Seðlabanki Evrópu tilkynnir um aðgerðir til að örva efnahagslífið

Rúmir tveir mánuðir eru síðan Seðlabanki Evrópu hætta með umfangsmikla áætlun sína um magnbundna íhlutun, sem fólst meðal annars í umfangsmikilli fjárinnspýtingu í hverjum mánuði.

Mario Draghi, bankastjóri seðlabanka Evrópu
Auglýsing

Mario Drag­hi, for­seti stjórnar Seðla­banka Evr­ópu, til­kynnti í dag um umfangs­miklar aðgerðir bank­ans til að örva hag­vöxt á evru­svæð­in­u. 

Ekki eru nema rúmir tveir mán­uðir síðan að bank­inn hætti form­lega með umfangs­mikla áætlun sína um örvun hag­kerfa evru­svæðs­ins sem fólst í kaupum á skulda­bréf­um, fyrir um 60 millj­arða evra í hverjum mán­uð­i. 

Um mitt síð­asta ár til­kynnti bank­inn um að hann myndi hætta með áætl­un­ina, og var það gert til að gefa fyr­ir­tækjum og þjóð­ríkjum svig­rúm til að laga sig að breyttum veru­leika, en aðgerðir seðla­bank­ans hafa skipt sköpum fram­gang efna­hags­mála á evru­svæð­inu, enda umfang aðgerð­anna mik­ið. 

Auglýsing



Horfur í efna­hags­málum í Evr­ópu hafa versnað hratt und­an­farin miss­eri, og byggja aðgerðir bank­ans nú á því, að þörf sé á því að bank­inn láti til sín taka til að skapa betri jarð­veg fyrir vöxt. 

Þetta verður gert með lán­veit­ingum á lágum vöxtum til fjár­mála­fyr­ir­tækja, sem síðan geta lánað áfram til fyr­ir­tækja og fjár­festa. Vextir bank­ans eru í núlli. Aðgerð­irnar nú byggja því að hluta á því að end­ur­vekja áætlun bank­ans sem hætt var með í byrjun árs, en bank­inn metur það svo að nauð­syn­legt sé að styðja við þróun mála á evru­svæð­inu, að því er fram kemur í til­kynn­ingu bank­ans. 

Hag­vaxt­ar­spá bank­ans var nýlega upp­færð, og gerir nú ráð fyrir 1,1 pró­sent hag­vexti á þessu ári í stað 1,7 pró­sent áður. Atvinnu­leysi í Evr­ópu hefur farið lækk­andi und­an­farin miss­eri og mælist nú 6,5 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent