Ármann hættir sem forstjóri Kviku

Marinó Örn Tryggvason hefur verið ráðinn nýr forstjóri Kviku banka. Ármann Þorvaldsson mun starfa áfram hjá bankanum en í breyttu hlutverki.

armann-orvaldsson_10054475105_o.jpg
Auglýsing

Mar­inó Örn Tryggva­son, sem verið hefur aðstoð­ar­for­stjóri Kviku banka frá árinu 2017, hefur tekið við sem for­stjóri bank­ans. Ármann Þor­valds­son, sem verið hefur for­stjóri Kviku banka frá því í maí 2017, hefur ákveðið að hætta í starf­inu.

Frá þessu er greint í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands en Kvika banki er annar af tveimur bönkum lands­ins sem skráðir eru á mark­að. Þar segir að Ármann muni áfram starfa hjá Kviku banka en í breyttu hlut­verki að eigin ósk. Héðan í frá muni starf hans ein­skorð­ast við upp­bygg­ingu við­skipta­tengsla, þróun við­skipta­tæki­færa og að styðja við áfram­hald­andi upp­bygg­ingu á starf­semi bank­ans í Bret­landi.

Ármann segir að for­stjóra­starfið feli í sér umtals­verð­ar­ ­stjórn­un­ar­legar skyldur sem hann hafi ekki áhuga á að sinna til lang­frama. „Hins vegar hef ég mik­inn áhuga á að starfa áfram með því frá­bæra fólki sem vinnur hjá Kviku og vil ein­beita mér að verk­efnum sem snúa að því að styrkja tengsl við við­skipta­vini og þróa við­skipta­tæki­færi. Upp­bygg­ingin á starf­semi bank­ans í Bret­landi hefur gengið mjög vel á und­an­förnum árum og ljóst að þar eru sókn­ar­tæki­færi til fram­tíðar fyrir Kviku. Með þess­ari breyt­ingu tel ég að hægt sé að nýta betur reynslu mína, þekk­ingu og tengsl í Bret­landi til þess að styðja við á­fram­hald­andi vöxt þar.“

Auglýsing

Kristín Pét­urs­dótt­ir, stjórn­ar­for­maður Kviku, segir að Ármann hafi fyrir stuttu óskað eftir því að breyta starfs­skyldum sínum hjá Kviku og það hafi leitt til þess að hann og Mar­inó skiptu um hlut­verk. „Þeir hafa unnið vel saman og byggt upp, ásamt öðrum stjórn­endum og starfs­mönn­um, öfl­ugan banka. Ármann mun sinna dag­legum rekstri í minna mæli en Mar­inó hefur gert en þess í stað ein­beita sér að öflun við­skipta­tæki­færa. Ég vænti þess að breyt­ing­arnar leiði til enn auk­innar áherslu á tekju­öfl­un, auk þess sem reynsla og þekk­ing Mar­inós mun nýt­ast vel í áfram­hald­andi upp­bygg­ingu bank­ans.“

Upp­gjör umfram vænt­ingar

Kvika birti í dag afkomutil­kynn­ingu sína fyrir fyrsta árs­fjórð­ung þar sem fram kemur að bank­inn hagn­að­ist um 709 millj­ónir króna og hagn­aður fyrir skatta var 852 millj­ónir króna. Hreinar rekstr­ar­tekjur námu 2.289 millj­örðum króna.

Sú nið­ur­staða var umfram vænt­ing­ar. Arð­semi eig­in­fjár Kviku banka var 22,4 pró­sent sem er mun meiri arð­semi en stóru bank­arnir þrír eru að ná á sínu eigin fé. 

Heild­ar­eignir Kviku eru 115,1 millj­arðar króna. Eigið fé Kviku banka var 13,2 millj­arðar króna í lok mars síð­ast­lið­ins og eig­in­fjár­hlut­fallið 22,5 pró­sent. 

Alls eru 442 millj­arðar króna í stýr­ingu hjá Kviku banka og dótt­ur­fé­lögum hans og 133 starfs­menn starfa í fullu starfi hjá sam­stæð­unn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent