. Hann ber ábyrgð á rekstri bank­ans og fer með ákvörð­un­ar­vald í öllum mál­efnum hans sem ekki eru öðrum fal­in. Sumar ákvarð­anir eru teknar sam­eig­in­lega af seðla­banka­stjóra og vara­seðla­banka­stjór­um. 

Ákvarð­anir um beit­ingu til­tek­inna vald­heim­ilda bank­ans eru teknar af pen­inga­stefnu­nefnd, fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd og fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd. Nefnd­irnar eru skip­aðar 5-7 full­trú­um, bæði emb­ætt­is­mönnum Seðla­bank­ans og utan­að­kom­andi sér­fræð­ingum á við­kom­andi sviði. Seðla­banka­stjóri er for­maður allra þriggja nefnda bank­ans. 

Seðlabanki Íslands og Fjármálaeftirlitið sameinast, samkvæmt nýju frumvarpi.

Vara­seðla­banka­stjórar hafa fag­lega umsjón með vinnu bank­ans á sínum sér­svið­um, segir í frum­varp­inu, og munu þeir bera ábyrgð á und­ir­bún­ingi vinnu fyrir nefndir bank­ans og sitja jafn­framt í ein­stökum nefndum hans.

Banka­ráð hefur eft­ir­lit með því að Seðla­banki Íslands starfi í sam­ræmi við þau lög sem um starf­sem­ina gilda. Í banka­ráði sitja sjö manns sem kosnir eru hlut­falls­kosn­ingu af Alþingi.

„Í frum­varpi sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra mun leggja fram sam­hliða koma fram breyt­ingar á þrjá­tíu lögum m.a. lögum um opin­bert eft­ir­lit með fjár­mála­starf­semi og lögum um greiðslu kostn­aðar við opin­bert eft­ir­lit með fjár­mála­starf­semi. Að auki eru lagðar til þær breyt­ingar á öðrum lögum um fjár­mála­starf­semi sem nauð­syn­legar eru vegna sam­ein­ingar Seðla­bank­ans og Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Af breyttu skipu­lagi Seðla­bank­ans leiðir að lagt er til að kerf­is­á­hættu­nefnd verði lögð niður og að hlut­verki fjár­mála­stöð­ug­leika­ráðs verði breytt. Þær breyt­ingar sem lagðar eru til í þessum frum­vörpum eru að veru­legu leyti byggðar á nið­ur­stöðum þeirra sér­fræð­inga sem und­an­farin ár hafa unnið skýrslur að beiðni stjórn­valda um besta fyr­ir­komu­lag stjórn­skip­unar pen­inga­mála, fjár­mála­stöð­ug­leika og fjár­mála­eft­ir­lits,“ segir í til­kynn­ingu stjórn­valda.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent