Svafa ný í stjórn Icelandair - Þriðja stjórnarkjörið á tveimur dögum

Svafa Grönfeldt hefur tekið sæti í stjórn Össurar, Origo og Icelandair Group, á aðalfundum félagann.

Svafa_Gronfeldt.jpg
Auglýsing

Svafa Grön­feldt tók sæti í Icelandair Group í dag, en sjö voru í fram­boði til stjórnar fyrir fimm sæti í stjórn. 

Auk Svöfu skipa nú stjórn­ina Guð­mundur Haf­steins­son, Heiðrún Jóns­dótt­ir, Ómar Bene­dikts­son og Úlfar Stein­dórs­son. 

Ást­hildur Othars­dótt­ir, stjórn­ar­for­maður Mar­els, var ekki í fram­boði og kemur Svafa inn í stjórn­ina í hennar stað. Aðrir í fram­boði, sem ekki náðu kjöri, voru Guðný Hans­dóttir og Þór­unn Reyn­is­dótt­ir. 

Auglýsing

Rekstur Icelandair hefur verið krefj­andi und­an­farin miss­eri, en félagið tap­aði 6,8 millj­örðum króna á fjórða árs­fjórð­ungi árs­ins í fyrra og þá hefur mark­aðsvirði félags­ins lækkað um 44 pró­sent á einu ári. Það lækk­aði um 4,8 pró­sent í dag, í 140 millj­óna króna við­skipt­um.

Sam­þykkt var á aðal­fundi félags­ins í dag, að greiða ekki arð til hlut­hafa, vegna rekstrar árs­ins í fyrra.

Óhætt er að segja að Svafa láti til sín taka í íslensku við­skipta­lífi, þessi miss­er­in, en kjör hennar í stjórn Icelandair var þriðja kjör hennar í stjórn skráðs félags­ins á tveimur dög­um. Í gær var hún kjörin í stjórnir Origo, áður Nýherja, og Öss­ur­ar, þar sem hún hefur átt sæti í stjórn síðan árið 2008. 

Í stjórn Origo voru kosin auk Svöfu þau Ívar Krist­jáns­­son, stjórn­­­ar­­for­­mað­­ur, Hildur Dungal, Guð­­mundur Jóhann Jóns­­son, og Hjalti Þór­­ar­ins­­son, en sú skipan var í takt við til­­lögu til­­­nefn­ing­­ar­­nefnd­­ar. 

Í stjórn Öss­ur­ar, sem er skráð á markað í Kaup­manna­höfn, eru auk Svöfu, Niels Jac­ob­sen, Krist­ján Tómas Ragn­ars­son, Arne Boye Niel­sen og Guð­björg Edda Egg­erts­dótt­ir.

Svafa Grön­feldt er for­maður stjórnar MIT DesignX sem er nýjasti við­skipta­hrað­all MIT háskóla í Boston og starfar hún jafn­framt við nýsköp­un­ar­setur skól­ans. 

Hún er ein af stofn­endum The MET Fund sem er fjár­fest­inga­sjóður fyrir sprota­fyr­ir­tæki á sviði hönn­unar og tækni í Banda­ríkj­un­um. Svafa hefur setið í stjórn Öss­urar síðan 2008. 

Hún starf­aði áður sem fram­kvæmda­stjóri hjá Alvogen og þar áður sem rektor Háskól­ans í Reykja­vík og aðstoð­ar­for­stjóri Act­a­v­is. Hún hefur lokið dokt­ors­prófi frá London School of Economics í vinnu­mark­aðs­fræð­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent