Rúmlega fimm þúsund heimili fengu fjárhagsaðstoð árið 2018

Rúmlega fjörtíu prósent heimila sem hlutu fjárhagsaðstoð árið 2018 voru heimili barnlausra einstæðra karla.

Atvinnuleysi grafík eitt myndrit
Auglýsing

Rúm­lega fimm þús­und heim­ili fengu fjár­hags­að­stoð sveit­ar­fé­laga árið 2018 sem er 2,5 pró­senta fækkun frá árinu áður. Fjöldi heim­ila sem fá fjár­hags­að­stoð helst í hendur við þróun atvinnu­leys­is, að því er kemur fram í grein­ingu Hag­stof­unn­ar.

Sam­kvæmt grein­ingu Hag­stof­unnar hækk­uðu útgjöld sveit­ar­fé­lag­anna vegna fjár­hags­að­stoðar um 1,6 pró­sent sé miðað við fast verð­lag, eða um 74 millj­ónir króna. Með­al­mán­að­ar­greiðslur fjár­hags­að­stoðar voru 136.242 krónur sem er um þús­und krónu lækkun frá árinu áður­.­Lengd fjár­hags­að­stoðar árið 2018 var 4,8 mán­uðir en 4,5 mán­uðir árið áður.

Auglýsing
43,1 pró­sent af þeim heim­ilum sem fengu fjár­hags­að­stoð voru heim­ili barn­lausra karla en heim­ili barn­lausra kvenna 24,1 pró­sent. Heim­ili ein­stæðra kvenna með börn voru 22,2 pró­sent heim­ila og heim­ili hjóna eða sam­búð­ar­fólks 8,8 pró­sent. Um þriðj­ungur við­tak­enda fjár­hags­að­stoðar voru atvinnu­lausir og 86 pró­sent þeirra án bóta­rétt­ar.

Mynd: frá Hagstofunni

2,3 pró­sent þjóð­ar­innar bjuggu á heim­ilum sem fengu fjár­hags­að­stoð árið 2018, eða 8.206 manns og þar af 2.710 börn. 9.461 heim­ili fékk félags­lega heima­þjón­ustu og tæp­lega fimm af hverjum sex heim­ilum voru heim­ili aldr­aðra sem er tæp­lega fimm pró­senta aukn­ing frá árinu 2017.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent