Kólnun í íslenskri ferðaþjónustu en hún er áfram í burðarhlutverki

Ef framheldur sem horfir mun íslensk ferðaþjónusta ekki draga vagninn í hagvexti á þessu ári, eins og hún hefur gert á undanförnum árum. Gjörbreytt staða er nú uppi, eftir fall WOW air og kólnun í hagkerfinu.

ferðamaður
Auglýsing

Sæta­fram­boð með flugi til Íslands dregst saman um 28 pró­sent, eftir fall WOW air, og þrátt fyrir kólnun og sam­drátt í ferða­þjón­ustu, þá munu hót­el­her­bergjum fjölga um átta pró­sent á þessu ári. 

Þetta er meðal þess sem fram kemur í ítar­legri skýrslu Íslands­banka um stöð­una í íslenskri ferða­þjón­ustu. 

Eftir mik­inn upp­gang á und­an­förnu árum, þar sem fjöldi ferða­manna á ári fór úr um 450 þús­und árið 2010 í 2,3 millj­ónir í fyrra, er nú komin upp allt önnur staða. 

Auglýsing

Sætaframboð til að frá Keflavíkurflugvelli.

Þrátt fyrir það, er gert ráð fyrir að ferða­þjón­ustan verði áfram í burð­ar­hlut­verki og standi undir um 36 pró­sentum af gjald­eyr­is­tekjum þjóð­ar­búss­ins, en hún hefur verið í kringum 43 pró­sent. 

Áætlað er að hót­el­her­bergjum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fjölgi um átta pró­sent á árinu þrátt fyrir fyr­ir­hug­aða fækkun ferða­manna, að því er segir í skýrsl­unni. Nýt­ing­ar­hlut­fall hjá hót­elum mun því fara versn­and­i. 

Útflutningstekjur.

Á síð­asta ári var fjölgun ferða­manna, frá því árið á und­an, að miklu leyti borin uppi af Banda­ríkja­mönn­um. Þar mun­aði mikið um flug WOW air milli Íslands og Banda­ríkj­anna, en áfanga­stöðum í flugi milli Íslands og Banda­ríkj­anna hefur fjölgað mikið á und­an­förnum árum. 

Ferða­mönnum fjölg­aði um 121 þús­und í fyrra miðað við 2017, en sam­tals var fjölgun Banda­ríkja­manna 118 þús­und. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent