Hindrun vaxtalækkunar horfin

Seðlabankastjóri segir í viðtali við mbl.is að allt bendi til þess að nú sé hægt að lækka vexti.

Már Guðmundsson
Auglýsing

Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri, segir að nú sé búið að ýta í burtu hindrun fyrir því að lækka vexti, en þeim var í síð­ustu vaxta­á­kvörðun haldið óbreyttum í 4,5 pró­sent­um.

Þetta kemur fram í við­tali við Má á mbl.is. Þar segir hann meðal ann­ar­s: „Við vor­um kom­in á þann stað áður að það var farið að hægja á í þjóð­ar­bú­inu og svo verða áföll. Því var margt sem mælti með því að lækka raun­vexti Seðla­bank­ans til þess að minnka þessi áföll, en það var hins veg­ar þessi óvissa vegna kjara­­samn­ing­anna sem hindr­uðu það. Nú er hún horf­in.“

Eins og greint var frá á vef Kjarn­ans í dag, þá er ein af for­sendum Lífs­kjara­samn­ing­anna svoköll­uðu, að vaxta­stig fari lækk­andi á Íslandi á næstu miss­er­um.

Auglýsing

Ef meg­in­vextir Seðla­­banka Íslands, oft kall­aðir stýri­vext­ir, lækka ekki um 0,75 pró­­sent­u­­stig fyrir sept­­em­ber 2020 eru for­­sendur kjara­­samn­inga sem und­ir­­rit­aðir voru í nótt brostn­­ar.

Sam­­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans var umtals­vert tek­ist á um þetta ákvæði við gerð kjara­­samn­ing­anna og bár­ust meðal ann­­ars mót­bárur frá Seðla­­banka Íslands til samn­ings­að­ila í gær á meðan að verið var að ganga frá loka­út­­­gáfu samn­ing­anna. Það var hins vegar ófrjá­v­íkj­an­­legt að mati hluta þess hóps sem fór fyrir stærstu stétt­­ar­­fé­lögum lands­ins að þetta ákvæði væri inni, sér­­stak­­lega ef semja ætti um hóf­­legar launa­hækk­­­anir næsta árið vegna aðstæðna í efna­hags­líf­in­u. 

Á end­­anum náð­ist sátt um að hafa orða­lagið með þeim hætti sem greint er frá hér að ofan og ekki til­­­greina neina sér­­staka lækkun sem skil­yrði fyrir því að kjara­­samn­ingar haldi. Kjarn­inn hefur hins vegar fengið það stað­­fest að til sé hlið­­ar­­sam­komu­lag, svo­­kallað „skúffu­­sam­komu­lag“ sem er ekki hluti af opin­berum kjara­­samn­ingi, sem feli í sér að vextir verði að lækka um 0,75 pró­­sent­u­­stig fyrir sept­­em­ber 2020, þegar fyrsta end­­ur­­skoðun sér­­stakrar for­­send­u­­nefndar mun eiga sér stað, til að kjara­­samn­ingar hald­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent