Vonast til þess að dómur Hæstaréttar standi sem bautasteinn til framtíðar

Í yfirlýsingu um dóm Hæstaréttar segjast aðstandendur Stundarinnar og Reykjavík Media vonast til þess að þessi dómur, og þeir sem hann staðfestir, standi sem sem bautasteinn til framtíðar með varðstöðu um upplýsingarétt almennings og frelsi fjölmiðla.

Stundin forsíða 20.10.2017
Stundin forsíða 20.10.2017
Auglýsing

Útgáfu­­fé­lag Stund­­ar­innar og fjöl­miðla­­fyr­ir­tækið Reykja­vík­ ­Medi­a unnu fulln­að­­ar­­sigur í hinu svo­­kall­aða lög­­­banns­­máli Glitn­is HoldCo, félags utan um eft­ir­stand­andi eignir hins fallna banka Glitn­is, í Hæsta­rétti í dag. Í yfir­lýs­ingu um dóm Hæsta­réttar segj­ast aðstand­endur Stund­ar­innar og Reykja­vík­ ­Medi­a von­ast til þess að þessi ­dóm­ur, og þeir sem hann stað­fest­ir, standi sem sem bauta­steinn til fram­tíðar með varð­stöðu um upp­lýs­inga­rétt almenn­ings og frelsi fjöl­miðla. 

Haft fæl­ing­ar­á­hrif á fólk sem hefur undir höndum upp­lýs­ingar eða gögn

Í yfir­lýs­ing­unni segir að 522 dögum eftir að lög­bann var sett á umfjöllun Stund­ar­innar og Reykja­vik ­Medi­a um við­skipti Glitnis og þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra hafi nú fallið end­an­legur dómur Hæsta­réttar tján­ing­ar­frels­inu og upp­lýs­inga­rétti almenn­ings í vil. Þá ­segir í yfir­lýs­ing­unni að lög­banns­málið í heild sinn­i hafi án efa haft fæl­ing­ar­á­hrif á fólk í sam­fé­lag­inu sem hefur undir hönd­un­um ­upp­lýs­ing­ar eða gögn ­sem eigi mikið erindi til almenn­ings sem það vilji koma til fjöl­miðla í krafti réttlætiskenndar. 
Auglýsing

Vitnað er í dóm Hæsta­réttar í yfir­lýs­ing­unni en þar segir að „Við mat á því hvort ganga skuli framar í tján­ing­ar­frelsi stefndu eða frið­helgi þeirra aðila sem nefnd gögn lúta að verður að hafa í huga að þegar lög­bannið var lagt á 16. októ­ber 2017 voru ein­ungis 12 dagar í að kosið yrði til Alþingis og því sýnu brýnna en ella að upp­lýst fréttaum­fjöllun yrði ekki skert meira en nauð­syn bar til, sbr. til hlið­sjónar dóm Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu 19. febr­úar 1998 í máli Bowman gegn Bret­landi. Verður jafn­framt að líta til þess að meg­in­þungi fréttaum­fjöll­unar stefndu laut að við­skiptum þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra og aðila honum tengdum við Glitni banka hf. í aðdrag­anda falls íslensku við­skipta­bank­anna þriggja í októ­ber 2008. Af gögnum máls­ins verður ekki ráðið að fréttaum­fjöllun stefndu hafi breyst að þessu leyti eftir að lög­bannið féll nið­ur. Hefur hún eftir sem áður einkum beinst að viðskiptaum­svifum þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra og aðilum tengdum honum í aðdrag­anda og kjöl­far falls bank­anna haustið 2008 með sömu áherslum og verið hafa frá upp­hafi umfjöll­unar stefnd­u.“

Jafn­framt segir í dómnum að líta verði svo á að umfjöllun stefndu um við­skipt­i  þá­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra sé liður í því upp­gjöri og eigi sem slík erindi við almenn­ing.  Í yfir­lýs­ing­unni fjöl­miðl­anna tveggja segir að eftir sem stendur var brotið gegn upp­lýs­inga­rétti almenn­ings og þar með vegið að rétt­inum til frjálsra kosn­inga. „Að­stand­endur Stund­ar­innar og Reykja­vik Media von­ast til þess að þessi dóm­ur, og þeir sem hann stað­fest­ir, standi sem bauta­steinn til fram­tíðar með varð­stöðu um upp­lýs­inga­rétt almenn­ings og frelsi fjöl­miðla.“

Veru­legur aðstöðu­munur

Enn fremur segir í yfir­lýs­ing­unni að aðstöðu­mun­ur­inn hafi verið veru­legur en þrotabú Glitnis lagði mikil dóms­máls­ins gegn fjöl­miðl­un­um t­veim­ur. „Hann birt­ist í því að aðeins laun for­stjóra Glitn­is HoldCo ein og sér eru hærri en sam­an­lögð velta Stund­ar­innar og Reykja­vik ­Media, sam­kvæmt nýj­ustu aðgengi­legu töl­um. Ljóst er að stuðn­ingur almenn­ings skipti sköpum í mál­inu og málsvörn­inni. “ 

Þá segir að með laga­tækni­legum flækjum hafi þrota­bú­inu tek­ist að tefja málið og reka það í gegnum öll dóm­stig á 522 dögum með til­heyr­andi skaða fyrir blaða­mennsku og rétt almenn­ings til upp­lýs­inga. En sam­kvæmt yfir­lýs­ing­unni nægir dæmdur mál­kostn­aður ekki til þess að tryggja þá nauð­syn­legu vörn sem þurfti til að forða ólög­mætu lög­banni á sjálf­sagða og mik­il­væga sam­fé­lags­um­ræðu í þágu almanna­hags­muna. 

Jafn­framt hafi þrotabú Glitnis reynt hvað eftir að annað að fá að taka skýrslu af blaða­mönnum um heim­ild­ar­menn en á öllum dóm­stigum hafi því verið hafn­að. Sam­kvæmt yfir­lýs­ing­unni er í dóm Hæsta­réttar skýrt kveðið á um vernd heim­ild­ar­manna og það með mjög afger­andi hætti. Fjöl­miðl­arnir tveir hvetja því fólk sem hefur undir hönd­unum mik­il­vægar upp­lýs­ingar sem varð­i al­menn­ing að leita til þeirra. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent