Miklar fjárfestingar Íslandspósts og fækkun einkabréfa stuðlað að lausafjárþurrð

Að mati Póst- og fjarskiptastofnunar virðist fækkun einkaréttarbréfa samtímis miklum fjárfestingum hafa stuðlað að lausafjárþurrð Íslandspósts. Stofnunin segist ekki hafa heimildir til að grípa inn í ákvarðanir forstjóra og stjórnar Íslandspósts.

Póstkassi
Auglýsing

Póst- og fjar­skipta­stofnun telur að lausa­fjár­vandi Íslands­pósts sé til­komin vegna fækk­unar einka­rétt­ar­bréfa ann­ars veg­ar og hins vegar mik­illa fjár­fest­inga ­fyr­ir­tæk­is­ins á sama tíma. Stofnun segir að Íslands­póstur hafi ráð­ist í miklar fjár­fest­ingar án þess að fjár­mögnun þeirra hafi verið tryggð. Íslands­póstur lét ekki opin­ber­lega vita af vand­anum fyrr en í síð­ari helm­ing síð­asta árs. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

For­stjóri og stjórn Íslands­pósts bera ábyrgð á þeim ákvörð­unum

Í lögum um Póst- og fjar­skipta­stofnun er kveðið á um að stofn­unin hafi eft­ir­lit með starf­semi fjar­skipta­fyr­ir­tækja og póst­rek­enda og þar með talið fjár­hags­stöðu þeirra. ­Sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­neyt­ið óskaði eftir því í des­em­ber að Póst- og fjar­skipta­stofn­un ­gerð­i ­grein fyrir hvernig eft­ir­lit stofn­un­ar­innar með fjár­hags­stöðu Íslands­póst hafi verið hátt­að. Í svar­bréfi stofn­un­ar­inn­ar, sem barst ráðu­neyt­inu í febr­ú­ar, segir aftur á móti að eft­ir­lit stofn­un­ar­innar tak­mark­ist við þann hluta sem snýr að einka­rétti og al­þjón­ustu, þegar kemur að póst­þjón­ustu. Jafn­framt kemur fram í bréf­inu að stofn­unin hafi ekki heim­ildir til að grípa inn í með ein­hverjum hætti þær á­kvarð­an­ir ­sem félagið kann að hafa tek­ið. For­stjóri og stjórn Íslands­pósts beri ábyrgð á þeim ákvörð­un­um. 

Í bréf­inu er einnig greint frá því að rekstr­ar­reikn­ingur Íslands­póst fyrir árið 2017 hafi ekki bent til þess að félagið stefndi í alvar­legan lausa­fjár­vanda árið 2018. Sam­kvæmt árs­hluta­reikn­ingi í sept­em­ber í fyrra var veltufé frá rekstri 12 millj­ónir króna sem er um 500 millj­ónum lægra en á sama tíma árið áður. Að mati póst- og fjar­skipta­stofnun skýrist það af lækkun á hagn­aði einka­rétt­ar­bréfa. Stofn­unin segir að vand­inn hafi ekki legið fyrir fyrr en síðla árs 2018. 

Auglýsing

Miklar fjár­fest­ingar og hækkun launa í fyrra

­For­svar­s­­menn Íslands­­­póst­­s hafa sagt að lausa­­fjár­­vandi ­fyr­ir­tæk­is­ins stafi meðal ann­­ar­s af ­sam­drætt­i í bréfum innan einka­rétt­­ar, afgreiðslutregðu stjórn­­­valda í gjald­­skrár hækk­­unum og fjölgun erlendra send­inga. Aftur á móti hefur verið fjallað um í fjöl­miðlum á und­an­förnum mán­uðum hvernig fjár­­­fest­ingar Íslands­­­póst í dótt­­ur­­fé­lög­um, offjár­­­fest­ingar í bygg­ingum og van­á­ætl­­aðar gjald­­skrár sam­keppn­is­­rekstur gætu einnig átt í hlut. 

Frétta­blaðið greindi frá því í febr­ú­ar að á fundi stjórnar Íslands­póst í nóv­­em­ber 2017 var ákveðið að stækka flutn­inga­mið­­stöð­ ­fyr­ir­tæk­is­ins en áætl­­aður kostn­aður við fram­­kvæmd­ina var 698 millj­­ónir króna. Á sama tíma stóðu yfir fram­­kvæmdir við bygg­ingu nýs póst­­húss á Sel­­fossi en áætlað var að sú fram­­kvæmd kost­aði 608 millj­­ónir króna. Í des­em­ber 2017 sam­­þykkti stjórn Íslands­póst heim­ild til allt að 1,25 millj­­arða. Í apríl 2018 var síðan sam­­þykkt heim­ild fyrir 1,75 millj­­arða láni. Sam­kvæmt árs­reikn­ingum Íslands­pósts var það hugsað til að end­­ur­fjár­­­magna lánin frá í des­em­ber árið áður og til að fjár­­­magna 500 millj­­óna yfir­­­drátt­­ar­lán. Á þeim tíma sem fram­­kvæmdin var sam­­þykkt stóð hand­­bært fé í 215 millj­­ónum króna eftir slæmt rekstr­­ar­ár. 

Ing­i­­mundur Sig­­ur­páls­­son, for­­stjóri rík­­is­­fyr­ir­tæk­is­ins Íslands­­­pósts, hækk­­aði tví­­­vegis í launum á árinu 2018. Fyrst hækk­­uðu laun hans í 1.992 þús­und krónur á mán­uði fyrsta jan­úar 2018 og svo aftur um þrjú pró­­sent 1. maí sama ár. Eftir það voru laun hans 2.052 þús­und krónur á mán­uð­i.  ­Laun Ing­i­­mundar hafa hækkað um tæp 43 pró­­sent frá miðju ári 2017, þegar ákvörðun um laun hans var færð frá kjara­ráði til stjórnar Íslands­­­póst­s. 

Stjórn­sýslu­út­tekt á starf­semi Íslands­pósts 

Í sept­­em­ber 2018 leit­aði Íslands­­­póstur síðan á náðir rík­­is­ins og fékk 500 millj­­ónir króna að láni til að bregð­­­ast við lausa­­­fjár­­­skorti eftir að við­­­skipta­­­banki þess, Lands­­­banki Íslands, hafði lokað á frek­­­ari lán­veit­ing­­­ar. Nokkrum mán­uðum síð­­­­­ar, í des­em­ber, sam­­­þykkti Alþingi að lána fyr­ir­tæk­inu allt að millj­­­arð til við­­­bót­­­ar.

Í umsögn Rík­­­­­is­end­­­­­ur­­­­­skoð­un­­­ar, um auka fjár­­­veit­ingu rík­­is­ins til Íslands­­­­­pósts, sagði að ­­­­­Rík­­­­­­is­end­­­­­­ur­­­­­­skoðun teldi að það væri óheppi­­­­­­legt að ekki liggi nákvæm­­­­­­lega fyrir hvernig fyr­ir­hugað sé að taka á rekstr­­­­­­ar­­­­­­vanda Íslands­­­­­­­­­­­pósts þannig að til­­­­­­skil­inn árangur náist áður en tekin er ákvörðun um fram­lög úr rík­­­­­­is­­­­­­sjóði til félags­­­­­­ins. Þá væri orsök fjár­­­­hags­vand­ans alls ógreind, ekki lægi fyrir hvort hann stafi af sam­keppn­is­­­­rekstri eða starf­­­­semi innan einka­rétt­­­­ar. Fjár­­­laga­­­nefnd Alþingis sam­­­þykkti því í jan­úar á þessu ári beiðni til Rík­­­is­end­­­ur­­­skoð­anda um að unnin yrði stjórn­­­­­sýslu­út­­­­­tekt á starf­­­semi Íslands­­­­­pósts.

Aðal­fundur Íslands­pósts á fimmtu­dag­inn

Aðal­­­fundur Íslands­­­­­pósts hefur verið boð­aður þann 15. mars næst­kom­andi í höf­uð­­stöðv­­um ­­fyr­ir­tæk­is­ins. Fund­­ur­inn átti að fara fram þann 22. febr­­úar síð­­ast­lið­inn en honum var frestað að beiðni Bjarna Bene­dikts­­­son­­­ar, fjár­­­­­mála- og efna­hags­ráð­herra. Á aðal­­fundi verður birt árs­­­skýrsla fyr­ir­tæk­is­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent