Töluverðar líkur á lækkun vaxta

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, segir að íslenska þjóðarbúið hafi sjaldan staðið betur til að takast á við niðursveiflu.

Már Guðmundsson
Auglýsing

Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri, segir að aðstæð­urnar sem nú eru upp í þjóð­ar­bú­skapn­um, með minni spennu en áður, skapi for­sendur fyrir lækkun vaxta. Hann segir að nýsam­þykktir Lífs­kjara­samn­ingar hafi leitt til þess að verð­bólgu­vænt­ingar hafi minnk­að. 

Þetta kemur fram í grein sem Már skrifar í Morg­un­blaðið í dag, þar sem hann fjallar um stöðu þjóð­ar­búss­ins og aðstæð­urnar í hag­kerf­inu eftir fall WOW air og loðnu­brest. 

„Mik­il­vægt er að þjóð­ar­búið býr um þessar mundir yfir meiri við­náms­þrótti gegn áföllum en kannski nokkru sinni áður. Hann birt­ist í því að í fyrsta skipti, a.m.k. í nútíma­sögu sinni á þjóðin meiri eignir erlendis en hún skuldar erlend­is. Skulda­staða heim­ila og fyr­ir­tækja hefur ekki verið betri í langan tíma. Bank­arnir standa sterkt hvað varðar eigið fé og laust fé. Lík­urnar á því að tíma­bund­inn sam­dráttur magn­ist vegna greiðslu­erf­ið­leika heim­ila og fyr­ir­tækja og að aukin útlána­töp höggvi svo djúp skörð í eigið fé bank­anna að til vand­ræða horfi eru því mun minni en ella. Stöð­ug­leika fjár­mála­kerf­is­ins er því ekki ógn­að. Þá á þjóðin stóran gjald­eyr­is­forða sem ekki er fjár­magn­aður með erlendum lán­um. Getan til að milda óhóf­legar geng­is­sveiflur er því mik­il,“ segir Már, en óskuld­settur gjald­eyr­is­forði Seðla­bank­ans nemur um 700 millj­örðum króna þessi miss­er­in. 

Auglýsing

Hann nefnir í grein­inni að verð­bólgu­vænt­ingar til lengri tíma hafi lækk­að, og að þær vænt­ingar sem eru um vaxta­lækk­anir - meðal ann­ars með sér­stöku ákvæði í kjara­samn­ingum - geti átt sér stoð í núver­andi aðstæð­um. „Áföll og minni spenna í þjóð­ar­bú­skapnum skapa að öðru óbreyttu til­efni til lægri raun­vaxta Seðla­bank­ans og lækkun verð­bólgu­vænt­inga í fram­haldi af kjara­samn­ingum auka svig­rúm til að sú lækkun eigi sér stað með lækkun nafn­vaxta. Aðilar kjara­samn­ing­anna hafa vænt­ingar um að þeir skapi for­sendur fyrir lækkun vaxta. Eins og ég sagði ívið­tölum fyrr í þessum mán­uði eru tölu­verðar líkur á að þessar vænt­ingar muni ganga eftir á næst­unni. Ákvæði í kjara­samn­ingum um að þeir geti losnað ef vextir eru yfir ákveðnum mörkum haustið 2020 eiga ekki og munu ekki breyta því þótt þau geti eitt­hvað flækt fram­kvæmd pen­inga­stefn­unnar í fram­tíð­inni. Það bíður betri tíma að ræða það frekar,“ segir Már. 

Meg­in­vextir Seðla­bank­ans eru nú 4,5 pró­sent og verð­bólga mælist 3,3 pró­sent á árs­grund­velli. Hún hækk­aði í síð­ustu mæl­ingur úr 2,9 pró­sent, meðal ann­ars vegna 20 pró­sent hækk­unar á flug­far­gjöld­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent