Fjórir umsækjendur um starf seðlabankastjóra metnir mjög vel hæfir

Forsætisráðherra mun að lokum skipa seðlabankastjóra.

Katrín Jakobsdóttir
Auglýsing

Hæfn­is­nefnd, skipuð af Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, hefur metið umsækj­endur um starf seðla­banka­stjóra, og eru fjórir umsækj­enda taldir mjög vel hæfir, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. 



Það eru Gylfi Magn­ús­son, dós­ent við Háskóla Íslands, Ásgeir Jóns­son, for­seti hag­fræði­deildar Háskóla Íslands, Jón Dan­í­els­son, pró­fessor við LSE í London, og Arnór Sig­hvats­son, ráð­gjafi seðla­banka­stjóra og fyrr­ver­andi aðal­hag­fræð­ingur og aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri. Allir hafa þeir dokt­ors­próf í hag­fræði.

Umsækj­endur hafa nú frest til þess að gera athuga­semdir við hæf­is­mat nefnd­ar­inn­ar, til 19. júní, sem hæf­is­nefndin tekur síðan til­lit til. 

Það er for­sæt­is­ráð­herra sem að lokum skipar seðla­banka­stjóra, en Már Guð­munds­son mun láta af störfum í sum­ar, eftir tíu ára starf sem seðla­banka­stjóri.

Auglýsing

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans var tólf umsækj­endum skipt niður í hæf­is­flokka; hæfa, vel hæfa, og mjög vel hæfa. Umsækj­endur voru upp­haf­lega 16, en eins og fram hefur komið þá dró Bene­dikt Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi ráð­herra og for­maður Við­reisn­ar, umsókn sína til baka, en tveir aðrir umsækj­end­ur, hafa gert það líka, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. 

Einn umsækj­enda, sem var nemi, upp­fyllti ekki skil­yrði til að vera hæfur í starfið og er því ekki í flokkun eftir hæfi, hjá nefnd­inn­i. 

For­maður nefnd­ar­innar er Sig­ríður Bene­dikts­dótt­ir, en með henni í nefnd­inni eru Eyjólfur Guð­­munds­­son, rektor Háskól­ans á Akur­eyri, til­­­nefndur af sam­­starfs­­nefnd háskóla­­stigs­ins, og Þór­unn Guð­­munds­dótt­ir, hæsta­rétt­­ar­lög­­maður og vara­­for­­maður banka­ráðs, til­­­nefnd af banka­ráði Seðla­­banka Íslands.

Umsækj­endur um starf seðla­banka­stjóra, voru eft­ir­far­andi, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá stjórn­völd­um:

Arnór Sig­hvats­son, ráð­gjafi seðla­banka­stjóra 

Ásgeir Jóns­son, dós­ent og for­seti hag­fræði­deildar Háskóla Íslands

Ásgeir Brynjar Torfa­son, lektor við Háskóla Íslands

Bene­dikt Jóhann­es­son, fyrrv. fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra

Gunnar Har­alds­son, hag­fræð­ingur

Gylfi Arn­björns­son, hag­fræð­ingur

Gylfi Magn­ús­son, dós­ent

Hannes Jóhanns­son, hag­fræð­ingur

Jón Dan­í­els­son, pró­fessor

Jón G. Jóns­son, for­stjóri banka­sýslu rík­is­ins

Katrín Ólafs­dótt­ir, lektor

Sal­vör Sig­ríður Jóns­dótt­ir, nemi

Sig­urður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri 

Sturla Páls­son, fram­kvæmda­stjóri mark­aðsvið­skipta og fjár­stýr­ingar í Seðla­banka Íslands

Vil­hjálmur Bjarna­son, lektor

Þor­steinn Þor­geirs­son, sér­stakur ráð­gjafi á skrif­stofu seðla­banka­stjóra

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent