Þingmenn vilja stofna fulltrúaþing á vegum SÞ

Smári McCarthy, þingmaður Pírata, er einn þeirra 33 þingmanna sem skrifað hefur undir áskorun þess efnis að stofnað verði nýtt fulltrúaþing á vegum Sameinuðu þjóðanna. Hann segir Allsherjarþingið marklaust.

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York.
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York.
Auglýsing

Þrjá­tíu og þrír þing­menn hvaðanæva að úr heim­inum vilja að stofnað verði nýtt full­trúa­þing Sam­ein­uðu þjóð­anna. Smári McCart­hy, þing­maður Pírata, er einn þeirra sem skrifar undir áskorun þess efnis en frá þessu var greint í frétt The Guar­dian í síð­ustu viku.

Smári McCarthy Mynd: Bára HuldSmári segir í sam­tali við Kjarn­ann að hug­myndin hafi sprottið upp í gegnum sam­tal þing­manna um heim all­an. Margir af þeim hafi talið að Alls­herj­ar­þing Sam­ein­uðu þjóð­anna starfi ólýð­ræð­is­lega og að bæta þyrfti úr því. Almenn­ingur viti ekki hvert hlut­verk þings­ins sé og að stærstu ríkin taki ekki mark á því, til að mynda Banda­ríkin og Kína.

Hug­myndin sé sú að gera Alls­herj­ar­þingið að ein­hvers konar efri deild og búa til neðri deild með beinum kosn­ingum í hverju landi. „Þetta mun færa stofn­un­ina nær almenn­ing­i,“ telur Smári og bætir því við að hún myndi hafa í fram­hald­inu meira vægi í alþjóð­legu sam­hengi. Hann segir að Ísland myndi hugs­an­lega fá tvo full­trúa á þingið og myndi það hjálpa smærri ríkjum að nýta þennan vett­vang. 

Auglýsing

Til­gang­ur­inn að auka lýð­ræð­is­lega aðkomu almenn­ings

Í frétt The Guar­dian kemur fram að til­gangur þings­ins yrði að auka lýð­ræð­is­lega aðkomu almenn­ings að heims­mál­unum og ákvarð­ana­töku Sam­ein­uðu þjóð­anna. Í áskorun þing­mann­anna segir að Sam­ein­uðu þjóð­irnar og lýð­ræði liggi undir árás­um. „Hinir vana­legu við­skipta­hættir og háleit orð­ræða duga ekki til að mæta þess­ari ógn. Þrátt fyrir margar við­var­anir og ráð­legg­ingar hefur lítið verið gert til að búa Sam­ein­uðu þjóð­irnar undir þessa áskor­un. Tím­inn fyrir sinnu­leysi og umkvart­anir er lið­inn. Nú er þörf fyrir djarfa for­yst­u,“ segir á áskor­un­inni.

Varað hefur verið við því að Sam­ein­uðu þjóð­irnar þyrftu að gera meira til að styrkja stjórn­sýslu á heims­vísu og takast á við lýð­ræð­is­halla. Nefnd sem fjall­aði um málið fyrir um fimmtán árum síðan full­yrti að mark­viss­ara sam­starf með þing­mönn­um, þjóð­þingum og bæj­ar­fé­lögum á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna myndi styrkja stjórn­sýsl­una á heims­vísu, takast á við lýð­ræð­is­halla í sam­skiptum milli rík­is­stjórna, treysta full­trúa­lýð­ræðið í sessi og tengja Sam­ein­uðu þjóð­irnar betur inn í almenn­ings­á­lit­ið. Núver­andi fyr­ir­komu­lag dygði ekki til.

Vilja koma hnatt­væð­ing­unni undir lýð­ræð­is­lega stjórn

Þegar alþjóð­leg her­ferð fyrir full­trúa­þing á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna (UN­PA) var sett á lagg­irnar fyrir ell­efu árum síðan sagði vernd­ari sam­tak­anna, Boutros Boutros-G­hali, að stuðla þyrfti að lýð­ræð­i­svæð­ingu hnatt­væð­ingar áður en hnatt­væð­ingin næði að eyði­leggja stoðir lýð­ræð­is­ins.

„Nú horfum við áhyggju­full upp á þessa þróun eiga sér stað. Stofnun full­trúa­þings á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna er orðin ómissandi liður í þeirri við­leitni að koma hnatt­væð­ing­unni undir lýð­ræð­is­lega stjórn.

Við, und­ir­rit­aðir þing­menn, ítrekum stuðn­ing okkar við það mark­mið að stofna UNPA til að auka lýð­ræð­is­lega aðkomu almenn­ings að heims­mál­unum og ákvarð­ana­töku Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Við bjóðum öðrum lýð­ræð­is­lega kjörnum þing­mönnum hvaðanæva að úr ver­öld­inni að ganga til liðs við UNPA-­þing­hóp­inn okkar til að styrkja og sam­hæfa við­leitni okk­ar. Saman getum við myndað þann póli­tískan skrið­þunga og þrýst­ing sem nauð­syn­legur er til að ná mark­miði okk­ar,“ segir í áskorun þing­mann­anna.

Vilja víð­tækar umbætur á næsta ári

Þing­menn­irnir eru þeirrar skoð­unar að nota beri 75 ára afmæli Sam­ein­uðu þjóð­anna árið 2020 sem tæki­færi til að taka mið af aðstæðum og hleypa af stokk­unum víð­tækum umbót­um, þar á meðal stofnun UNPA.

Þau kalla jafn­framt eftir því að aðal­rit­ari Sam­ein­uðu þjóð­anna, for­seti Alls­herj­ar­þings­ins, þjóð­höfð­ingjar og rík­is­stjórnir þeirra og utan­rík­is­ráðu­neyti, auk full­trúa aðild­ar­ríkja Sam­ein­uðu þjóð­anna í New York, hefji nauð­syn­legar aðgerðir til að und­ir­búa áhrifa­ríkan leið­toga­fund til umbóta og til að stofna UNPA.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent