Svara ekki hverjir standa að baki söfnuninni fyrir WOW

Aðstandendur síðunnar hluthafi.com, sem efnt hafa til söfnunar til að endurreisa flugfélagið WOW air eða stofna nýttflugfélag, svara ekki fyrirspurnum um hverjir standa að baki síðunni. Vænta má yfirlýsingu frá vefsíðunni á morgun eða þriðjudag.

Af vefnum hluthafi.com
Af vefnum hluthafi.com
Auglýsing

Ekki fást svör við hver eða hverjir standa að baki vef­síð­unnar hlut­hafi.com þar sem óskað er eftir því að lands­menn taki sig saman til að end­ur­reisa flug­fé­lagið WOW air eða stofna nýtt lággjalda­flug­fé­lag. Ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum er boðið að skrá hluta­fjár­lof á vef­síð­unni en hvergi á síð­unni kemur fram hverjir standa að baki síð­unni eða hvað þá söfn­un­inn­i. Einu upp­lýs­ing­arnar eru þær að þeir ein­stak­lingar sem standa að gerð síð­unnar og vænt­an­legs almenn­ings­hluta­fé­lags hafa ekki starfað hjá WOW air og eru ekki tengdir félag­inu á nokkurn hátt.

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans segir að heima­síðan hlut­hafi.com sé aðeins vett­vangur til þess að safna saman áskrif­endum svo að þeir hafi síðar heim­ild til að sækja stofn­fund, það er ef skil­yrðin eru upp­fyllt sem eru að ann­ars vegar að end­ur­reisa félag eða hins vegar stofna nýtt lággjalda­flug­fé­lag. Ef það tekst ekki þá verði engin áskrift og þar með verði ekk­ert af þeim lof­orð­um, sem þegar hafa verið gefin og falla þau þá niður ógild. Ekki feng­ust svör við hver eða hverjir standa að baki vefnum og ­söfn­un­inni

Jafn­framt kemur fram í svar­inu að að­stand­endur síð­unnar stefna að því að senda frá sér yfir­lýs­ingu á morgun eða þriðju­dag. 

Auglýsing

Þurfa 10 til 20 þús­und hlut­hafa

­Greint var frá því í síð­­­ustu viku að Skúli Mog­en­sen hygð­ist end­­­ur­vekja rekst­ur WOW air. Skúli og aðrir lyk­il­­­starfs­­­menn WOW air eru því um þess­ar mund­ir að leita að fjár­­­­­mögn­un­ar upp á 40 millj­­­ón­ir Banda­­­ríkja­dala, eða sem nem­ur um 4,8 millj­­­örðum króna, til að standa straum af kostn­aði við upp­­­haf rekst­­­ur­s­ins. 

Á síð­­unn­i, hlut­hafi.com, segir að með hverjum deg­inum muni Skúla og hans fólki reyn­­ast erf­ið­­ara að end­­ur­reisa WOW. Þar af leið­andi sé nauð­­syn­­legt að almenn­ingur komi að ­­stofn­un al­­menn­ings­hluta­­fé­lags sem gæti fjár­­­fest í nýju flug­­­fé­lag­i. Þá segir að ef náist að safna minnst 10 til 20 þús­und hlut­höfum þá sé hægt að stofna al­­menn­ings­hluta­­fé­lag ­­sem myndi fjár­­­festa í WOW a­ir eða nýju lággjalda­flug­­fé­lag­i. 

Fjár­­ráða ein­stak­l­ing­­ar og fyr­ir­tæki geta skráð sig ­­fyrir bind­andi hluta­fjár­­lof­orði í 90 daga á síð­­unn­i. Ný­liðum í fjár­­­fest­ingum er hins vegar ráð­lagt að lofa ekki meira hlutafé en sem nemur einum fimmta af mán­að­­ar­­laun­­um. Ekki fást hins vegar svör hverjir standa að baki söfn­un­inni eða hvað stefnt sé að því að safna miklu. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent