Mótmæla kynjahalla í verkefnishóp ráðherra um kvikmyndamál

Í níu manna verkefnishóp mennta- og menningarmálaráðherra um stefnu í kvikmyndamálum sitja aðeins tvær konur. WIFT, félag kvenna í kvikmyndum og sjónvarpi, gagnrýnir kynjahlutföll hópsins og krefst þess að konur skipi helming hópsins.

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Auglýsing

Auglýsing

WIFT, Félag kvenna í kvik­myndum og sjón­varpi, mót­mæla því að aðeins tvær konur eru í níu manna starfs­hóp mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra sem vinnur að gerð stefnu í kvik­mynda­mál­u­m. ­Fé­lagið segir að ráðu­neytið hafi haft tæki­færi við skipun þessa starfs­hóp að fram­kvæma ­jafn­rétt­is­stefn­u ­stjórn­valda en hafi kosið að gera það ekki. Félagið krefst þess að helm­ingur hóps­ins sé skip­aður konum og að í hópnum sé alla­vega ein kona sem starfi við kvik­mynda­gerð. Álykt­unin var birt á vefn­um Klapp­tré.

Fyrsta sinn sem stjórn­völd móta heild­stæða ­stefnu í kvik­mynda­málum

Í á­lykt­un ­fé­lags­ins segir að mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hafi skipað verk­efn­is­hóp til að vinna að gerð stefnu í kvik­mynda­málum sem gilda á frá 1. jan­úar 2020 til 31. des­em­ber 2030. Þetta sé í fyrsta sinn sem stjórn­völd móta heild­stæða stefnu og aðgerða­á­ætlun á grunni henn­ar, sem nær yfir hlut kvik­mynda í menn­ingu þjóð­ar­inn­ar, menntun í kvik­mynda­gerð á öllum skóla­stig­um, miðlun íslensks kvik­mynda­efnis og stuðn­ing við fram­leiðslu kvik­mynda.

Dagur Kári Pét­urs­son, for­maður Sam­taka kvik­mynda­leik­stjóra og vara­for­maður Grímar Jóns­son fram­leið­andi, var skip­aður for­mað­ur­ verk­efna­hóps­ins. Ásamt honum voru Frið­rik Þór Frið­riks­son kvik­mynda­leik­stjóri, Einar Karl Birg­is­son fram­kvæmda­stjóri, Þor­geir Ólafs­son sér­fræð­ingur á skrif­stofu menn­ing­ar­mála, Baldur Sig­munds­son sér­fræð­ingur í atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyti og Krist­inn Þórð­ar­son, sér­fræð­ingur frá Sam­tökum iðn­að­ar­ins skip­aðir í hóp­inn. Í hópn­um eru sitja einnig  Hanna Katrín Frið­riks­son alþing­is­maður og Áslaug María Frið­riks­dóttir for­maður Kvik­mynda­ráðs.

Í álykt­un WIFT er það harð­lega ­gagn­rýnt að í hópnum séu sjö karlar en aðeins tvær kon­ur. Auk þess starfi þrír af karl­mönn­unum við fag­ið, tveir af þeim séu leik­stjórar og sá þriðji sé fram­leið­andi og vara­for­maður nefnd­ar­inn­ar. Því gagn­rýnir félagið það einnig að hvorug þeirra kvenna sem skip­aðar voru í nefnd­ina starfi við fag­ið. 

Ráðu­neytið kaus að fram­kvæma ekki jafn­rétt­is­stefnu stjórn­valda

Enn fremur segir í álykt­un­inni að und­an­farin ár hafi WIFT unnið mikla og end­ur­gjalds­lausa vinnu við gerð stórrar sam­an­tektar á ann­ar­s ­vegar töl­fræði sem afhjúpar kynja­hall­ann í fag­inu á Íslandi og hins vegar til­lögur að aðgerðum í átt að jöfn­uði m.a. eftir erlendum fyr­ir­mynd­um.  ­Sam­an­tektin var unnin í sam­starfi við Kvik­mynda­mið­stöð og Kvik­mynda­ráð.  Þá hafi félagið boðið mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu fram aðstoð við að móta nýja jafn­rétt­is­stefnu tengda kvik­myndum og sjón­varpi, allt frá skóla­kerf­inu til fags­ins sjálfs og segir í álykt­un­inni að því hafi verið vel tek­ið. 

Sam­an­tektin var kynnt alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu og Lilju Al­freðs­dótt­ur, menn­ing­ar- og mennta­mála­ráð­herra. Í álykt­un­inni segir að félag­inu hafi verið tjáð að ­til­lög­urnar kæmu á góðum tíma þar sem verið væri að skipa nefnd sem ætti að móta fram­tíð­ar­stefnu og því hafi félagið von­að­ist til að fá full­trúa í nefnd­ina. Í á­lykt­un­inn­i ­segir að þarna hafi ráðu­neytið haft tæki­færi til að fram­kvæma jafn­rétt­is­stefnu stjórn­valda en hefði í stað­inn kosið að gera það ekki.

Krefj­ast þess að helm­ingur hóps­ins séu konur

Félagið vísar því spurn­ingum sínum til mennta- og ­menn­ing­ar­mála­ráð­herra og spyr meðal ann­ars hvers vegna jafn­rétt­is­stefnu stjórn­valda var ekki fylg­t.  „Wift ­spyr, hvers vegna það var ekki gert? Hver er afstaða nefnd­ar­innar og ráðu­neyt­is­ins til jafn­rétt­is­mála í fag­in­u? Hvernig voru full­trúar í nefnd­inni valdir og út frá hvaða for­send­um?“.

Að lokum krefst félagið að minnsta kosti ein kona sem starfi við kvik­mynda­gerð ­sitj­i í hópnum og að jafn­framt sé helm­ingur hóps­ins kon­ur. 

Í stjórn­ WIFT ­sitja Helga Rakel Rafns­dótt­ir, ­Dögg Mós­es­dótt­ir, Tinna Hrafns­dóttir og Helga Ein­ars­dótt­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent