Lilja trónir á toppnum

Lilja Alfreðsdóttir nýtur mests trausts allra ráðherra ríkisstjórnarinnar en flestir vantreysta Bjarna Benediktssyni. Helmingur kvenna ber minnst traust hans.

Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Auglýsing

Flestir bera mest traust til Lilju Alfreðs­dótt­ur, mennta- og ­menn­ing­ar­mála­ráð­herra, sam­kvæmt nýrri könnun sem Zenter rann­sóknir fram­kvæmdu fyrir Frétta­blaðið og fretta­bla­did.is.

Á eftir henni kemur Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og njóta þær lang­mests trausts allra ráð­herra. Í Frétta­blað­inu kemur fram að stuðn­ingur við Lilju og Katrínu komi úr ólíkum átt­um. Katrín njóti mests trausts meðal stuðn­ings­manna rík­is­stjórn­ar­innar en meðal and­stæð­inga hennar njóti Lilja lang­mests trausts allra ráð­herra. Stuðn­ingur við Lilju sé mestur meðal tekju­lágra og þeirra sem hafa minnsta mennt­un.

Þessu er öfugt farið meðal stuðn­ings­manna Katrínar en traust til hennar styrk­ist eftir því sem tekjur hækka og menntun eykst. Katrín nýtur mests trausts allra ráð­herra meðal íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Tæpur þriðj­ungur þeirra treystir henni best. Þar nefndu rúm 24 pró­sent Lilju. Meðal lands­byggð­ar­fólks er nafn Lilju hins vegar langoft­ast nefnt. Þar treysta 39 pró­sent henni best allra ráð­herra. Tæp 18 pró­sent lands­byggð­ar­fólks treysta Katrínu hins vegar best, að er fram kemur í Frétta­blað­inu.

Auglýsing

Guð­mundur Ingi vin­sæll meðal Sam­fylk­ing­ar­fólks

Stuðn­ings­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins treysta Bjarna Bene­dikts­syni best allra ráð­herra í 45,6 pró­sentum til­vika en Þór­dísi Kol­brúnu í 17,6 pró­sentum til­vika. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son og Krist­ján Þór Júl­í­us­son njóta hins vegar báðir minna trausts meðal stuðn­ings­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins en þær Lilja og Katrín. Tveir af hverjum tíu stuðn­ings­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks­ins bera mest traust til ann­arrar hvorrar þeirra. En tæp 6 pró­sent nefndu Guð­laug og rúm 5 pró­sent Krist­ján Þór.

Þeir sem treysta Bjarna best koma aðeins úr þremur flokk­um; Sjálf­stæð­is­flokkn­um, Mið­flokknum og Við­reisn þar sem rúm tvö pró­sent segj­ast treysta honum best. Hann kemst ekki á blað meðal stuðn­ings­manna ann­arra flokka.

Auk mik­ils trausts til Lilju og Katrínar sem njóta stuðn­ings þvert á flokka bera margir stuðn­ings­menn Sam­fylk­ing­ar, Pírata og Við­reisnar mest traust til Guð­mundur Inga Guð­brands­sonar umhverf­is­ráð­herra og hann skýst upp fyrir Lilju og Katrínu meðal stuðn­ings­manna Sam­fylk­ing­ar­innar þar sem tæpur þriðj­ungur stuðn­ings­manna treystir honum best allra ráð­herra.

Bjarna minnst treyst

Enn fremur kemur fram í Frétta­blað­inu að sá ráð­herra sem nýtur minnst trausts meðal þátt­tak­enda hafi verið Bjarni Bene­dikts­son, efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra. Helm­ingur allra kvenna sem tóku þátt sögð­ust bera minnst traust til hans. Van­traustið er mest meðal þeirra tekju­lægstu og þeirra sem hafa minnsta menntun en minnkar jafnt og þétt með hærri tekjum og auk­inni mennt­un.

Nið­ur­stöður könn­un­ar­innar um van­traust til ráð­herra meðal þeirra sem styðja rík­is­stjórn­ina eru einnig athygl­is­verðar en 60 pró­sent stuðn­ings­manna Vinstri grænna bera minnst traust til Bjarna Bene­dikts­son­ar. Stuðn­ings­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins van­treysta hins vegar helst heil­brigð­is­ráð­herra en 50 pró­sent stuðn­ings­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins segj­ast bera minnst traust til Svan­dísar Svav­ars­dótt­ur.

Fram­sókn­ar­menn van­treysta hins vegar Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni mest allra ráð­herra en væri ekki fyrir van­traust þeirra, kæm­ist land­bún­að­ar­ráð­herra vart á blað í könn­un­inni hvort sem litið er til trausts eða van­trausts.

Könn­unin var gerð dag­ana 25. til 27. júní 2019. Hún var send á 2.000 manna könn­un­ar­hóp Zenter rann­sókna, 18 ára og eldri. Svar­hlut­fallið var 51 pró­sent og voru svörin vigtuð eftir kyni, aldri og búsetu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent