Arion banki eignast ferðaskrifstofufyrirtækið TravelCo

Arion banki hefur nú tekið yfir starfsemi TravelCo. Bankinn hyggst selja fyrirtækið eins hratt og kostur er.

Arion Banki
Auglýsing

Arion banki hefur eign­ast allt hlutafé í Tra­velCo hf. og hyggst finna félag­inu nýja fram­tíð­ar­eig­endur svo fljótt sem auðið er. 

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Arion banka.

Tra­velCo hf var stofnað í kjöl­far falls Pri­mera Air og rekur ferða­skrif­stofur á Íslandi, í Dan­mörku, Sví­þjóð, Nor­egi og Finn­land­i. 

Auglýsing

„Að­eins er um að ræða breyt­ingu á eign­ar­haldi en dag­leg starf­semi og þjón­usta ferða­skrif­stof­anna helst óbreytt. Mark­mið Arion banka er að tryggja áfram­hald­andi starf­semi ferða­skrif­stof­anna og hags­muni bank­ans,“ segir í til­kynn­ingu Arion banka.

Fall Primera hefur dregið dilk á eftir sér.

Starf­semi Tra­velCo á Íslandi hefur farið fram undir merkjum ferða­skrif­stof­anna Heims­ferða og Terra Nova og gengur starf­semi þeirra vel, sam­kvæmt því sem segir í til­kynn­ingu Arion banka. 

Stofn­andi Tra­velCo var Andri M. Ing­ólfs­son, en eins og kunn­ugt er féll ferða­þjón­ustu­veldi hans, kennt við Pri­mer­a,  og hefur síðan verið unnið að því að tryggja starf­semi þessa hluta rekstr­ar­ins sem tal­inn er eiga sér fram­tíð­ar­mögu­leika.

Í til­kynn­ingu þakkar Andri starfs­fólki fyrir að hafa byggt félagið upp í sam­starfi við hann. „Mér er efst í huga þakk­læti til alls þess frá­bæra starfs­fólks sem ég hef starfað með og hefur tekið þátt í upp­bygg­ingu félags­ins á und­an­förnum árum. Tra­velCo er eitt öfl­ug­asta fyr­ir­tæki Norð­ur­landa á sviði ferða­þjón­ustu og ég óska félag­inu og starfs­fólki þess alls hins besta í fram­tíð­inni sem ég veit að verður björt,“ segir Andri.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent