BSRB telur engin rök vera fyrir einkavæðingu á póstþjónustu

BSRB mótmælir harðlega hugmyndum Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, um að einkavæða Íslandspóst ohf. í bréfi sem framkvæmdastjóri bandalagsins hefur sent ráðherranum.

Pósturinn
Auglýsing

Engin rök eru fyrir einka­væð­ingu á póst­þjón­ustu enda á hún að vera órjúf­an­legur hluti af almanna­þjón­ust­unni að mati BSRB. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá banda­lag­inu.

Fram kom í fjöl­miðlum í morgun að Bjarni Bene­dikts­­son, fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, vildi selja Íslands­­­póst til einka­að­ila við fyrsta tæki­­færi. Hann segir að þegar umbætur á lagaum­­gjörð og breyt­ingar á rekstri Íslands­­­póst fari að skila árangri þá sé ekk­ert því til­ ­fyr­ir­­stöð­u að ríkið selji rekst­­ur­inn.

BSRB mót­mælir harð­lega þessum hug­myndum í bréfi sem fram­kvæmda­stjóri banda­lags­ins hefur sent ráð­herra. Í bréf­inu segir Magnús Már Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri banda­lags­ins, ljóst að einka­væð­ing þess muni hafa í för með verri þjón­ustu og aukin kostnað fyrir almenn­ing auk þess að hafa slæm áhrif á rétt­indi starfs­manna.

Auglýsing

Hvetur stjórn­völd að hætta við öll áform um einka­væð­ingu

„Póst­þjón­usta er sam­fé­lags­þjón­usta rétt eins og heil­brigð­is­þjón­ust­an, lög­gæsla, sam­göngur og fleira. Þar þarf fyrst og fremst að horfa til þess að almenn­ingi um allt land sé tryggð góð þjón­usta. Slíkt er ekki hægt nema almanna­þjón­ustan sé í höndum hins opin­bera sem skipu­leggi, stýri og fjár­magni hana með jafnan rétt almenn­ings að leið­ar­ljósi,“ segir meðal ann­ars í bréfi BSRB.

Magnús Már Guðmundsson, framkvæmdastjóri BSRB Mynd: BSRB

Þar er einnig rakið hvernig einka­væð­ing póst­þjón­ustu í Evr­ópu hefur ekki skilað þeim árangri sem að var stefnt með bættri þjón­ustu og minni kostn­aði. Þvert á móti hafi einka­væð­ingin víða haft í för með sér verri þjón­ustu, sér í lagi í dreif­býli, hækk­andi gjald­skrár og slæm áhrif á vinnu­skil­yrði og rétt­indi starfs­fólks.

BSRB hvetur til þess að stjórn­völd hætti við öll áform um frek­ari einka­væð­ingu sam­fé­lags­legra mik­il­vægra inn­viða í bréf­inu, sem sent var fjár­mála­ráð­herra í dag.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent