Sigurður Ingi við Miðflokkinn: Þér er ekki boðið!

Formaður Framsóknarflokksins fór yfir pólitíska sviðið í ræðu á miðstjórnarfundi.

Sigurður Ingi Jóhannsson
Auglýsing

Sig­urður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði í ræðu sinni í mið­stjórn­ar­fundi hjá Fram­sókn­ar­flokknum í dag, að skil­boðin til klofn­ings­brots úr Fram­sókn­ar­flokknum - og átti þar við Mið­flokk­inn - vegna atburða í stjórn­mál­unum und­an­farin miss­eri, væru þau að því væri ekki boðið til sam­starfs í stjórn­mál­un­um. 

„Við fórum fram sem sátta­afl en ekki sundr­ung­arafl,“ sagði Sig­urður Ingi, þegar hann fjall­aði um þátt­töku Fram­sóknar í rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu með Vinstri grænum og Sjálf­stæð­is­flokkn­um.

„Ég minnt­ist áðan á að fyrir síð­ustu kosn­ingar vorum við flokkur í sár­um. Það reyndi á okk­ur, bæði sem flokk og okkur per­sónu­lega. Við fórum samt inn í kosn­inga­bar­átt­una sem sam­einað afl og stóðum styrkum fótum á hug­sjónum Fram­sóknar og sögu. Við fórum fram sem sátta­afl en ekki sundr­ung­ar­afl. Við erum sam­vinnu­flokkur og fram­sókn­ar­fólk er sam­vinnu­fólk. Því er ekki að leyna að hart hefur verið sótt að okkur af því klofn­ings­broti sem átti ekki lengur sam­leið með okk­ur. Við höfum líka séð glöggt hvers vegna þetta brot átti ekki sam­leið með Fram­sókn. Fram­sókn, flokk­ur­inn okk­ar, sem er okkur svo afar kær er hóf­samur og ábyrg­ur. Við berum virð­ingu hvert fyrir öðru og fyrir öðr­um.Þess vegna vildu 74% aðspurðra sjá Fram­sókn í rík­is­stjórn eftir síð­ustu kosn­ing­ar. Af því fólk treystir okk­ur. Og traust er dýr­mætasta eign stjórn­mála­flokks. Þetta flokks­brot hefur lagt mikið á sig til að kom­ast á dag­skrá þessa fundar með for­dæma­lausu og inni­halds­lausu mál­þófi á Alþingi. Við þetta brot segi ég eins og sagt er í frægu lagi: - Þér er ekki boð­ið,“ sagði Sig­urður Ingi meðal ann­ars.

Auglýsing

Hann lagði áherslu á það í ræð­unni, að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn væri flokk­ur­inn sem gæti brúað bil­ið, og ýtt undir fram­farir með því að sækja fram eftir miðj­unn­i. 

„Það eru mörg sókn­ar­færi í íslensku atvinnu­lífi. Hvort sem það eru okkar hefð­bundnu öfl­ugu greinar eins og sjáv­ar­út­veg­ur, land­bún­aður og ferða­þjón­usta. Þar á grunni sjálf­bærar nýt­ingar eru tæki­færi grund­völluð á gæðum vör­unnar og ímynd íslenskrar nátt­úru. En það eru ekki síður tæki­færi í nýjum greinum sem byggja á hug­viti manns­ins. Mennt­un, þekk­ing , nýsköpun og frum­kvæði verða lykil hug­tök í því umbreyt­inga­skeiði sem framundan er vegna tækni­þró­unn­ar. Þar ætlum við að verða fremst meðal jafn­ingja,“ sagði Sig­urður Ing­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent