Kemur til greina að Icelandair Group efni ekki til hlutafjárútboðs

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, segir að ef salan á Icelandair Hotels gangi vel og það verði ekki frekari breytingar á samkeppnisumhverfinu þá gæti verið að Icelandair Group efni ekki til hlutafjárútboðs að svo stöddu.

Icelandair vél feb 2008
Auglýsing

Bogi Nils Boga­son, for­stjóri Icelanda­ir Group, segir að það komi til greina að Icelanda­ir Group efni ekki til hluta­fjár­út­boðs. Í sam­tali við Mark­að­inn í dag sagði Bogi Nils að ef salan á Icelanda­ir Hot­els ­gangi vel og það verði ekki frek­ari breyt­ingar á sam­keppn­isum­hverf­inu þá gæti verið að Icelanda­ir Group efni ekki til hluta­fjár­út­boðs að svo stöddu. Hann segir það koma í ljós á hlut­hafa­fundi félags­ins næst­kom­andi föstu­dag. 

Upp­haf­lega átti að auka hlutafé til að fjár­magna kaupin á WOW air

Icelanda­ir group ­stefndi að hluta­fjár­boði á fyrsta árs­fjórð­ung­i í ár. Hins vegar var upp­lýst á aðal­fundi félags­ins að nú væri horft til fyrri helm­ings árs­ins, sam­kvæmt umfjöllun Mark­að­ar­ins. Fjár­hæðin sem safna á er 625 millj­ónir að nafn­virði, miðað við mark­aðsvirðið núna er um rúm­lega 4,4 millj­arða króna að ræða.

Í sam­tali við Mark­að­inn segir Bogi Nilsað upp­haf­lega hafi verið ákveðið að auka hluta­fé Iceland­ir Group til að fjár­magna ­kaup félags­ins á WOW a­ir. Í nóv­em­ber kom hins vegar í ljós að þau kaup gengu ekki eft­ir. Bogi segir að engu síður hafi Icelanda­ir ­sótt um heim­ild til hlut­hafa þess efnis að auka hlutafé til að nýta til vaxtar ef breyt­ingar verði á sam­keppn­isum­hverf­inu. „Enn er stefnt að útboð­inu en við viljum fá skýr­ari mynd á það hvernig landið liggur áður en efnt verður til hluta­fjár­út­boðs“ segir Bogi Nils.

Auglýsing

Lánið nýtt til að fjár­magna skulda­bréf á hag­stæð­ari kjörum

Til­kynn­t var í gær að Icelanda­ir hefði fengið lán upp á 80 millj­­ónir Banda­­ríkja­dala, um 10 millj­­arða króna, frá inn­­­lendri lána­­stofn­un, sem reynd­ist svo vera Lands­­bank­inn. ­Rík­­is­­bank­­arn­ir, Íslands­­­banki og Lands­­bank­inn, eru nú meðal lán­veit­enda félags­­ins en félagið er að miklu leyti í eigu íslenskra líf­eyr­is­­sjóða. Bogi Nils segir að lánið verði nýtt til að fjár­magna skulda­bréf á hag­stæð­ari kjör­um. Þá sé að auk  lengt í lán­inu en það sé til fimm ára. Hann segir að því muni skuldir félags­ins ekki aukast fyrir vik­ið.

Greint hefur verið frá því í fjöl­miðlum að vegna versn­andi afkomu á síð­asta ári og end­ur­fjár­mögnun skulda þá hafi félag­ið brot­ið ­gegn skil­málum í fjár­mögn­un. Þá kemur fram í sam­tali Bogi við Mark­að­inn að að félag­ið greiddi félagið 73 millj­ónir doll­ara inn á skulda­bréfa­flokk­inn í jan­ú­ar. Félagið muni því á skömmum tíma hafa greitt 153 millj­ónir doll­ara inn á lán­ið, jafn­virði 18,5 millj­arða króna. 

„Þá standa 60 millj­ónir doll­ara eftir og það kemur til greina að end­ur­fjár­magna þá að fullu fyrir lok ann­ars fjórð­ungs. Við höfum nokkuð mik­inn sveigj­an­leika. Við getum veð­sett flug­vélar í okkar eigu sem eru óveð­settar og getum því stokkið til ef við­un­andi kjör bjóð­ast á mark­aðn­um, “ segir Bogi í sam­tali við Mark­að­inn.

Miklar sveiflur yfir lengri tíma

Sveiflur á gengi bréfa í Icelanda­ir hafa verið tíðar und­an­farin mis­s­eri. Ástæðan fyrir miklum sveiflum á gengi bréfa félags­­­ins á und­an­­­förnum mán­uðum má að miklu leyti rekja til tíð­inda af WOW a­ir og rekstr­­ar­erf­ið­­leik­um Icelanda­ir, sem gaf út afkomu­við­var­­anir á síð­­asta ári þegar ljóst var að áætl­­­anir voru ekki að fara að stand­­ast.

Mark­aðsvirð­i Icelanda­ir hrundi til að mynda niður um 16 pró­­sent eftir að upp­­­gjör félags­­ins var birt snemma í febr­­ú­­ar, en félagið tap­aði alls 6,7 millj­­örðum króna á síð­­asta ári. Eigið fé Icelanda­ir var 56,5 millj­­arðar króna í lok síð­­asta árs en mark­aðsvirði félags­­ins við opnum mark­aða í dag var ein­ungis 39,8 millj­­arðar króna. Gera má ráð fyrir því að um tæp­­lega fjórir millj­­arðar króna hafi skaf­­ast af virð­inu það sem af er degi.

Mark­aðsvirð­i Icelanda­ir ­fór yfir 180 millj­­arða króna í apríl 2016 og því hefur virði félags­­ins dreg­ist saman um rúm­­lega 140 millj­­arða króna á tæp­­lega þremur árum.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent