Segir stjórnvöld hafa farið nokkuð geyst í fullyrðingum um málskot

Benedikt Bogason, formaður dómstólasýslunnar, segir stjórnvöld hafa farið nokkuð geyst í að fullyrða að vísa ætti dómi Mannréttindadómstólsins til yfirdeildar hans áður en faglegt mat var lagt á slíkt.

Landsréttur
Auglýsing

Bene­dikt Boga­son, for­maður stjórnar dóm­stóla­sýsl­unn­ar, segir stjórn­völd hafa farið nokkuð geyst í að full­yrða að vísa ætti dómi Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins til yfir­deildar hans áður en fag­legt mat var lagt á slíkt, í sam­tali við Morg­un­blaðið í dag. Stjórn dóm­stóla­sýsl­unnar sam­þykkti á föstu­dag­inn að meta skuli áhrif mál­skots til yfir­deildar Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins áður en á­kvörð­un um slíkt er tek­in. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra mun til­kynna Alþingi við­brögð stjórn­valda við dómnum í dag.  

Leggja til að dóm­urum við Lands­rétt verði fjölgað í 19

Í dómi Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins sem birtur var í síð­ustu viku fengu bæði Sig­ríður Á. And­er­sen, þáver­andi dóms­­mála­ráð­herra, og Alþingi á sig á­­fell­is­­dóm fyrir það hvernig haldið var á skipan 15 dóm­­ara við Lands­rétt í byrjun júní 2017. Bene­dikt seg­ir, í sam­tali við Morg­un­blaðið í dag, að dóms­mála­ráð­herra hafi sagt í sínu fyrsta við­tali við fjöl­miðla eftir að dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins féll að stefnt væri að skjóta mál­inu áfram. Hann telur hins vegar að það þurfi að staldra við og meta kosti og galla þess að ann­ars vegar skjóta mál­inu áfram og vera í óvissu til fram­tíðar eða þá una dómnum og gera þær lag­fær­ingar sem efni séu til­.  Á fundi stjórnar dóm­stóla­sýsl­unnar á föstu­dag­inn síð­ast­liðnum var sam­þykkt með fjórum atkvæðum gegn einu að meta skuli áhrif mál­skots til yfir­deildar áður en á­kvörð­un um slíkt sé tek­in. 

Stjórn dóm­stóla­sýsl­unnar lét einnig fær til bók­unar á fund­inum að ráð­lagt sé að fjölga dóm­urum við Lands­rétt. Fjórir dóm­arar af fimmtán geta nú að óbreyttu ekki gengið í dóms­störf við Lands­rétt eftir dóm Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins auk þess sem einn af þeim ell­efu ­sem eftir eru fer í leyfi næst haust. Stjórnin leggur því til að laga­breyt­ing þess efnis verði lögð fram um að fjölga dóm­urum við rétt­inn úr fimmtán í nítján, þar sem dóm­ar­inar fjórir hafi skip­un­ar­bréf og því verði ekki breytt. Stjórn dóm­stóla­sýsl­unnar fund­aði á föstu­dag með Þór­dísi Kol­brúnu Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ur, sem tók við emb­ætti dóms­mála­ráð­herra á fimmtu­dag, og gerði ráð­herra grein fyrir bókun sinni.

Auglýsing

Skýrsla um við­brögð stjórn­valda við dómi MDE

Áformað er að Lands­réttur komi saman að nýju í dag, en hlé var gert á störfum dóms­ins eftir að dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins var kveð­inn upp í síðust­u viku. Þrír af dóm­ur­unum verða þó áfram frá störfum vegna nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins og sá fjórði er í náms­leyfi.

Frétta­stofa Rúv hefur greint frá því að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra mun flytja Alþingi skýrslu klukkan tvö í dag um við­brögð stjórn­valda við dómi Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu sem féll í síð­ustu viku.  

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent