Íslandspóstur selur Samskipti

Íslandspóstur er að undirbúa söluferli á Samskiptum en salan hluti af endurskipulagningu félagsins. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar kom fram að rekstur dóttur- og hlutdeildarfélaga hafi ekki skilað Íslandspósti þeirri samlegð og arðsemi sem stefnt var að.

Pósturinn
Auglýsing

Íslands­póstur er að und­ir­búa sölu­ferli á prent­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­inu Sam­skipt­um. Salan er hluti af end­ur­skipu­lagn­ingu félags­ins sem greint var frá á dög­un­um. For­stjóri Íslands­póstur segir að fyr­ir­tæki líti nú svo á að prent­smiðju­rekstur sé ekki hluti af kjarna­starf­semi Íslands­póst og því hafi verið ákveðið að setja fyr­ir­tækið á sölu.

Prent­smiðju­rekstur ekki hluti af kjarna­starf­semi

Íslands­póstur keypt­i ­Sam­skipti ehf. árið 2006. Kaup­verð var ekki gefið upp en nið­ur­fært kaup­verð í árs­reikn­ingum 2009 til 2011 nam 131 millj­ón. Í til­kynn­ingu frá­ Ís­lands­póst­i ­segir að fyr­ir­tækið mun­i fá óháða ­mats­að­ila til að verð­meta ­félag­ið og taka sam­an­ sölu­gögn en að allt kapp sé lag­t á að ferlið taki sem skemmstan t­íma og mun auglýs­ing um sölu­ferlið birtast á næstu vikum. 

Auglýsing

Birgir Jóns­son, for­stjóri Íslands­pósts, segir að Sam­skipti hafi verið keypt þegar aðstæður voru aðrar og Íslands­póstur hafi verið að leita eftir við­skipta­tæki­færum til að styrkja sig til fram­tíð­ar­. „Við lítum ein­fald­lega svo á núna að prent­smiðju­rekstur sé ekki hluti af kjarna­starf­semi Íslands­pósts og höfum því ákveðið að setja fyr­ir­tækið á sölu.“

Dótt­ur- og hlut­deild­ar­fé­lög ekki skilað þeirri ­sam­legð og arði sem að var stefnt 

Ís­lands­póst­ur til­kynnti á dög­unum að fyr­ir­tækið væri í alls­herj­ar end­ur­skipu­lagn­ingu og að mikið hag­ræð­ing­ar­ferli væri farið af stað innan félags­ins. Þar á meðal var fækkað í fram­kvæmda­stjórn félags­ins. Sú ákvörðun að selja Sam­skipti er liður í þeirri aðgerð. 

Í skýrslu Rík­­is­end­­ur­­skoð­unar um Íslands­­­póst til Alþingis sem birt var í júní kom fram að fjár­fest­ingar Íslands­póst í dótt­ur- og hlut­deild­ar­fé­lögum hafi ekki skilað félag­inu þeirri sam­legð og arði sem að var stefnt.

Í des­em­ber árið 2018 var dótt­ur­fé­lag Íslands­póst­s, ePóst­ur, af­­skráð úr ­­fyr­ir­tækja­­skrá og inn­­limað inn í Íslands­­­póst­. Í jan­úar á þessu ári var síðan greint frá því að Íslands­­­póstur hlaut ekki sam­­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins áður en ePóstur var sam­einað móð­­ur­­fé­lag­inu en í sátt sem fyr­ir­tækið gerði við Sam­keppn­is­eft­ir­litið í febr­­úar 2017 segir að ekki megi sam­eina dótt­­ur­­fé­lög móð­­ur­­fé­lag­inu nema sam­­þykki eft­ir­lits­ins liggi fyr­­ir. 

Félag atvinnu­rek­enda hefur verið ötult við að gagn­rýni að Íslands­póstur hafi farið inn á mark­aði óskylda póst­þjón­ustu líkt og sæl­gæt­is­sölu og prent­smiðju­rekst­ur. Félag atvinnu­rek­enda hefur einnig nefnt flutn­ings­miðlun sem óskyldan rekst­ur. Félagið telur það vera brot sam­keppn­is­lögum þar sem sam­keppn­i­starf­semin sé nið­ur­greidd með tekjum af einka­rétt­ar­rekstri.

„Það er mjög áleitin spurn­ing hvort eig­enda­­­stefnu rík­­­is­ins vegna opin­berra hluta­­­fé­laga sé ekki ábóta­vant. Þar segir að stjórnir slíkra félaga skuli leit­­­ast við að efla sam­keppni en stjórn Íslands­­­­­pósts virð­ist mis­­­skilja það sem svo að fyr­ir­tækið skuli fara í sam­keppni við allt sem hreyf­­­ist,“ sagði Ólafur í sam­tali við Frétta­­blaðið í nóv­em­ber í fyrra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent