Starfs­greina­sam­band Íslands slítur viðræðum við Sam­tök at­vinnu­lífs­ins

Starfs­greina­sam­band Íslands hef­ur slitið viðræðum sín­um við Sam­tök at­vinnu­lífs­ins.

samninganefnd starfsgreinasambandið
Auglýsing

Starfs­­greina­­sam­­band Íslands hef­ur slitið við­ræðum sín­um við Sam­tök at­vinn­u­lífs­ins. Fundi samn­ings­að­ila hjá rík­­is­sátta­­semj­­ara var slitið eft­ir rúm­­lega hálf­­­tíma og til­­kynnti Björn Snæ­­björns­­son, for­maður SGS, fjöl­miðlum ákvörð­un­ina fyr­ir utan fund­­ar­her­berg­ið. Mbl.is greinir fyrst frá.

„Það barst ekk­ert nýtt til­­­boð frá Sam­tök­um at­vinn­u­lífs­ins,“ sagði Björn í sam­tali við mbl.­is. „Þetta þýðir að við för­um í að kalla sam­an okk­ar aðgerða­hóp og þar mun­um við taka ákvörðun um það hvernig við mun­um í fram­hald­inu skipu­­leggja okk­ur til þess að setja meiri þrýst­ing á að ná kjara­­samn­ing­um,“ sagði Björn. Við­búið er að allt að 20.000 fé­lags­­menn fari í verk­­föll í apríl eða maí.

Í fréttum fyrir helgi kom fram að Starfs­­greina­­sam­­bandið myndi slíta við­ræðum sínum við Sam­tök atvinn­u­lífs­ins ef sam­tökin leggðu ekki fram nýjar hug­­myndir eða við­brögð á næstu dög­­um.

Auglýsing

Við­ræð­u­­nefnd sam­­bands­ins hafði fengið fulla heim­ild til að lýsa yfir árang­­ur­s­­lausum við­ræðum þrátt fyrir milli­­­göngu Rík­­is­sátta­­semj­­ara og að slíta við­ræðum kæmu slíkar ekki fram.

Í til­­kynn­ingu frá Starfs­­greina­­sam­­band­inu sem send var út fyrir helgi kom fram að und­an­farnar þrjár vikur hefði samn­inga­við­ræður um nýjan kjara­­samn­ing Starfs­­greina­­sam­­bands­ins og Sam­­taka atvinn­u­lífs­ins farið fram undir verk­­stjórn Rík­­is­sátta­­semj­­ara. „For­­sendur við­ræðna hafa verið umræða um nýja launa­töflu, stytt­ingu vinn­u­vik­unn­­ar, sam­ræm­ingu á vinn­u­­mark­aði og fleiri atrið­i.“

Í við­ræðum und­an­far­inna vikna hefði ýmis­­­legt áunnist, annað þok­­ast í rétta átt og sumt hefði verið óleyst og því virt­ist ekki vera lengra kom­ist að sinni. Sú vinna sem hefur verið unnin væri þó gagn­­leg og nýt­t­ist von­andi fram­hald­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent