15 missa vinnuna hjá Eimskip

Eimskip hefur tilkynnt um skipulagsbreytingar sem eiga að ná fram hagræðingu í rekstri og auka arðsemi félagsins. Fækkað verður um 15 stöðugildi.

Eimskip
Auglýsing

Eim­skip hefur til­kynnt um skipu­lags­breyt­ingar hjá félag­inu sem taka gildi 2. maí næst­kom­andi. Þær snúa að því að sam­þætta hluta af stoð­ein­ingum Eim­skips í mið­lægar ein­ingar og skerpa á áherslum í þjón­ustu við við­skipta­vini.

Alls mun fækka um 15 stöðu­gildi hjá Eim­skip og dótt­ur­fé­lag­inu TVG-Zim­sen við þessar breyt­ing­ar.

Í til­kynn­ingu vegna þessa segir að sem dæmi um þær aðgerðir sem verið sé að ráð­ast í muni þrjár mis­mun­andi akst­urs­stýr­ing­ar­deildir sam­ein­ast í eina ein­ingu.

Auglýsing

Þar segir enn fremur að tals­verðar breyt­ingar verði hjá TVG-Zim­sen þar sem hluti stoð­ein­inga þess dótt­ur­fé­lags Eim­skips muni sam­ein­ast sam­bæri­legum ein­ingum hjá móð­ur­fé­lag­inu. Þá mun TVG-Zim­sen flytja starf­semi sína yfir í Vöru­hótel Eim­skips síðar í sumar en verður eftir sem áður rekið sem sjálf­stætt dótt­ur­fyr­ir­tæki Eim­skips.

Í til­kynn­ing­unni segir að ,mark­mið breyt­ing­anna sé „að ná fram hag­ræð­ingu í rekstri, auka arð­semi og styrkja stoðir félags­ins enn frekar til fram­tíð­ar.“

Tölu­verðar svipt­ingar hafa verið hjá Eim­skip síð­ustu miss­er­i. ­Sam­herji keypti um fjórð­ungs­hlut í Eim­­­skip í fyrra­­­sumar og í sept­­­em­ber 2018 og á nú 27,1 pró­sent hlut sem gerir sjáv­ar­út­vegs­ris­ann að stærsta ein­staka hlut­hafa Eim­skips. Bald­vin Þor­steins­son, fram­­­kvæmda­­­stjóri við­­­skipta­­­þró­unar hjá Sam­herja og sonur Þor­­­steins Más Bald­vins­­­son­­­ar, for­­­stjóra og eins eig­anda Sam­herja, tók skömmu síðar við sem stjórn­ar­for­mað­ur. 

Í nóv­em­ber 2018 var til­kynnt um að Gylfi Sig­fús­son myndi láta af störfum sem for­stjóri félags­ins og í j­an­úar síð­­­ast­liðnum var Vil­helm Már Þor­­­­steins­­­­son, frændi stjórn­­­­­­­ar­­­­for­­­­manns­ins og eig­enda Sam­herja, ráð­inn í starf for­­­­stjóra Eim­­­­skips. Hann hafði starfað hjá Íslands­­­banka í tutt­ugu ár og síð­­­ast verið fram­­kvæmda­­stjóri fyr­ir­tækja og fjár­­­fest­inga­sviðs bank­ans.

Tveimur dögum síðar var send út til­­kynn­ing um umfangs­­miklar skipu­lags­breyt­ingar hjá Eim­­skip. Á sama tíma var greint frá því að laun nýs for­­stjóra félags­­ins myndu „taka mið af þeirri áherslu stjórnar að lækka þurfi kostnað félags­­ins“. Gylfi Sig­­fús­­son var með 5,6 millj­­ónir króna í laun á mán­uði á árinu 2017.

Afkoma Eim­­skips var undir vænt­ingum í fyrra. Hagn­aður félags­­ins var rétt rúmur millj­­arður króna, en hafði verið um 2,3 millj­­arðar króna á árinu 2017. Þótt tekjur Eim­­skips hefðu auk­ist þá minn­k­aði fram­­legð, kostn­aður jókst og afskrftir drógu afkomu árs­ins nið­­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent