Ýmsar takmarkanir á verðtryggingu lána hluti af kjarasamningum

Kjaraviðræður eru nú á lokastigi og standa líkur til þess að samkomulag náist um kjarasamninga á næsta sólarhring.

Peningar
Auglýsing

Ýmsar tak­mark­anir á vægi verð­trygg­ingar lána eru hluti af fram­lagi stjórn­valda inn í kjara­við­ræður aðila vinnu­mark­að­ars­ins, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans, og er meðal ann­ars horft til þess að verð­tryggð jafn­greiðslu­lán verði óheimil frá byrjun árs 2020, til lengri tíma en 25 ára.

Þá verður einnig horft til þess að tryggja að lág­marks­lengd verð­tryggðra lána verði 10 ár, þannig að sem flest önnur neyt­enda­lán en hús­næð­is­lán, verði óverð­tryggð.

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, hefur verið mikill talsmaður þess að dregið verði úr vægi verðtryggingar á íslenskum lánamarkaði.

Auglýsing

Einnig er horft til þess að breyta vísi­tölu­teng­ingum lána, með það að mark­miði að þær verði áhættu­minni fyrir lán­taka, en það á meðal ann­ars að gera með því að taka hús­næð­islið­inn úr vísi­tölu verð­tryggðra hús­næð­is­lána. 

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans er einnig horft til þess að draga úr vægi verð­tryggðra hækk­ana á ýmissi þjón­ustu, til þess að draga úr áhrifum á verð­tryggð lán og verð­bólg­u. 

Stétt­ar­fé­lögin sem aðild eiga að kjara­samn­ingum hafa lagt mikla áherslu á að halda þessum atriðum til streitu, í kjara­við­ræð­un­um. Stjórn­völd virð­ast til­búin að koma til móts við þessar kröf­ur, í það minnsta að hluta, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. 

Samn­inga­nefndir og for­ystu­fólk aðila vinnu­mark­að­ar­ins sitja nú fundi þar sem unnið er að því að klára kjara­samn­inga, en sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans standa vonir til þess að það náist að ljúka samn­ingum á næsta sól­ar­hring. Eins og fram kom í dag, þá var blaða­manna­fundi, þar sem kynna átti lífs­kjara­samn­ing stjórn­valda og aðila vinnu­mark­að­ars­ins, frestað, en ástæðan sem upp var gefin var sú að meiri tíma þyrfti til að klára mál.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Drífa Snædal, forseti ASÍ, og Halldór B. Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA.

Rammi um kjara­samn­inga, það er helstu atriði um kaup og kjör, var und­ir­rit­aður á öðrum tím­anum í nótt, en horft er til þess að samn­ingar verði til 1. nóv­em­ber 2022, að því er fram kom í til­kynn­ingu frá Rík­is­sátta­semj­ara. 

Aðilar vinnu­mark­að­ars­ins hafa varist frétta um nákvæm­is­at­riði í sam­komu­lag­inu, t.d. krónu­tölu­hækk­anir fyrir þá lægst laun­uðu og önnur atriði, en eins og áður segir þá er nú unnið að því að ljúka samn­ingum á næsta sól­ar­hring.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent